Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Þríheilagt ER ÉG á dögunum rakst inn á heimasíðu menntamálaráðherra var einkum þrennt er ég staðnæmdist við, en sammerkt með þessum þremur hugleiðingum ráðherrans var að þær lutu allar að einkavæð- ingu en þó hver með sínum hætti. I fyrsta lagi var þar lofað hve sala Skólavörubúðar- innar hafi gengið frið- samlega fyrir sig. Ekki sé ég hverjum sú sala hefði átt að valda geðs- hræringu því hún er tæpast umtalsverð stærð á útsölumarkaði ríkisstjórnarinnar um þessar mund- ir. Þegar sveitarfélögin hafa nú tek- ið við rekstri grunnskólans er þeim efalaust sama hvort þau greiða til einkaaðila, vegna búnaðar skóla, svipaða upphæð og þau áður greiddu til ríkisins, geti það orðið til þess að menn í menntamálaráðu- neytinu sofi værar um nætur. títboð á gerð námsefnis var og verið hafði í ára- tugi - stundum var ekki einu sinni veitt fé til slíks. Fjárhæð sú er hér er ætluð til námsefnis- gerðar hefur lengst af verið u.þ.b. þrisvar sinnum lægri á hvern nemanda en á hinum Norðurlöndum. Ég efa ekki að ef við þreföld- uðum fé til námsefnis- gerðar gætum við framleitt a.m.k. eins fjölbreytt efni og þar er gert. Hjá Námsgagna- stofnun er samankomin mikil reynsla í gerð námsefnis og þar starfa sérfræðing- ar sem leggja sig fram af einstakri óséi’plægni þrátt fyrir erfiðar að- stæður. Augljóst er að markvisst Stjórnmál Sammerkt með þessum þrem hugleiðingum Sigríður Jóhannesdóttir En merkilegri tíðindi mátti finna á heimasíðunni. Ráðherra vitnaði í leiðara Dag- blaðsins í því skyni að setja ofan í við leiðarahöfund Morgunblaðsins. Tilvitnunin var svohijóðandi: Menntamálaráðherra hefur jafn- framt lagt á það áherslu við Náms- gagnastofnun að námsefnisgerð verði í auknum mæli boðin út.“ Og síðan hélt leiðari Dagblaðsins áfram: Þetta er mikilvæg yfirlýsing og veit vonandi á betri tíma. Með henni er rudd leið fyrir einkaaðila til að hasla sér völl við gerð náms- efnis fyrir grunnskóla með líkum hætti og fyrir framhaldsskóla. Stað- reyndin er sú að Námsgagnastofn- un í núverandi mynd er úrelt fyrir- bæri sem kemur í veg fyrir blóm- lega samkeppni um námsefni ...“ Fyrst gefur menntamálaráðhen'a út yfirlýsingu, því næst vitnar Oli Bjöm Kárason í yfirlýsinguna í blaði sínu og auglýsir skylduga aðdáun á ráðherranum; þessu næst vitnar ráð- herrann með mikilli velþóknun í um- fjöllun ritstjórans. Það fer ekki hjá því að manni komi í hug lýsingin á þeim fóstbræðrum Þorgeiri Hávarðs- syni og Þormóði Kolbrúnarskáldi er bjuggu að þeirri aðdáun hvor á öðr- um er á skorti hjá almúganum. En að því slepptu koma mér sem fyrrver- andi stjórnarmanni í Námsgagna- stofnun nokkuð á óvart tilmæli Bjöms Bjamasonar um að bjóða út námsefnisgerð í auknum mæli. Ég minnist þess gjörla að hér á ámm áður, þegar búið var að ákveða upphæð þá sem Námsgagnastofnun var ætluð, tóku við fundir margir þar á bæ því menn neyddust til að skera niður metnaðarfullar hug- myndir um nýtt námsefni, síðan var skorin niður nauðsynleg endurnýjun og loks sátum við uppi með það að ekki var veitt fé til annars en þess að viðhalda því námsefni sem fyrir Upplýsingakerfi KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun