Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR HERBERT GÍSLASON + Herbert Gíslason fæddist í Neskaupstað 28. desember 1927. Hann varð bráðkvaddur mánudaginn 21. september síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarfjarðarkirkju 9. októ- ber. Nú er hann Herbert Gíslason fallinn frá, Hebbi eins og hann var jafnan kallaður. Fyrstu kynni mín af Herberti voru þegar ég sem lítill drengur fékk að fara með ömmu minni og afa í ferðalag ásamt flokki '„Óháðra borgara" í Hafnarfirði. Þar sá ég þennan mann fyrst og ég man að ég spekúleraði mikið í hon- um því hann var stór maður frekar, hafði skrítið göngulag og lá frekar hátt rómur. Satt að segja leist mér, litla peyjanum, ekld meira en svo á hann en það varði bara þangað til ég hafði kynnst honum, því meira ljúfmenni en hann er vandfundið. Þessi ferðalög voru svo árviss viðburður og alltaf var það viss hluti af tilhiökkuninni að hitta Hebba vin sinn. Síðan eru liðin mörg ár eins og segir í kvæðinu og uppfrá því höfum við ávallt tekið spjall saman er við hittumst á fóm- um vegi. Nú síðustu ár þar til fyrir ári vorum við svo nágrannar í Grænu- kinn og þær voru ófáar stundimar sem við eyddum í spjall við hús- gaflinn eins og sönnum göflurum sæmir. Herbert var nefnilega gafl- ari og mundi svo vel Hafnarfjörð fyrri tíma og urðu ófáar rabb- stundir okkar um það efni. Það em nefnilega ekki svo margir orðið sem búa yfir þeirri þekkingu. Hafnarfjörður hefur stækkað, tíð- arandinn breyst sem og öll gildi og viðhorf síðan menn eins og Her- bert vora ungir og iyrir mig, ungan manninn, er það ómetanlegt að hafa fengið að hafa kynni af þvílík- um hafsjó af fróðleik. Þótt Hebbi hafi verið kominn á efri ár var hann alltaf svo ungur í anda, fylgdist vel með því sem var að gerast í bænum sínum og var vel með á nótunum hvað það varð- aði. „Vel með á nótunum" einmitt! Margan hef ég hitt sem haldið hef- ur hið gagnstæða vegna þess hvemig hann bar sig, sérstakt göngulagið en það var sko öðra nær, hann var betur með á nótun- um en margur annar góðborgarinn og skarpgreindur var hann, það skynjaði maður vel af að tala við hann. A efri áram lagðist hann svo í ferðalög og ferðaðist um öll heimsins höf. Herbert var verkamaður alla tíð og vann ýmsa verkamannavinnu á vegum bæjarins hér í Hafnarfirði og hjá áhaldahúsi bæjarins nú síð- ustu árin. Víst er að það er sjónarsviptir að honum Hebba héðan af götum bæj- arins, götum sem hann þekkti svo vel og bærinn stendur að mínu mati í þakkarskuld við hann sem og aðra þá sem unnu hörðum hönd- um við að gera Hafnarfjörð að Hafnarfirði en þar tók hann Her- bert mjög virkan þátt. Hebbi! hafðu þökk fyrir skemmtilegar samverustundir á liðnum áram. Eg sakna þín héðan úr bænum okkar á þá ekki síst vegna þess sem þú gafst í bæjar- braginn. Ættingjum votta ég mína dýpstu samúð. Jón Gestur Ármannsson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ilagnarsson Meistaraflokkur - mótaröð STJÓRN BSÍ hefur ákveðið að hleypa af stokkunum Meistara- flokks-mótaröð. Þátttakan er að há- marki 30 sterk pör, sem verða valin af BSI. Frestur til að skrá sig renn- ur út föstudaginn 16. október kl. 17. Þátttökugjald er 10.000 kr. á mann fyrir öll mótin. Þátttökugjöld renna í verðlaunasjóð. Útreikningur verð- ur með Butler-fyrirkomulagi. Spiluð verða alls 300 spil en lágmarksspila- fjöldi á mann/par verður 210 spil. Varamannareglur eru frjálslegar að öðra leyti. Mótaröðin: Sunnudagur 25. október kl. 11.00 Sextíu spil Föstudagur 6. nóvember kl. 19.30 þrjátíu spil Föstudagur 20. nóvember kl. 19.30 Þrjátíu spil Sunnudagur 22. nóvember kl. 11.00 sextíu spil Sunnudagur 6. desember kl. 11.00 Sextíu spil Sunnudagur 13. desember kl. 11.00 Sextíu spil Skráning á skrifstofunni s. 587 9360 eða í tölvupósti is- bridge@islandia.is. íslandsmót í einmenningi 16.-17. október Sú breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi íslandsmóts í ein- menningi 1998, að spiluð verður ein lota á föstudagskvöld og tvær lotur á laugardeginum. Spilamennska hefst kl. 19 á fostudag, og kl. 11 á laugardag. Skráning í s. 587 9360 eða isbridge@islandia.is. Ársþing BSÍ Verður haldið í húsnæði Brids- sambandsins simnudaginn 18. okt. kl. 10. Fyrir þinginu liggja tillögur að breytingum á keppnisreglugerð- um og lagabreytingum. Búið er að senda út fundargögn og formenn fé- laganna minntir á að senda kjör- bréfin fax: 587 9361. Stjóm BSÍ hvetur öll bridsfélög á Islandi til að senda fulltrúa á þingið og taka þátt í stefnumótun bridshreyfingarinnar. Félag eldri borgara í Reykjavík Sl. mánudag mættu 22 pör og var spilaður Michell-tvímenningur. Hæsta skor í N/S: Rafn Kristjánsson - Júlíus Guðmundsson 269 Fróði Pálsson - Þórarinn Amason 236 Þorsteinn Sveinsson - Eggert Kristinsson 228 Hæsta skor í A/V: AlbertÞorsteinss.