Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 8

Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 8
8 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ,Non 5TOP 5HOW ' Við éiaum uiJd' SÆGREIFAGELLURNAR slá öllu við í vinsældum af því skemmtiefni sem LÍU hefur boðið upp á fram að þessu í kvótarevíunni. Jarðborinn keyptur í Mýrdalinn Fagradal. Morgunblaðið. PALMI Andrésson fyrverandi bóndi í Kerlingadal í Mýrdal hefur fest kaup á þrjátíu ára gömlum jarðbor. Með bomum er hægt að bora 5 og 10 tommu holur að þver- máli. Að sögn Pálma hafa verið borað- ar 300 metra djúpar holur með bornum. Hann var fluttur til landsins af vamarliðinu á Kefla- víkurvelli en þaðan fór borinn til Borgarfjarðar. Þar hefur hann verið síðastliðin tuttugu ár. Pálmi er byrjaður að bora í Kerlingadal og gengur verkið sam- kvæmt áætlun. Borar hann einn metra á klukkustund að meðaltali. Pálmi hefur fundið heitt vatn með tveimur prjónum og lætur hann prjónana líka segja sér til um hversu djúpt vatnið er. Nú fyrst reynir á hvort prjónavísindi Pálma standist. Þetta framtak er athygli- vert af bonda sem er kominn a eft- Morgunbiaðið/Jónas Eriendsson irlaun. BOR Pálma Andréssonar í Kerlingadal. giæpur REFSÍNd heimsbókmenntir Í! h :£! ,§.S t % N 4> Mál og msnning FORLAGIÐ aðeins 1.980 kr. aðeins /1.980 kr. Fjóraraf perlum heimsbókmenntanna sem hafa verið ófáanlegar um skeið fást nú aftur á mjög hagstæðu verðií www.mm.is aðeins Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir Með ungu fólki - fyrir ungf fólk Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir (FKB) gengst fyrir málþingi undir yfirskrift- inni Með ungu fólki - fyrir ungt fólk í Þjóðarbókhlöð- unni í dag. Sóley S. Bend- er, lektor við námsbraut í hjúkrunarfræði, stóð að stofnun fræðslusamtak- anna og hefur verið for- maður frá upphafi. Sóley segir að aðalmarkmið samtakanna sé að vinna að viðurkenningu samfélags- ins fyrir jöfnum rétti allra til heilbrigðs og ábyrgs kynlífs með því að stuðla að og varðveita kynheil- brigði byggt á aðgengi- legri og hlutlausri fræðslu og ráðgjöf. „Við lítum svo á að hlutverk okkar sé að vera stjórnvöldum og innan handar við að byggja upp ráðgjöf og fræðslu á sviði kynlífs og bameigna. Annar liður í starfinu felst í því að gera fagfólk hæfai-a til að veita fræðslu og koma til móts við þarfir almennings. Al- menningur á að eiga auðvelt með að leita til okkar ýmist í gegnum heimasíðuna www.mmedia.is/fkb, tölvupóst með póstfanginu fkb@mmedia.is eða í símboða- númerinu 842-3045. Sérstaklega er höfðað til ungs fólks með mót- töku í Hinu húsinu á mánudögum á milli kl. 16 og 18.“ - Er þjónustan fyrst og fremst ætluð fólki í bráðum vanda „Hingað til hefur okkar reynsla verið að leitað er til okk- ar þegar neyðin er stærst, t.d. til að fá neyðargetnaðarvörn. Við viljum gjarnan snúa dæminu við. Að ungt fólk sýni meiri fyrir- hyggju. Þess vegna leggjum við áherslu á notkun öruggra getn- aðarvarna við ungt fólk.