ráðherrans var, segir Sigríður Jóhannsdótt- ir, að þær lutu allar að einkavæðingu, en þó hver með sínum hætti. hefur verið unnið að því að fjársvelta þá stofnun og með þeim hætti að skapa vantraust á henni hjá þeim er illa þekkja til. Þetta er raunar þekkt aðferð. Þegar ríkisfyrirtæki standa sig ekki nægilega vel vegna fjárskorts þá er hægur vandi og vinsæll að láta einkageirann leysa vandann, fyrir margfalda þá upphæð sem áður var varið til verkefnisins. Sveitarfélög munu því greiða námsgögn hærra verði því þrátt fyr- ir trúnaðartraust til útboða og einka- aðila dettur engum í hug að forlög hér muni framleiða námsgögn jafn- góð og hjá nágrönnum okkar fyrir þriðjung af því verði er þar tíðkast. Því er það að menntamálaráðu- neytið ætlar í ár að veita til náms- efnisgerðar 40 milljónir umfram það sem áætlað var á fjárlögum og er slík ákvörðun að sjálfsögðu þakkar- verð þótt örlætið sé kannski ekki umtalsvert þar sem sala Skólavöru- búðarinnar skilaði í ríkiskassann tæpum 37 milljónum. Einkaframkvæmd skóflustunga Að þessu sinni var þríheilagt hjá menntamálaráðherra því hann lét þess getið að hann hefði nú tekið fyrstu skóflustunguna að Iðnskólan- um í Hafnarfirði en skóli sá verður rekinn og byggður sem einkafram- kvæmd. í tilefni af því, að við Drífa Snæ- dal höfðum haft nokkrar efasemdir um ágæti þeirrar bókhaldsbrellu kemst ráðherra að þeirri niðurstöðu að við munum vera í einhverjum dularfullum félagsskap sem sé á móti litasjónvarpi. Þetta er óneitanlega nokkuð frumleg hugmynd en, þótt eins og alþjóð veit, sé það siður mennta- málaráðherra að sitja á síðkvöldum í bláu skini tölvunnar og skrásetja hugleiðingar sínar um lífið í landinu og þó einkum um afrek sín frá degi til dags, sem er að sjálfsögðu til hinnar mestu fyrirmyndar, þá get ég ekki að því gert að finnast um- rædd síða að þessu sinni vera að mestu í sauðalitunum. Höfundur er alþingismaður. Hvernig væri að deila draumnum með öðrum? Hringdu Stanislas Bohic • Landslagsarkitekt • ( 898 4332 Skipulag á miðhálendinu ÞEGAR aðliggjandi sveitarfélögunum var falið að annast gerð svæðis-, aðal- og deiliskipulagáætlunar á miðhálendinu komu upp hörð mótmæli af hálfu stjórnarandstöð- unnar svo og fjöl- margra samtaka um náttúruvernd og úti- vist. Mótmælin byggð- ust m.a. á þeim sjónar- miðum að ekki væri rétt að Alþingi fæli öðrum vald til skipu- lags á miðhálendinu áð- ur en það hefði í meg- indráttum mótað stefnu og tekið bind- andi ákvarðanir um meðferð þessa víðfeðma svæðis og hagnýtingu þess. Það jafngilti því að fela öðrum vald til stefnumótunar í nokkrum stærstu málum þjóðarinnar, s.s. stefnumörkun um sjálfbæra þróun fyrir stóran hluta landsins, og stefnumörkun í umhverfis- og orku- málum, iðnaði og ferðaþjónustu, í þessu tilviki lægra settu stjómvaldi. Þá töldum við mikilvægt að tryggja samræmt skipulag sem byggðist á heildarsýn en það eiga hin ólíku sveitarfélög erfitt með að tryggja. Því var lagt til að miðhálendið yi'ði gert að sérstöku stjórnsýslusvæði sem færi með skipulags- og bygg- ingarmál. Sérstakt umhverfis- og auð- lindaskipulag á hálendinu Við í Samfylkingunni teljum að sjónarmiðin hér að ofan eigi enn við. Það