Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MARS-TILBOÐ
á handlaugum
20% afsláttur
Samkomulag næst í viðræðum um framtfð Austur-Timor
Indónesar sam-
þykkja at-
kvæðagreiðslu
Sameinuðu þjóðunum, Dili. Reuters.
STJÓRN Indónesíu hefur sam-
þykkt að efnt verði til atkvæða-
greiðslu meðal íbúa Austur-Tímor
um hvort þeir vilji að landsvæðið
eigi að vera áfram hluti af
Indónesíu og fá víðtæk sjálfstjóm-
arréttindi. Verði tillögunni um
sjálfstjórn hafnað gæti það orðið
til þess að Austur-Tímor fengi
sjálfstæði. Samkomulagið um at-
kvæðagreiðsluna vakti þó ekki
mikinn fögnuð meðal íbúa Austur-
Tímor; viðbrögð aðskilnaðarsinna
voru varfærnisleg og stuðnings-
menn Indónesíustjórnar óttuðust
að atkvæðagreiðslan gæti kynt
undir átökum milli þessara stríð-
andi fylkinga.
Samkomulag náðist í meginat-
riðum um atkvæðagreiðsluna á
fundi utanríkisráðherra Indónesíu
og Portúgals á vegum Sameinuðu
þjóðanna í New York í fyrrakvöld.
Gert er ráð fyrir því að Sameinuðu
þjóðirnar skipuleggi atkvæða-
greiðsluna og að utanríkisráðherr-
amir komi aftur saman í apríl til
að ákveða endanlega hvernig
henni verði háttað.
„Ég efast ekki um að mörg
vandamál eru enn óleyst," sagði
Jamsheed Marker, milligöngu-
maður Sameinuðu þjóðanna í við-
ræðunum. „En ég tel að við höfum
tekið mjög, mjög stórt skref fram
á við og menn geti verið bjartsýnir
á að málið verði leyst.“
Ali Alatas, utanríkisráðherra
Indónesíu, hafði lýst því yfír að at-
kvæðagreiðslan kæmi ekki til
greina og samkomulagið kom því á
óvart.
Ottast blóðsúthellingar
Stjórn Indónesíu hefur boðist til
að veita Austur-Tímor sjálfstæði
verði sjálfstjórnartillögunni hafn-
að eins og búist er við. Jose
Ramos-Horta, útlægur leiðtogi að-
skilnaðarsinna, kvaðst sannfærður
um að 90% íbúanna myndu hafna
því að Austur-Tímor verði hluti af
Indónesíu ef vel yrði staðið að at-
kvæðagreiðslunni. Sameinuðu
þjóðimar yrðu að senda þangað
eftirlitsmenn og gæslulið til að
tryggja að Indónesar reyni ekki
að hafa áhrif á niðurstöðuna.
Indónesar yrðu einnig að kalla allt
herlið sitt á Austur-Tímor heim.
Xanana Gusmao, leiðtogi aust-
ur-tímorskra uppreisnamanna,
fagnaði samkomulaginu en sagði
að enn væri mjög óljóst hvernig
atkvæðagreiðslunni yrði háttað.
Tugir manna hafa fallið í átök-
um milli aðskilnaðarsinna og
stuðningsmanna Indónesíustjórn-
ar á Austur-Tímor síðustu mánuði.
Filomeno De Jesus Hornay, leið-
togi bandamanna Indónesíustjórn-
ar, sagði að atkvæðagreiðslan
gæti orðið til þess að átökin mögn-
uðust.
Austur-Tímor, sem er fyrrver- jk
andi nýlenda Portúgals, var inn- ij
limuð í Indónesíu með hervaldi ár- S
ið 1976 en Sameinuðu þjóðirnar W
hafa aldrei viðurkennt innlimun-
ina.
Vegghandlaug 45x35
Tilboðsverð 3.612,-
Vegghandlaug
50x39 tilb.verð 4.024,-
45x36 tilb.verð 3.942,-
Vegghandlaug 50x22
Tilboðsverð 2.795.-
S/ VATNS VIRKINN ehf
ftftn Ármúla 21, sími 532 2020
Milosevic vill að ÖSE framfylgi Kosovo-samkomulagi
Borðhandlaugar frá 5.588
Vegghandlaugar frá 2.795
Verðdæmi:
Borðhandlaug 56x43
Tilboðsverð 7.231.-
Port-au-Prince. The Daily Telegraph.
