Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Netanyahu skipar umdeildan „hauk“ í embætti utanríkisráðherra Pólitískri útlegð Sharons opin- berlega lokið Jerúsalem. Reuters. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, sagði í gær, þegar hann tilkynnti að Ariel Sharon, fyrrverandi varnarmálaráðherra, yrði næsti utanríkisráðherra Isra- els að Sharon væri sá maður sem „best hentaði í embættið". Er þai' með opinberlega lokið pólitískri út- legð Sharons en víst er að skiptar skoðanir eru um fyrrgreint mat for- sætisráðherrans enda er Sharon helsti foringi harð- línumanna í ríkisstjórn Israels og hefur hingað til lítt viljað gefa eftir í viðræðum við Palestínumenn. Netanyahu sagði í gær að Sharon myndi stýra viðræðum Israela við Palestínumenn, sem hefjast eiga í næstu viku í Bandaríkjunum, um friðarsamkomulag sem lagt gæti grunn að viðræðum um endanlega stöðu mála á Vesturbakkanum. Yrðu í slíkum viðræðum til lykta leidd deilumál þjóðanna um byggð- ir gyðinga, landamæri Israels, Jer- úsalemborg og málefni flótta- manna. Helsti ásteytingarsteinninn undanfarið hefur hins vegar verið sú tillaga Bandaríkjamanna að Isr- ael gefi eftir 13% landsvæðis á Vesturbakkanum gegn því að Pa- lestínumenn beiti sér markvisst fyrir því að draga úr árásum hryðjuverkamanna á Israelsríki. Stjórn Benjamins Netanyahus er einmitt háð stuðningi harðlínu- manna sem eru afar andsnúnir því að Palestínumönnum verði gefíð eftir land á Vesturbakkanum og þykir skipun Sharons í utanríkis- ráðherraembættið líkleg til að friða þá. Eru ýmsir fréttaskýrendur á þeirri skoðun að einungis með Sharon í framlínu viðræðunefndar- innar geti Netanyahu tryggt sér stuðning meirihluta Israelsbúa fyr- ir hverju því samkomulagi sem næst við Palestínumenn, ef samn- ingar á annað borð nást. Á hinn bóginn er líklegt að skip- un Sharons í embætti utanríkisráð- herra muni hneyksla frjálslyndari íbúa ísraels, Arabaþjóðirnar og ekki síst Palestínumenn sem álíta Sharon þann stjórnmálamann í Isr- ael sem hvað mest blóð hefur á höndum sínum. „Með því að skipa Sharon er Netanyahu að segja um- heiminum að hann vilji ekki fínna lausn á deilumálum Israelsmanna og Palestínumanna og að hann hafí valið leið ófriðar og blóðsúthell- inga,“ sagði Saeb Erekat, aðal- samningamaður Palestínumanna. Þurfti að segja af sér sem varnarmálaráðherra Sharon, sem stendur á sjötugu, er íyrrverandi stríðshetja og gegndi stöðu hershöfðingja í ísra- elska hernum áður en hann hóf af- skipti af stjórnmálum. Sem varnar- málaráðherra fyrirskipaði hann innrás Israelshers í Líbanon árið 1982 en neyddist til að segja af sér embætti ári síðar þegar ísraelsk rannsóknarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að hann bæri óbeina ábyrgð á blóðbaði í tvennum flótta- mannabúðum í Beirút í Líbanon, sem Israelsmenn höfðu umsjón með, þegar herskáir kristnir Lí- banonbúar myi'tu hundruð palest- ínskra flóttamanna. Hafa Palest- ínumenn ekki gleymt því að ísra- elskir hermenn voru í nágrenni búðanna þegar fjöldamorðin áttu sér stað en gerðu ekkert til að stöðva þau. Prátt fyrir að hverfa úr stjórn með þessum hætti árið 1983 var Sharon hins vegar