er mikilvægt að allur almenn- ingur á Islandi komi að stefnumót- un í umhverfis- og orkumálum, iðn- aði og ferðaþjónustu á öræfum landsins. Þetta eru helstu málefni þjóðarinnar og þau taka til landsins alls. Þá er og nauðsynlegt að skipulagið byggist á heildarsýn svo að gætt verði samræmis. Því leggur Samfylkingin til að komið verði á sam- ræmdu umhverfis- og auðlindaskipulagi á Is- landi sem nær til mið- hálendisins. Umhverf- is- og auðlindaskipu- lagið yrði á stjórn- sýslustigi ríkis og unn- ið af stofnunum þess. Sveitarfélögin væru bundin af því. I um- hverfis- og auðlinda- skipulagi yrði útfærð stefna stjórnvalda sem tæki til stærstu þátta í nýtingu lands og samþættingar áætlana um land- Hálendið Það er mikilvægt, segir Rannveig Guðmunds- dóttir, að allur almenn- ---------------------- ingur á Islandi komi að stefnumótun í umhverf- is- og orkumálum, iðn- aði og ferðaþjónustu á öræfum landsins. notkun og landnýtingu. Þar yrði fjallað um samgöngur, fjarskipti, orkumannvirki, náttúruvernd, varð- veislu sögulegra minja og landnotk- un í þágu atvinnuvega og byggðar í meginatriðum. Rannveig Guðmundsdóttir Við erum sjálfbjarga 30. MARS sl. var ársfundur Seðlabank- ans. Þar var greint ít- arlega frá efnahagsþró- un liðins árs. í stuttu máli má segja að okkur hafi gengið vel 1 efna- hagslegu tilliti og út- koma liðins árs er mjög mikil viðurkenning á farsælum störfum stjómvalda. Árið 1998 var þriðja árið í röð þar sem hag- vöxtur á íslandi var meiri en 5% en það er einstakt meðal iðnríkja. I þeim löndum Evrópu- sambandsins sem eru aðilar að myntbanda- laginu var á sama tíma hagvöxtur- inn 2,9% og í Bretlandi 2,5%. Kaupmáttur ráðstöfunartekna óx á sl. ári um 9% og hefur á kjörtíma- bilinu vaxið í kringum 25% að með- altali. Þrátt fyrir þessa miklu kaup- máttaraukningu hækkaði verðbólga innan við 2% á árinu 1998 og á þessu ári spáir Seðlabankinn 1,9% verðbólgu milli ára. Atvinnuleysi er næstum horfið. Það er nú 2% en var um 7% á út- mánuðum 1995. Ríkissjóður er rek- inn með afgangi og ríkið lækkar skuldir sínar um 30 milljarða á ár- unum 1998 og 1999. Önnur þróun í EB Á sama tíma og þessi glæsilega þróun verður hér á landi gengur flest í öf- uga átt í Evrópusam- bandinu. Þar er mikið og viðvarandi atvinnu- leysi, hagvöxtur miklu lægri og kaupmáttar- aukning miklu minni en hér. Þess vegna skýtur það skökku við þegar sumir hér á landi eru ennþá að gera því skóna að það gæti hentað okkur ís- lendingum að tengjast mynt Evrópu eða jafn- vel ganga í Evrópu- sambandið. Reynsla undanfarinna fjögurra ára hefur sannað það rækilega að Islandi er betur borgið utan Evrópusaambandsins en innan þess. Svo fremi að stjórnvöld á Is- landi kunni fótum sínum forráð þurfum við engu að kvíða. Stjórn fiskveiða hefur í stórum dráttum tekist vel og flestir stofnar nytjafíska gefa þjóðarbúinu aukinn arð. Eign fslands ekki EB Lögum samkvæmt eru fiskistofn- ar á Islandsmiðum sameign þjóðar- innar. Það er að segja félagsleg eign íslendinga sem þjóðar, ekki eign út- lendinga. Reynt hefur verið í seinni tíð að snúa út úr þessu lagaákvæði og leggja þá merkingu í að hver og einn íslenskur ríkisborgari eigi Páll Pétursson