“ - Hefur umræðan um kynlíf og barneignir veiið að opnast? „Já, ég held t.d. að umræðan sé opnari heldur en fyrir 10 til 20 árum. Ein ástæðan er væntan- lega alnæmið. Við urðum að fara að tala hispuslaust um kynlíf og nota orðið smokkur og fleiri orð tengd kynlífi. Ég efa ekki að um- ræðan hefur hjálpað okkur að varpa hulunni af kynlífinu og getnaðarvörnum. Okkar mark- mið er að eðlileg umræða fari fram um þennan sjálfsagða hluta af lífinu." - Fræðslusamtökin efna til málþings í Þjóðarbókhlöðunni í dag. „Málþingið köllum við Með ungu fólki - fyrir ungt fólk, fræðsla og ráðgjöf um kynlíf og bameignir. Ætlunin er að skoða hvaða þjónustu ungt fólk þarf á að halda til að hún komi að sem bestum notum. A mál- þinginu er verið að skoða sjónarmið bæði ungs fólks og fagfólks. Að lokum er svo ætl- unin að sameinast í ______ pallborðsumræðum. f þeim umræðum er jafnt hlutfall ungs fólks og fagfólks. Ég býst við að velt verði upp spurningum á borð við - erum við að veita ungu fólki nógu góða fræðslu og ráðgjöf á þessu sviði? - er að- gangurinn nógu greiður? o.s.ft-v. Á málþinginu verða bæði inn- lendir og erlendir fyrirlesarar. Ég get nefnt að Lyn Thomas, deildarstjóri Evrópudeilar Al- þjóðasamtaka um fjölskylduáætl- un, segir frá því hvaða uppbygg- ingastarf hefur verið unnið á meginlandi Evrópu í þjónustu fyrir ungt fólk á undanförnum ár- um. Annar erlendur gestur er Sóley Bender ► Sóley S. Bender er fædd 26. júlí árið 1953 í Reykjavík. Sóley lauk BS-prófi í hjúkrun- arfræði frá HÍ árið 1977 og MS-gráðu í fjölskylduáætlun frá háskólanum í Minnesota árið 1983. Sóley hefur starfað fyrir Landlæknisembættið að náms- efni í kynfræðslu og stóð að stofnun Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir (FKB) ár- ið 1992. Hún hóf kennslu við námsbraut í hjúkrunarfræði við HÍ árið 1985 og hefur verið lektor við námsbrautina frá 1989. Eiginmaður Sóleyjar er Friðrik Kr. Guðbrandsson læknir og eiga þau þijú börn. Strákar vilja frekar leita til karl- en kvenráðgjafa Bengt Sundbaum, skrifstofu- stjóri við sænsku heilbrigðis- málastofnunina, og hefur aðal- verkefni hans snúið að forvama- starfi fyrir ungt fólk á sviði kyn- heilbrigðis, einkum varðandi al- næmi. Sundbaum fjallar sérstak- lega um sérþarfir stúlkna og drengja. Ætlunin er að byggja upp sérfræðiþekkingu varðandi fræðslu og ráðgjöf fyrir stráka þar sem þeir hafa ekki nýtt sér þessa þjónustu sem skyldi. Einn liðurinn felst í því að mynda vinnuhóp karlráðgjafa með svip- uðum hætti og gert hefur verið í Svíþjóð. Strákarnir virðast nefni- lega frekar vilja leita til karl- en kvenráðgjafa.“ - Hvað ætlar þú sjálf að fjalla um á ráðstefnunni? „Ég ætla að segja frá rannsókn minni frá vorinu 1996. Rannsókn- in náði til 2.500 ungmenna á land- inu öllu. Fram kom m.a. að mark- tækur munur var á skoðunum ungs fólks úti á landsbyggðinni og í borginni á því hvemig þjón- ustunni væri best hagað. Unga fólkið úti á lands- byggðinni vildi gjam- an að þjónustan væri innan heilsugæslunn- ar. Að auki var lögð áherslu á að þjónustan væri veitt í heima- byggð og að ráðgjafinn sýndi þeim trúnað og skilning. Ungt fólk í borginni vildi að þjónustan væri veitt í sér hús- næði. Meira var lagt upp úr því að unga fólkið ætti ekki á hættu að hitta foreldra sína. Þessi hóp- ur vill líka síður greiða fyrir þjón- ustuna. Sú áhersla sem ungt fólk utan Reykjavíkur leggur á trún- að getur hugsanlega endurspegl- að það að á minni stöðum úti á landi geti reynst erfitt að leita eftir fræðslu og ráðgjöf á þessu sviði þar sem um viðkvæm mál er að ræða og allir þekkja kannski alla.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.