Morgunblaðið - 15.04.1999, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 15.04.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 33 LISTIR Lúðrahljóm- ur í Seltjarn- arneskirkju LÚÐRASVEIT verkalýðsins heldur vortónleika í Seltjamar- neskii'kju laugardaginn 17. apríl kl. ;4.30. Á efnisskránni eru m.a. Rímnadanslög Op. 11, no. 4 eftir Jón Leifs í útsetningu Ellerts Karlssonar, Pannonische Rapsodie eftir Jeno Takács í út- setningu Armin Suppan, Svein- hildur Torfadóttii- leikur einleik á klarinett, Suite of unity eftir Henk Van Lijnschooten, Söngur bátsmannanna á Volgu eftir Igor Stravinsky í útsetningu Cai'ls Simpsons, Suite Arctica eftii' Páll P. Pálsson í útsetningu Roars Kvam og Dance Macabre eftir Saint Saéns. Alls leika um 40 hljóðfæra- leikarar með lúðrasveitinni. Stjómandi er Tryggvi M. Bald- vinsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Þrjú Akur- eyrarskáld lesa í Gerð- arsafni UPPLESTUR verður í kaffi- stofu Gerðarsafns, Listasafni Kópavogs, í dag, fimmtudag, kl. 17. Akureyrarskáldin Aðal- steinn Svanur Sigfússon, Jón Erlendsson og Erlingm' Sigui'ð- arson lesa úr verkum sínum. Upplesturinn er á vegum Rit- listarhóps Kópavogs og er að- gangur ókeypis. Englendingur í útlöndum MYJVDLIST Listasafn fslainls LJÓSMYNDIR JANIETA EYRE Safnið er opið frá kl. 10-18 alla daga nema mánudaga. Aðgangseyrir er 300 kr. Sýningin stendur til 18. apríl. HIN uppstillta ljósmynd, Ijós- myndin sem augnabliksinnsetning, nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir, enda er með henni fundin leið til að virkja í myndlist þann undarlega veraleikasveim sem nú á dögum virðist vera undirstaða sjálfsskilnings okkar og heims- myndar. Þar ægir öllu saman, sög- um, fjöldamenningu og fræðum sem oftar en ekki virðast hafa það helsta markmið að ragla og flækja allt sem tekið er til umfjöllunar. Hin upp- stillta ljósmynd, eins og henni er beitt af listamönnum samtímans, gerir okkur kleift að fanga að minnsta kosti eitt varanlegt augna- blik úr sveimnum, að búa til úr því ósamstæða hráefni sem veruleiki okkar er orðinn eina haldbæra táknmyndin í einu, eitthvað sem skoða má og túlka án þess að það hlaupi frá manni um leið eins og sjónvarpsfrétt eða vakur forsíðufoli. A þessu sviði myndlistarinnar vöktu nokkrir listamenn mikla at- hygli á síðasta áratug og eru sumir þeirra orðnir með þekktustu alþjóð- legu listamönnum á voram tímum; þar nægir að nefna Cindy Sherman, Sharon Lockhart, Tracey Moffat og Joel Peter Witkin. A allra síðustu árum hafa síðan eins og gengur ótalmargir yngri listamenn orðið til að fara í spor undanfaranna svo heita má að þetta listform sé orðið allt að því ráðandi í sýningarsölum stórborganna. I mörgum tilfellum er auðvitað um hálfmisheppnaðar eftirlíkingar að ræða þar sem hug- myndasnauður byrjandi reynir að eigna sér eitthvert brot af því sem hann sér að gengur í þá sem hann sjálfur vill ganga í augun á. En nokkrir af þessari yngri kynslóð ná þó að brjótast fram úr eftiröpuninni og skapa verk sem á einhvern hátt era einlæg og hafa til að bera þá dýpt í framsetningu og hugsun sem einkennir gott listaverk. Janieta Eyre kýs að vera sín eig- in fyrirsæta, líkt og Cindy Sherm- an, en ólíkt henni vinnur Janieta ekki með ímyndir sem gripnar eru úr fjöldamenningu kvikmyndanna eða klámiðnaðarins, heldur með þemu sem lúta að hennar eigin sögu og bakgrunni. Janieta er ensk þótt móðir hennar sé reyndar hollensk og hún býr nú í Kanada. Þemun sem hún vinnur með eru hinar ýmsu undarlegu fordómamyndir sem gerðar hafa verið af enskum konum gegnum tíðina, einkum ímynd hinn- ar sérvitru eða jafnvel vitgrönnu ensku konu í öllum þeim undarlegu hlutverkum sem henni eru eignuð. 