Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 74
74 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens nata-pú-dA! ( £<s wTPfrt mer/AMn í rmm/ ez i bhca/z/- F£>A /HÁLHAl ruæ' Grettir Hundalíf 'O/ 'Risastomr mQnnxéx/. j&ninura/Uum kringj ( StiUiu þíg V AMbbc !þetfa var' ^e/ouojis c/raumur, O þcúb cru eJdcb tib neinarmannxtu^ '— ÍÉlSfe Vaknaðu! Jólasveinninn kom í gærkvöldi Aprílgabb! og skildi ekkert eftir handa þér! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Glaðningurinn Frá Sofusi Berthelsen: VIÐ hjónin erum á níræðisaldrí, ævilokin nálgast, við höfum átt far- sæla ævi, en stundað erfiðisvinnu og illa borgaða, þannig að það hefur sjaldan verið afgangur af laununum, en bjai’gast með nýtni þó. I rúm 60 ár höfum við greitt skatta í ríkissjóð af launum okkar, eflaust nokkrar milljónir í gegnum tíðina, þannig höfum við átt þátt í að byggja upp þetta þjóðfélag til betri hagsældar. Við hjónin höfum verið mjög kynsæl, eigum 77 afkomendur og sá hópur fer sífellt stækkandi. Af þessum stóra hópi eru 43 langafa- og langömmubörn. Það hefur verið okk- ur einstök ánægja að geta rétt þeim yngstu í þeim stóra hópi smájólagjöf, en eftir því sem hópurinn stækkar hefur það orðið erfiðara að eiga íyrir jólapökkunum, hversu spart sem við förum með ellilaunin og við veltum vöngum yfir hvort nokkur afgangur verði til að kaupa smájólagjafir handa yngstu afkomendunum þessi jól. En svo glaðnaði yfir okkur er við fréttum að ríkisstjórnin ætlaði að greiða desemberuppbót á ellilaun okkar, kannski mundi jólapökkunum þarna verða bjargað. Og svo barst okkur ellilaunaseðillinn 1. des. - jújú, mikil ósköp, uppbótin reyndist vera kr. 25.545 hjá okkur samanlagt, það væri kannski hægt að kaupa nokkuð af ódýrum leikföngum. En ænei, þegar ég athugaði ellilaunaseðilinn nánar sá ég að það var tekinn skatt- ur af þessari uppbót. Sameiginlegm- skattur hjá okkur er kr. 15.365. Þá er eftir af þessari margnefndu upp- bót kr. 10.180. Það fæst víst ekki mikið af leikföngum fyrh- þá upp- hæð, eða hvað? Erum við hjónin ekki búin að greiða nóg af sköttum á okkar löngu ævi? Er ekki í lagi að gefa okkur frí frá skattgreiðslu þessi fáu ár sem við eigum eftir að tóra? Er ekki óhætt að taka aðeins meira af sægreifunum og þeim fjármagnseigendum sem eru að kaupa ríkiseignir, og sleppa ellilífeyrisþegum í staðinn? Núverandi ríkisstjórn og einkum forsætisráðherra er að guma af góð- æri, rétt eins og góðærið sé þeim að þakka. Reyndar hef ég ekki orðið var við þetta blessaða góðæri, en ef það er til staðar er það ekki neinum mannlegum mætti að þakka heldur hefur forsjónin séð um góð aflabrögð á ýmsum fisktegundum og góðri sölu ásamt góðu verði. Eins hefur járn- blendið og álið skapað gott árferði sem við ellilífeyrisþegar og öryrkjar verðum ekki varir við. En það vantar ekki umhyggjutalið hjá öllum stjórn- málaflokkum og úrbætur okkur til handa, en minna verður um efndir. En þegar rennur af mér móður má ég ekki gleyma því þér að þakka Davíð góður að þessum krónum ég lengi bý. SOPUS BERTHELSEN, eldri, Hjallabraut 33, Hafnarfii'ði. Má þmgmaður haga sér eins og hænsni? Frá Baldri Gunnarssyni: Á SVIÐINU standa listamenn og bera fram allt það besta sem þeir eiga. Einum þeirra fatast flugið og hann hallar sér að elskhuga sínum sem hughreystir hann og kyssir. Er það ekki allt í lagi? Ekki finnst Árna Johnsen það. Ekki á þjóðhátíð. Þess vegna storm- ar hann á sviðið og meðreiðarsveinar hans stía elskendunum sundur með valdi og annar þeirra er leiddur á brott eins og bandingi. Af hverju? Af því elskendurnir eru tveir karlmenn. Ég held að fæstum finnist auðvelt að horfa á karlmenn sýna hvor öðr- um ástarhót. Flestir gera sér hins- vegar gi'ein fyiir því að þetta er þeirra eigið vandamál og forðast að yfirfæra það á viðkomandi elskendur. En ekki Arni Johnsen. Hann hefur forgöngu um að varpa mönnum á dyr af því þeir eru öðruvísi en hann sjálfur. Hann útskúfar fólki af því að það lætur í ljós tilfinningar sem hon- um eru ekki þóknanlegar. Þetta lýsh' þvílíkum sjálfbirgingi að það væri hlægilegt ef það væri ekki svona skítt. Einkum fyi'h' þá sem þurfa að gjalda þess. Sagt er um alþekkt fiðurfé að ef einhver á meðal þess skeri sig úr hópnum þá ráðist aðrir að honum og gangi af honum dauðum. Þegar svo- leiðis fuglar halda að þeir séu fallnir til forystu í lýðræðisþjóðfélagi þá segi ég nei. Ég ætlast til að stjórn- málamenn hagi sér betur en hænsni. BALDUR GUNNARSSON, rithöfundur. Arðbærasta fjárfesting'in Frá Sveini Indriðasyni: Á ÞESSUM síðustu og bestu tímum er mikið rætt um góða fjárfestingu og hámat'ksávöxtun. Þeir sem fjalla um heilsuhagfræði, hafa lengi vitað, að arðbærasta fjár- festingin, fyrir þjóðfélagið, er í end- urhæfingu og forvörnum gegn sjúk- dómum og slysum. Dæmi eru um, að slík fjárfesting skili sér 20-40 sinn- um aftur til þjóðfélagsins. Reykjalundur er eitt besta dæmið um slíka fjárfestingu, hérlendis og þó víðar væri leitað. Þetta kann þjóð- in að meta, eins og kom best í Ijós í þátttöku í landssöfnuninni síðastliðið haust. Sú söfnun er enn í gangi, svo ennþá er hægt að fjárfesta þar. Happdrætti SIBS hefrn' staðið undir uppbyggingunni á Reykjalundi í 50 ár. Með kaupum happdaættis- miða, styðja landsmenn enn frekai’ byggingu sundlaugar- og þjálfunar- húss, sem fyrirhugað er. Varla mun sú fjölskylda til í land- inu, að hún hafi ekki notið Reykja- lundar, beint eða óbeint. Þjóðin þarf að sjá til þess að Reykjalundur verði hér eftir sem hingað til endurhæfingarstofnun á heimsmælikvarða. SVEINN INDRIÐASON, Árskógum 8, Reykjavík. Allt efni sem birtist 1 Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.