Morgunblaðið - 21.04.1999, Side 20

Morgunblaðið - 21.04.1999, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Gunnar Svavarsson ráðinn forstjóri Sólumiðstödvar hraðfrystihúsanna hf. á stjórnarfundi í gær. „Róttækt og- stórt verkefni“ Morgunblaðið/Halldór Gunnar Svavarsson, nýráðinn forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf., ásamt Róberti Guðfinnssyni, sljórnarformaimi SH, að nýloknum stjórn- arfundi í félaginu þar sem gengið var frá ráðningu Gunnars. GUNNAR Svavarsson, forstjóri Hampiðjunnar, var ráðinn forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf. á fundi stjómar SH sem haldinn var í gær. Gunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að hvað sig varðaði þá hefði hann fyrst haft pata af því að rætt væri um hann sem næsta for- stjóra SH að afloknum stjórnarfundi SH síðastliðinn fimmtudag. Hann sagði að ekki væri komin dagsetning á það hvenær hann tæki við nýja starfinu, en í samráði við stjómar- formann Hampiðjunnar myndi hann skilja við starf sitt þar í því ástandi sem hann yrði beðinn um. „Ég á þó von á að þessi störf muni skarast eitthvað þannig að ég komi að hluta til mjög fljótlega inn í nýja starfið. Stjóm SH er búin að leggja upp ramma að töluvert mikið breyttu félagi og það er auðvitað framhaldið núna að fylla inn í hann og laga að því sem verða skal. Það er auðvitað mjög róttækt og stórt verk- efni, en þar hefur maður fullt af góð- um mönnum sem þekkja þetta út í ystu æsar og munu verða að vinna í því með mér,“ sagði Gunnar. Fyrir hönd Hampiðjunnar hefur Gunnar setið í stjórn Granda hf. og á vegum Granda hefur hann átt sæti í stjórn Þormóðs ramma-Sæbergs. Sagðist hann hér með hljóta að fara úr stjórnum beggja þessara fyrir- tækja. Áhugamálið að styrkja útrásarstarfsemi Gunnar er 47 ára gamall og út- skrifaðist hann sem viðskiptafræð- ingur frá Háskóla íslands 1975. Sama ár hóf hann störf hjá Hampiðj- unni og 1979 til 1984 var hann fjár- málastjóri þar, en síðan hefur hann verið forstjóri fyrirtækisins. Gunnar er kvæntur Ólöfu Björk Þorleifsdótt- ur og eiga þau tvö böm. „Eg er búin að vera hjá Hampiðj- unni í 24 ár og það þykir víst ágætt í dag, en það þótti ekki merkilegt hér áður fyrr. Kannski er það eitt af at- riðunum sem réð því að maður ákvað að skipta um, því þetta er feiki- skemmtilegt starf og það sem er að eiga sér stað núna í Hampiðjunni. Maður fer frá því eiginlega með trega því þeirri uppbyggingu er ekki lokið, en það er alþjóðamarkaðsvæð- ing með þeim vöruþróunarmálum sem við höfum verið að keyra í gang undanfarin ár,“ sagði Gunnar. Hann sagði að áhugamál sín í starfinu hjá Hampiðjunni hefðu ver- ið að styrkja útrásarstarfsemi og sér sýndist það verða ein af aðaláhersl- unum hjá SH, þannig að þetta færi mjög vel saman. „Einmitt í gegnum þessa útrásar-. starfsemi hefur maður kynnst nokk- uð vel ýmsum hliðum sjávarútvegs í öðrum löndum sem er ágætt vega- nesti, en áherslur mínar í nýja starfinu verða einfaldlega að koma í ljós því það er oft erfitt að lýsa eigin stíl. Aherslurnar í rekstri verða auðvitað þær að efla fyrirtækið með útvíkkaðri starfsemi og góðri af- komu eins og það er unnt,“ sagði Gunnar. Að sögn Braga Hannessonar, stjórnarformanns Hampiðjunnai-, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hver verður næsti forstjóri Hampiðj- unnai’ en búast megi við að ákvörðun liggi íyrii’ innan tveggja vikna. Heildartap Fiskiðjusamlags Húsavíkur 80 milljónir á fyrra helmingi rekstrarársins Gengistap og tap á rækjuveiði og vinnslu Fiskiðjusamlag Húsavíkur hi Milliuppgjör i Li 1. september 1998 - 28. febrúar 19 99 Rekstrarreikningur Mnijónir króna 98/99 97/98 Breyt. Rekstrartekjur Rekstrargjöld 1.268,4 1.143.2 1.267,2 1.096.8 0,1% 4.2% Hagnaður fyrir afskriftir Afskriftir Fjármagnsgjöld umfram tekjur 125,2 102,0 102.7 170,4 94,0 58.7 -26,6% 8,5% 74.8% Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi (79,5) 17,7 Söluhagnaður og hlutdeildartekjur (1.3) 21.2 _ Hagnaður (tap) tímabilsins (80,8) 39,0 - Etnahagsreikningur 28/2 '99 28/2 '98 | Eignir: | Milljónir króna 6mán. 6 mán. Veitufjármunir 696,7 601,6 15,8% Fastafjármunir 2.099,9 2.185,7 -3,9% