Morgunblaðið - 10.10.1998, Síða 21

Morgunblaðið - 10.10.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 21 AKUREYRI Lokahönd lögð á undirbúning minningartónleika um Jóhann Konráðsson „Alltaf spennt þegar Kristján kemur heima „ÉG er alltaf spennt þegar Krist- ján kemur heim,“ sagði Fanney Oddgeirsdottir, móðir Kristjáns Jóhannssonar, þar sem hún sat í stofunni heima í Möðruvalla- stræti 5 og spjallaði við son sinn í gærmorgun. „Það er bara verst að svona spenna fer svo illa í mig, maður er orðinn svo aldrað- ur,“ sagði hún. Tónleikar Kristjáns verða í Iþróttahöllinni á Akureyri í dag, laugardaginn 10. október, og hefjast klukkan 17. Þetta eru minningartónleikar um Jóhann Konráðsson, föður Kristjáns, sem orðið hefði áttræður siðastliðið haust, en hann lést í lok árs 1982. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, kemur fram með Kristjáni á tón- leikunum og einnig Jóna Fanney Svavarsdóttir, bróðurdóttir hans. Hinn þekkti ítalski hljómsveitar- stjóri Giovanni Andreoli stjórnar Sinfóniuhljómsveit Norðurlands á tónleikunum, en hún fær til liðs við sig hljóðfæraleikara úr Sin- fóníuhljómsveit íslands. Gott að koma heim Það var mikið um að vera í IþróttahöIIinni í gær, hljómsveit- in æfði af kappi og síðdegis stigu söngvaramir á svið. Þau Kristján og Diddú fóm yfír stöðuna og slóg^u á létta strengi áður en al- varan tók við. Kristjáni þykir alltaf notalegt að koma heim og vera hjá mömmu, hitta sitt heimafólk, en hann var í svolitlu uppnámi því Rannveig litla, dótt- ir hans og Siguijónu Sverrisdótt- ur konu hans, hafði fengið háan hita og tvísýnt hvort þær mæðg- ur kæmust norður í gær vegna þess. Anna María Jóhannsdóttir hef- ur staðið í eldlinunni við undir- búning og það var í mörg hom að Iíta hjá henni á lokasprettin- um. „Þetta hefur verið alveg rosaleg töm, þetta eru svo um- fangsmiklir tónleikar, ég held ég hefði aldrei farið út í þetta ef ég hefði vitað fyrirfram að þetta yrði svona mikið mál. Það þarf að betla og biðja, senya um eða kaupa alla hiuti, það er ekkert til. Hugsið ykkur hvað þetta væri auðvelt ef við ættum tónleika- hús,“ sagði Anna María þegar hún leit aðeins upp í miðjum önn- um gærdagsins. Hún tók einnig fram að þótt á ýmsu hefði gengið hefði verið gaman og gjöfult að annast und- irbúninginn og allir tilbúnir að Ieggja sitt af mörkum. Margir hefðu lagt hönd á plóg. „Það em allir svo duglegir og áhugasamir og ég hef eignast fullt af vinum í gegnum þessa vinnu,“ sagði Anna María. „Ég sagði við Kidda í sumar að ég gæti ekki séð að þetta myndi ganga upp, en nú er allt að smella saman og maður sér að þetta er að hafast." 370 fiskiboliur Kristján hafði á orði í viðtali við Morgunblaðið i gær að verst væri að hún Mæja systir hans hefði ekki haft tíma til að taka slátur vegna anna við undirbún- inginn, sem væri synd, því hún gerði bestu lifrarpylsu í heimi. „O, ætli maður taki ekki sitt slát- ur þegar þetta er afstaðið," sagði Anna María og gat þess í fram- hjáhlaupi að hún hefði gefið sér tíma til að búa til 370 fiskibollur þrátt fyrir annir. Nokkrar breytingar vom gerð- ar á skipulagi í fþróttahöllinni, sviðið var minnkað aðeins þannig að hægt er að koma fleiri stólum fyrir og vom 150 miðar til við- bótar settir í sölu í gær að sögn Finns Magnúsar Gunnlaugssonar hjá Gilfélaginu. Það verða því um Morgunblaðið/Kristján KRISTJAN ræðir við móður sína, Fanneyju Oddgeirsdóttur, í stofunni heima í Möðruvallastræti í gærmorgun en honum finnst alltaf gott að hitta heimafólk sitt. ANNA María Jóhannsdóttir hefur staðið í ströngu við undirbúning tónleikanna, en hér er hún að ræða málin við Diddú. 