ÓGNARÖLD hefur gengið í garð á
ný á Haítí í Karíbahafínu. Eyja-
skeggjar hafa á liðnum mánuðum
mátt búa við stjórnleysi, og meiri
fátækt og ofbeldi en nokkru sinni
frá því að Bandaríkjastjórn kom
herstjórn Raoul Cedras, hershöfð-
ingja, frá árið 1994 og Jean-
Bertrand Aristide, lýðræðislega
kjörnum forseta landsins, aftur til
valda. Dauðasveitir Duvaliers ein-
ræðisherra, sem nefndar voru
Tonton Macoutes, hafa verið leyst-
ar upp en fyrrverandi liðsmenn
þeirra hafa haft ærinn starfa af
morðum og mannránum undanfarin
misseri.
Ríkisstjóm Haítí hefur verið
óstarfhæf í 18 mánuði og fjárlög
ekki verið samþykkt frá 1997.
Stjórnmál á eyjunni komust í sjálf-
heldu í júní 1997 er Rosny Smarth,
forsætisráðherra, sagði af sér.
Rene Preval, forseti, sem tók við að
Aristide árið 1995, tilkynnti íyrr í
vikunni um að samkomulag hefði
náðst við stjórnarandstöðuna um að
koma á fót kjörstjóm sem skipu-
leggja skyldi kosningar fyrir árs-
lok. Tilkynningin kemur í kjölfar
hótana frá Bandaríkjastjóm og
Sameinuðu þjóðunum um að stöðva
greiðslur alþjóðlegrar fjárhagsað-
stoðar til landsins. Aðeins bjartsýn-
ustu menn búast við því að loforð
forsetans um að halda kosningai'
muni slökkva elda vargaldarinnar
sem geisað hefur á Haítí undan-
farna mánuði.
Ringulreið eða
málamiðlun
Systir Prevals forseta var særð
þremur skotsáram og bílstjóri
hennar myrtur í janúar sl. Jean-
Yvon-Toussaint, öldungadeildar-
þingmaður og stjórnarandstæðing-
ur, var myrtur á heimili sínu í þess-
um mánuði. Morðingjar hans hafa
ekki náðst en böndin berast að
stuðningsmönnum forsetans.
Mischa Gaillard, leiðtogi Lýðræðis-
hreyfingarinnar og andstæðingur
Prevals, brást við tíðindum af
morði Toussaints með orðunum:
„Kostir okkar era skýrir, annað-
hvort mun ríkja ringulreið ellegar
málum verður miðlað."
Rætur deilnanna á milli Prevals
forseta og andstæðinga hans verða
ekki nema að litlu leyti raktar til
mismunandi stjómmálaskoðana,
heldur ráða persónulegar væringar
för. Stuðningsmenn forsetans segja
kjarnann í hópi andstæðinga hans
vera fáar vellauðugar fjölskyldur,
sem bindist Bandaríkjunum sterk-
um böndum og hafí gegnt lykilhlut-
verki í þjóðlífinu þar til Aristide
komst til valda árið 1995. Andstæð-
ingar Prevals forseta segja hann
hins vegar vera óhæfan og spilltan
stjómmálamann.
Aristide er vinsæll meðal alþýðu
manna á Haítí. Hann mátti ekki
bjóða sig aftur fram til forseta árið
1995 vegna reglna sem banna að
menn sitji á forsetastóli í tvö kjör-
tímabil í röð, en talið er víst að
hann myndi sigra byði hann sig
fram í forsetaskosningunum árið
2000. Eyjaskeggjar hafa nefnt
ástand undanfarinna missera í
stjórnmálum Haítí „maronage" upp
á kreólamál sitt, sem kalla mætti
lausnafælni, þ.e.a.s. tilhneigingu að
horfast ekki í augu við þann vanda
sem við Haítí-búum blasir. En nú
er fólki nóg boðið og mótmæli hafa
verið tíð í höfuðborginni Port-au-
Prince undanfarnar vikur. Kennar-
ar hafa beitt verkfallsvopninu og
skólar verið lokaðir vikum saman.