-AuðunnGuðmundss. 263 SoffiaTheodórsd.-BergljótRafnar 236 Viggó Nordquist - Tómas Jóhannsson 234 ATVINIMU- AUGLÝSINGAR Rafvirkjanemi Áhugasamur nemi óskast til vinnu sem fyrst. Vinsamlegast sendið upplýsingar um menntun og fyrri störf til afgreiðslu Mbl. merkt: „HT - 6426" fyrir 16. okt. 1998. Smiðir óskast Mark-Hús ehf. byggingaverktakar. Upplýsingar í símum 896 2282 og 896 0234. TILKYIMIMIIMGAR Hvað er dýrmætara en heilsan? Er líkami þinn að fá öll þau næringarefni og vítamín sem hann þarfnast? Ertu þú of Þung(ur), létt(ur) eða ertu eins og þú vilt vera nema átt við síþreytu, höfuðverk, þrekleysi eða einhverja leiðindakvilla að etja? Er ekki kominn tími til að huga að heilsunni og láta sér líða vel? Persónuleg ráðgjöf og stuðningur. Upplýsingar gefur Sigríður Lovísa í símum 557 6852 og 699 0900. BORQARLJÓS Opnunartími Mánudaga til miðvikudaga 9—18. Fimmtudaga 9—20. Föstudaga 9—18. Laugardaga 10—16. Sunnudaga 13—17. Ármúla 15. Handverksmarkaður Handverksmarkaður verður á Garðatorgi í dag, laugardaginn 10. október, frá kl. 10—18. Milli 60 og 70 aðilar sýna og selja muni sína. Kvenfélagskonur sjá um kaffisölu. IMAUOUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Hölkná, Skeggjastaðahreppi, þingl. eig. Marteinn Sveinsson, gerðar- beiðandi Tollstjóraskrifstofa, miðvikudaginn 14. október 1998 kl. 16.00. Lóð úr landi Saurbæjar I, Skeggjastaðahreppi, þingl. eig. Sigurjón Sigurðsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, miðvikudaginn 14. október 1998 kl. 17.00. Miðgarður 3a, Egilsstöðum, þingl. eig. Ágúst Ólafsson, gerðarþeiðandi Kringlan ehf., fjárfestingafélag, föstudaginn 16. október 1998 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 9. október 1998. ATVINNUHÚSNÆÐI Skeifan 4 Til sölu eða leigu 223 fm gott skrifstofu- og lagerhúsnæði. Ársalir ehf., fasteignamiðlun, símar 533 4200, 567 1325, 892 0667. Iðnaðar- og skrif- stofuhúsnæði til sölu Til sölu ca 1800 fm mjög gott húsnæði miðsvæðis í Rvík. Um langtímaleigu getur verið að ræða eða rýmingu fljótlega. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer í talhólf nr. 8831121. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Hafnfirðingar! Aðalfundur dýraverndunarfélags Hafnfirðinga verður haldinn laugardaginn 24. október kl. 14.00 í veitingahúsinu Gaflinum, Dalshrauni 13. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Konur — konur Fyrsti súpufundur vetrarins verður haldinn þriðjudaginn 13. október kl. 19.00 í fundarsalnum á Hverfisgötu 8—10. Fyrirlestur um gagnagrunninn. Samband alþýðuflokkskvenna. FÉLAGSSTARF Fundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi verður haldinn á Hótel Selfossi laugardaginn 17. október og hefst kl. 13. Dagskrá 1. Rætt um fyrirkomulag við gerð framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. 2. Friðrik Sophusson alþingismaður gerir grein fyrir tillögum nefndar um breytingar á kjör- dæmaskipan og kosningafyrirkomulagi. 3. Önnur mál. Fulltrúar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka með því virkan þátt í starfi flokksins og undirbúningi fyrir komandi þingkosningar. Stjómin. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF FERDAFÉLAG @ ÍSLANDS MORKINNI6 - SlMI 568-2533 Sunnudagsferðir 11. október Kl. 10.30 Ölkelduháls - Hró- mundartindur. Góð fjallganga. Kl. 13.00 Gönguferð um sel í Grafningi. Skemmtileg og fróð- leg ganga. Verð 1.500 kr. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Fyrsta myndakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 14. október kl. 20.30 í Mörkinni 6 (stóra sal). Skúli Gunnars- son og fl. sýna myndir úr ferðum sumarsins. Gerist fé- lagar og eignist árbókina 1998: Fjallajarðir og framaf- réttur Biskupsstungna. Dalvegi 24, Kópavogi. Almenn samkoma í dag kl. 14. Gestapredikari Óskar Sigurðsson. Allir hjartanlega velkomnir. ÝMISLEGT Ertu að fara til Ástralíu? Phil Thomas, 26 ára kokkur, vill eignast pennavinkonu sem er á leiðinni til Ástralíu í frí eða í vinnu, og vill eignast vin þar sem getur líka verið eins og leiðsögumaður. Hafið samband sem fyrst! Phil Thomas, Box 146, Esper- ance 6450, W.A Australia. Fax: 0061 8 90 715551, sími 0061 8 90 711827. Reflexology (viðbragðs) svæðameðferð Námskeið í Rvik. Dag-, kvöld- og helgarnám. 2—4 í einu. Fyrir fólk á öllum aldri. Fullt nám sem allir geta lært. Kennari Sigurður Guðleifsson, sími 587 1164. Reiki/heilun — námskeið 1. stig helgina 24. og 25. okt. 2. stig helgina 31. okt. og 1. nóv. Viðurkenndur reikimeistari, Sigurður Guðieifsson, sími 587 1164. www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.