1.900 áhorfendur sem hlýða á tónleikana i höllinni i dag og koma þeir að sögn Finns hvaðanæva af landinu. Hlakka mikið til „Ég er farin að hlakka mikið til, það var svo óskaplega gaman á tónleikunum þeirra Kristjáns og Diddúar hér á Akureyri 1995, þau ná svo vel til fólksins og fá það með sér. Það var mikil upp- lifun að vera á þeim tónleikum og því hlakka ég mikið til að heyra í þeim aftur,“ sagði Fann- ey og bætti því við að Jóhann maður hennar hefði verið þess- um kostum búinn, að eiga auð- velt með að ná til fólks. „Hann hafði fólkið alltaf með sér og naut þess,“ sagði hún. Fanney söng á sínum tíma inn á plötu með manni sínum og kom einnig fram með honum á Qölskyldu- skemmtunum. „Það var mjög gaman.j Alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur 10. október 1998 „Mannréttindi og geðheilbrigði" Kl. 10.00 -15.00 OpiðhúsíDvöl Opið hús í Dvöl, nýju atnvarfi geðfatlaðra Reynihvammi 43 við Digraneskirkju í Kópavogi. Að athvarfinu standa Kópavogsdeild RKÍ, Kópavogsbær og Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á ReykjanesL Kl. 12.00 Opnun málverkasýningar Opnun málverkasýningar listaakademíu Vínjar í sjálfboðaliðamiðstöð Reykjavíkurdeildar RKI að Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Kl. 13.30 Hátíð við Túngötu 7 Pétur Hauksson, formaður Geðhjálpar, flytur hátíðarávarp í tilefni dagsins. Munið K-lykilinn. Afmælishátíð vegna 50 ára afmælis „The World Federation for Mental Health". Hitt húsið kemur á óvart! Hefðbundin 10. október ganga frá Túngötu 7 . yfir í Odda, hús félagsvísindadeildar Háskóla íslands. Félagar úr Lúðrasveit verkalýðsins sjá um lúðrablástur. Kl. 15.00 Málþing um „Mannréttindi og geðheilbrigði" - ýmis sjónarhorn og umræður Staður: stofa 101 í Odda, Háskóla Islands. Fundarstjóri: Ástbjörn Egilsson, fyrrv. umdæmisstjóri Kiwanis á íslandi. Afhending stefnumótunarskýrslu Tómas Zoéga, yfirlæknir á geðdeild Lsp, afhendir Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skýrslu um „Stefnumótun í málefnum geðsjúkra". Skýrslan var unnin af starfshópi skipuðum af heilbrgðis- og tryggingamálaráðherra og var Tómas Zoéga formaður starfshópshs. Tónlist: Kór Vinjar. Frummælendur á málþingi um „Mannréttindi og geðheiIbrigði" eru: Atli Heimir Sveinsson tónskáld, gestir/gestur sem sækja Vin, athvarf fyrir geðfatlaða, Stefán Eiríksson lögfræðingur, Styrmir Gunnarsson ritstjóri, Þórunn Sveinbjarnardóttir stjórnmálafræðingur. Tónlist: Hólmar Henrysson spilar á harmoníku. Lokaorð: Pétur Hauksson, formaður Geðhjálpar. Kl. 16.30 Kaffi og umræður (kaffistofan í Odda er opin öllum). Hlökkum til að sjá ykkur! + Rauði kross íslands GEÐHJÁLP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.