1 þessu felst í senn húmorísk ádeila á fordómamyndir samtíðarinnar og fyrri ára, og óvægin sjálfsskoðun sem Janieta undirstrikar með tví að tvöfalda sig f myndunum: Mynd hennar kemur ávallt fyrir tvisvar í hverju verki og þannig má segja að Karlaraddir í Dölum og Húnavatnssýslum KARLAKÓR Keflavíkur heldur í tónleikaferð um Dali og Húnavatns; sýslur dagana 16. og 17. apríl. í Búðardal syngur kórinn í Dalabúð á morgun, fóstudag, kl. 20.30 og í Blönduóskirkju laugardaginn 17. apríl kl. 14. Þá mun kórinn einnig syngja í félagsheimilinu á Hvamms- tanga ásamt Karlakórnum Lóu- þrælum kl. 17 sama dag. A tónleikunum syngur kórinn ís- lensk og erlend lög, m.a. hefðbundin Nemenda- frumflutning- ur í Fella- og Hólakirkju TÓNLEIKAR tónfræðideildar Tón- listarskólans í Reykjavík verða haldnir í Fella- og Hólakirkju á morgun, föstudag kl. 20.30. Frumflutt verða tólf verk eftir nemendur deildarinnar, en þeir eru Davíð B. Franzson, Gunnar Andre- as Kristinsson, Haraldur V. Svein- bjömsson, Hlynur Aðils Vilmars- son, Hugi Guðmundsson, Stefán Arason, Þóra Marteinsdóttir og Ör- lygur Benediktsson. karlakóralög, óperukóra og dægur- lög. Stjórnandi kórsins er Vilberg Viggósson, en hann hefur stjórnað kórnum undanfarin sex ár. Eigin- kona hans, Ágot Joó, hefur verið undirleikari kórsins frá sama tíma. Annan undirleik annast Ásgeir Gunnarsson á harmonikku og Þórólfur Þórsson á bassa. Einsöng með kórnum syngur Steinn Erl- ingsson bariton. Karlakór Keflavíkur var stofnað- ur 1. desember 1953, og hefur starf- að óslitið síðan. Á þessum tíma hef- ur kórinn sungið víða um land og farið í tónleikaferð til sjö landa, bæði austan- og vestanhafs. Árið 1981 gaf kórinn út hljómplötu og ár- ið 1996 gaf kórinn út hljómdiskinn Suðurnesjamenn. Bandarískur listamaður í Ganginum BANDARÍSKI listamaðurinn Jim Butler opnar sýningu sína í Ganginum, Rekagranda 8, kl. 17 sunnudaginn 17. apríl. Á sýningunni era málverk og vatnslitamyndir sem sækja upprana sinn í raunsæishefð- ina í málaralistinni. Myndirnar eru eins konai' uppstillingar í hefðbundinni merkingu en vegna vals og ásigkomulags hlutanna fá þær nýja merk- ingu, e.t.v. uppblásinn plast- sebrahestur sem loftið hefur lekið úr og hann lyppast sam- an í eins konar formleysis- hrúgald, segir í fréttatilkynn- ingu. Sýningin mun standa fram eftir sumri. EITT af verkunum á sýningu Janietu Eyre í Listasafni íslands. hún verði sinn eigin tvífari. Um leið verður áhorfandinn að spyi-ja sig hver hin raunveralega Janieta sé: Svarið við því er greinilega í upp- lausn og því er yfir myndum hennar viss örvæntingarblær sem hver áhorfandi skynjar. Þegar við reyn- um að nálgast Janietu sjáum við að- eins spegilmynd hennar, mýtur og fyrirframgefnar hugmyndir. Hugs- anlega hefur dvöl hennar í Kanada ýtt undir það að hún vinni með ímyndanir af þessu tagi; sá sem býr í útlöndum þarf sífellt að horfast í augu við fordómamyndir. En þegar farið er að grafa ofan í samhengi sjálfsins og hugmynda þeirra sem á mann horfa verður veröldin alltaf dálítið undarleg og ógvekjandi. Eins og Janieta kemst maður að því að maður er Iíklega alltaf í útlönd- um. Jón Proppé Terry Eagleton með óvenjulega bók NÝJASTA bók hins þekkta bókmenntafræðings Terrys Eagletons er ekki ritgerðasafn þar sem lagt er út frá flóknum kenningum bókmenntafræð- innar, eða rætt um sjálfsmynd þjóða og annarra hópa líkt og í fyrri verkum hans. Þvert á móti hefur Eagleton, sem er prófessor í enskum bókmennt- um við Oxford-háskóla, tekist það verk á hendur að skrifa ferðahandbók um írland og þjóðina sem þar býr, svo und- arlega sem það annars hljóm- ar. Bókin, sem heitir „The Truth about the Irish“, kom út fyrir nokkrum vikum og dálkahöfundurinn Fintan O’Toole segir í ritdómi í The Irish Times að með bakgrunn Eagletons í huga búist lesand- inn á hverri síðu við því að verða var við eitthvert lævíst marxískt samsæri höfundarins gegn ferðamannaiðnaðinuin, einu helsta vígi heimsvalda- stefnusinna í nútímanum. A daginn komi hins vegar að bók Eagletons sé nokkuð venjuleg ferðahandbók. O’Toole segir engu að síður skína í gegn að fjölhæfur höf- undur sé hér að verki, athuga- semdir prófessorsins séu oft á tíðum snjallar og fyndnar og gefí gamansama en raunsanna mynd af íbúum eyjunnar grænu. ASTMAij! Öndunarmælingar á staðnum Sérfræðingar veita upplýsingar um astma og notkun allra helstu astmalyfja í dag í Lyfju Lágmúla frá kl 1 3-1 8. Kjörið tækifæri tii að fræðast betur um astma, astmalyf og rétta notkun lyfjaformanna. GlaxoWellcome * LYFJA - Lyf á lágmarksvcrði Lyfja Lágmúla, sími 533 2300
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.