áfram áhrifa- mikill í ísraelskum stjómmálum vegna þess stuðnings sem hann nýtur meðal harðlínumanna. Sat hann áfram í ríkisstjóm en án ráð- herraembættis og hefur af þeim sökum fengið á sig orð fyrir að vera „haukur“ í stjómmálum, áhrifamik- ill á bak við tjöldin. Undanfarið hef- ur hann gegnt embætti ráðherra skipulagsmála í stjórn Netanyahus auk þess sem hann hefur verið einn fjögurra í „innra ráðuneyti" forsæt> isráðherrans. Mun Sharon, að sögn Netanyahus, gegna áfram embætti ráðherra skipulagsmála um sinn þótt hann verði nú utanríkisráð- herra. Dæmdur í fímm ára netbann New York. Reuters. DÓMARI í New York hefur ákveðið að banna manni, sem hefur játað að hafa safnað klámmyndum af börnum og reynt að dreifa þeim á alnetinu, að nota netið í fímm ár. Thomas Baskind, 29 ára fyrr- verandi tryggingasala, verður meinaður aðgangur að netinu og fylgst verður með síma- og greiðslukortareikningum hans, að sögn dómarans. Baskind átti yfir höfði sér allt að sjö ára fangelsisdóm en náði samkomulagi um að refs- ingin yrði milduð. Hann vai' handtekinn í fyrra eftir að hann hafði samband við sjónvarps- fréttakonu í Los Angeles, sem þóttist vera 13 ára stúlka, á spjallrás á netinu. Hún varð við beiðni hans um að senda honum myndir, sem hún sagði að væru af sér. Hann hringdi síðan í hana og óskaði eftir mynd- bandi, þar sem hún viðhefði ýmsai- kynferðislegar athafnir, og bauð henni í heimsókn til New York. Manninum verður ennfrem- ur bannað að nota símann til kynferðislegra samtala, gert að leita til sálfræðings vikulega og sækja fundi AA-samtakanna. Honum verður einnig bannað að sækja um störf, ganga í fé- lög eða sækja staði sem gætu gert honum kleift að hafa eftir- litslaust samband við börn, svo sem leiktækjasali, leikfanga- verslanir og leikvelli. Dómurinn verður kveðinn upp formlega 18. nóvember. Blair í Hong Kong Hong Kong. Reuters. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom í gær til Hong Kong, en borgin er siðasti við- komustaðurinn í opinberri heim- sókn hans til Kína. Við komuna sagði hann að Hong Kong, sem var undir breskri stjórn þar til á síðasta ári, hefði myndað brú milli Bretlands og Kína. Blair sagði að sér virtist borg- in dafna vel undir stjórn Kín- veija. Frelsi og grundvallarrétt- indi væru virt og íbúar gætu óhikað látið skoðanir sínar í Ijós. Áður en Bretar létu Hong Kong af hendi í júlí í fyrra höfðu þeir lýst yfír áhyggjum af framtíð lýðræðis og mannréttinda í borginni, og samskipti Bretlands og Kina voru um tima við frost- mark vegna þessa. Martin Lee, leiðtogi lýðræðis- sinna í Hong Kong, gagnrýndi Blair í gær fyrir að hafa látið viðskiptahagsmuni Bretlands silja í fyrirrúmi og hafa því forðast að knýja á um stjómar- farsumbætur í viðræðum sínum við kínverska ráðamenn. Blair sést á myndinni stíga út úr strætisvagni, sem nýlega var keyptur til Hong Kong frá Bretlandi, en hann lagði í heim- sókninni áherslu á sterk við- skiptatengsl Breta og borgar- innar. Fimm Irönum sleppt úr haldi Teheran. Reuters. ÍRANSKIR fjölmiðlar greindu frá því í gær að talebanar í Afganistan hefðu sleppt úr haldi fimm írönum og sent þá heim á leið. Kom fram í frétt