Skipulagsmál á hálendinu í uppnámi Samvinnunefnd miðhálendisins sem nú hefur verið ákveðið að setja á laggirnar er ekki í stakk búin til að tryggja að skipulagið endur- spegli stefnumið stjórnvalda á við- komandi sviðum eða að gætt verði samræmis við skipulagningu miðhá- lendisins. I fyrsta lagi takmarkast umboð og starfssvið nefndarinnar við skipulagstillögur eldri sam- vinnunefndar. En í þeim fjölda um- sagna sem bárust um þær tillögur komu fram aivarlegar athugasemd- ir um að í þeim væri, í veigamiklum atriðum, ekki tekið tillit til þeirrar stefnumörkunar sem þegar hefði verið unnin. Þess í stað væru þar forsendur um vægi einstakra sjón- armiða sem sumar gengju þvert á lög og stefnu stjórnvalda. Ekki verður séð hvernig samvinnunefnd- in geti tryggt samfellu og samræmi í skipulagi miðhálendisins a.m.k. ekki gegn vilja einstakra sveitar- stjórna sem fara með aðalskipulag í sínu sveitarfélagi. Samvinnunefndin hefur einfaldlega ekki vald til þess. Skipulag til framtíðar Nauðsynlegt er að koma á skipu- lagi sem er á stjómsýslustigi rflds. Við teljum rétt að láta skipulagið ná fyrst til hálendisins enda er ágrein- ingur mestur í samfélaginu í tengsl- um við skipulagsmál á miðhálendinu. Næsta ski-ef yrði síðan að láta þetta samræmda umhverfis- og auðlinda- skipulag ná til Iandsins alls. Með sér- stöku auðlinda- og umhverfisskipu- lagi verðm- mótaður gi'ófur skipu- lagsrammi byggður á stefnumótun í skipulagi og meðferð helstu sameig- inlegu auðlinda þjóðarinnar svo og umferð og varðveislu viðkvæmra svæða jafnt í byggð sem óbyggðum. Þetta skipulag varðar því markmið ríkisvaldsins og framtíðarnotkun landsins og gæða þess. Sveitarfélög- in halda eftir sem áður aðal-, svæða-, og deiliskipulagsrétti sínum. Samfylkingin leggur til að komið verði á samræmdu umhverfis- og auðlindaskipulagi á miðhálendinu sem yrði á stjórnsýslustigi ríkis og unnið af stofnunum þess. Höfundur er alþingismaður. ákveðinn hluta af fiskistofnunum. Það er alrangt og var glöggt skýrt í greinargerð með lagafrumvarpinu er hugtakið „sameign þjóðarinnar“ var fyrst lögtekið. Það væri glapræði að fá Evrópusambandinu þessa „sameign þjóðarinnar" til um- ráða. Sá draumur er fjarlægur að Efnahagsþróun Okkur hefur gengið vel í efnahagslegu tilliti, segir Páll Pétursson, og útkoma liðins árs er mjög mikil viður- kenning á farsælum störfum stjórnvalda. Evrópusambandið féllist á einhvern tímann í framtíðinni að láta ein- hverjum tilteknum ríkjum banda- lagsins eftir stjórn ákveðinna haf- svæða og einkanýtingu þeirra. Fjár- kúgun Spánverja á hendur ríkja EES um framlög í þróunarsjóð þótt samningar þar um séu útrunnir benda ekki til neinnar rausnar frá þeim eða bandalaginu. Stærsta hindrunin Þótt yfirráð yfir auðlindum þjóð- arinnar séu Islendingum mjög mik- ilvæg er þó hin stjórnarfarslega hlið aðildar að EB miklu hættulegri. Ef íslendingar játast að fullu undir hið yfirþjóðlega vald í Brussel biði okk- ar ekki björt framtíð. íslendingar þurfa öðru fremur að kunna fótum sínum forráð í stjóm- arfarslegum og efnahagslegum efn- um. Þá munum við verða áfram sjálfbjarga. Höfundur cr fdiagsmálaráðhcrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.