Eiturlyfjavandinnn fer einnig
vaxandi á Haítí, en eyjan er í alfar-
arleið smyglara sem flytja eiturlyf
frá Suðm--Ameríku til Bandarílg'-
anna. Oft rekur heilar tunnur af
kókaíni, sem fallið hafa af hraðbát-
um í smyglferðum á Karíbahafi, að
ströndum Haítí. Ofbeldisaldan sem
gengið hefur yfír Haítí á liðnum
mánuðum er ekki síður rakin til eit-
urlyfjaverslunarinnar og glæpanna
sem henni fylgir, en stjórnleysis yf-
irvalda.
ERLENT
Reuters
ÖRYGGISLÖGREGLA í Port-au-Prince stendur andspænis námsmönnum, sem mótmæltu verkfalli kennara.
Ivanovvarð ekki
ágengt í Belgrad
Belgrad, Pristina. Reuters, Daily Telegraph.
FUNDUR ígors ívanovs, utanrík-
isráðherra Rússlands, með Slobod-
an Milosevic, forseta Júgóslavíu, í
Belgrad í gær breytti engu um af-
stöðu forsetans til fyrirliggjandi
friðarsamkomulags um Kosovo-
hérað. „Stjómvöld í Belgrad hafna
algjörlega vera erlends her- eða
lögregluliðs í Kosovo,“ sagði
Ivanov í viðtali við fréttastofuna It-
ar-tass. George Papandreou, utan-
ríkisráðhena Grikklands, sat
einnig fundinn. Hann kvað Serba
vera þeirrar skoðunar að friðar-
samkomulagi mætti framfylgja
með því að fjölga eftirlitsmönnum
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu í héraðinu. Milosevic sagð-
ist þó mundu senda samningamenn
sína til Frakklands á mánudag, en
þá hefst önnur lota í samningavið-
ræðum á milli stjórnvalda í
Belgrad og leiðtoga Kosovo-Al-
bana.
Öryggissveitir Serba fóra um
héraðið í gær, líkt og undanfama
daga, stökktu fólki á flótta, lögðu
eld að húsum og drápu búfénað.
Hjálparstarfsmenn í Kosovo segja
að ekki sé vitað um afdrif a.m.k.
4.000 manna sem stökkt hefur ver-
ið á flótta vegna átakanna í
Kosovo-héraði í þessari viku.
Hashim Thaqi, leiðtogi stjóm-
málaarms Frelsishers Kosovo
(UCK), sneri aftur til Kosovo í gær
en ekkert hafði bólað á honum frá
því að leiðtogar Kosovo-Albana
hétu því að undirrita friðarsam-
komulag Tengslahóps stóveldanna
í byijun vikunnar. I yfírlýsingu frá
UCK, sem birt var í gær, var látið
að því liggja að samkomulagið yrði
undirritað þrátt fyrir ágallana sem
á því væru, að því er kom fram í
fréttaskeyti Associated Press. Þá
sagði Ibrahim Rugova, einn leið-
toga Kosovo-Albana, allt til reiðu
að undirrita samkomulagið: „Við
foram til Parísar og skrifum undir.
Samningurinn liggur á boi-ðinu.“
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
hefur samþykkt að senda banda-
rískt herlið til Kosovo, gerist þess
þörf, en fyrirliggjandi samkomulag
gerir ráð fyrir að 28.000 hermenn
frá NATO-ríkjum framfylgi því.
Samkomulag
um minni olíu-
framleiðslu
Haag. Reuters.
SAMKOMULAG tókst á fundi
olíuríkja í Haag í gær um að
draga úr íramleiðslu olíu, sem
nemur tveimur milljónum tunna
á dag, í því augnamiði að hækka
verð hennar á heimsmai’kaði.
Olíuverð hækkaði strax í 13 doll-
£ira tunnan í gær, sem er hæsta
verð í fímm mánuði. Olíumála-
ráðheiTa Sádí-Arabíu sagði von-
ir standa til þess að verð á olíu-
fatinu hækkaði í 17-19 dollara
fyrir mitt ár, eða jafnvirði 1.230-
1.370 ísl. króna, auk þess að sem
hægt væri að selja allai’ fyrir-
liggjandi birgðir.
Ógnaröld
enn á ný
á Haítí