íranska ríkissjónvarpsins að lausn mannanna væri afrakstur milligöngu sendiherra írans í Saudi- Arabíu og Afgana sem búsettur er í Saudi-Arabíu. Spenna hljóp í deilu Irans og Afganistan í ágúst þegar talebanar lögðu undir sig íranskt sendiráð í austurhluta Afganistans, myrtu nokkra diplómata og handtóku aðra. Er þessi spenna orsök átaka sem kom til á landamærum Irans og Afganistans í fyrrakvöld. SPD og græningjar vilja ganga frá stjórnarsáttmála innan viku Deilur um skattastefnu útkljáðar um helgina Bonn. Washinpton. Reuters. ÞYZKI Jafnaðarmannaflokkurinn SPD og flokkur græningja stefna að því að hafa lokið viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjómar fyrir lok næstu viku. Flokkamir hafa gefíð sér þessa helgi til að útkljá ágreining um skattastefnu, sem talið er að sé það svið sem flokk- amir eigi hvað erfíðast með að ná saman um. Leiðtogar stjórnarmyndunar- viðræðnanna, hinn verðandi kanz- lari Gerhard Schröder og græn- inginn Joschka Fischer, sem gert er ráð fyrir að taki við utanríkis- ráðuneytinu, voru í skyndiheim- sókn í Washington í gær þar sem þeir áttu stuttan fund með Bill Clinton Bandaríkjaforseta, en auk þess hittu þeir James D. Wol- fensohn, forseta Alþjóðabankans, og fleiri ráðamenn þar vestra. Jafnaðarmönnum og græningjum tókst að leggja að baki fyrstu viku stjórnarmyndunarviðræðna sín í milli án þess að ágreiningur um tiltekin málefni brytist út opin- berlega. Á löngum samningafundi um skattamál á fímmtudag tókst flokkunum ekki að koma sér sam- an um hvernig gera ætti þær „umhverfisvænu" breytingar á skattkerfinu sem einkum græn- ingjar leggja mikið upp úr að til framkvæmda komi. Þessar breyt- ingar eiga í grundvallaratriðum að felast í því að orku- og elds- neytisskattar verði hækkaðir til að skapa svigrúm til að lækka launatengd gjöld, sem eru mjög há í Þýzkalandi og sögð ein af ástæðunum fyrir hinu mikla at- vinnuleysi í landinu. Erfíð ágreiningsefni bíða Að mati stjórnmálaskýrenda er samt enn langt í land þar til nýr stjórnarsáttmáli verður í höfn; erfið ágreiningsefni flokkanna tveggja bíða enn úrlausnar. Fyrir utan skatta- og ríkisfjármál eru þessi ágreiningsmál meðal annars stefn- an í umferðarmálum, kjarnorku- málum og varnarmálum. En Bernhard Wessels, stjórn- málafræðingur við Berlínarháskól- ann Freie Universitát, segir að eft- ir sextán ár í stjórnarandstöðu sé SPD og Græningjum nú svo mikið í mun að takast að mynda stjórn, að mjög ólíklegt sé annað en að þeir Reutera GERHARD Schröder, verðandi kanzlari Þýzkalands, og Bill Clinton Bandaríkjaforseti slá á létta strengi við blaðamenn fyrir utan Hvíta hús- ið í gær. Schröder ítrekaði að stefna Þjóðverja gagnvart Júgóslaviú i Kosovo-deilunni myndi ekki breytast neitt við stjórnarskiptin. finni málamiðlanir í deilumálum sínum. Flokkarair hafa gefið sér tíma til loka næstu viku til að setja saman drög að stjórnarsáttmála, sem aukaflokksþing beggja þurfa síðan að samþykkja. Áformað er að at- kvæðagreiðsla um staðfestingu Schröders í embætti kanzlara fari fram á Sambandsþinginu, neðri deild þýzka þingsins, hinn 27. þessa mánaðar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.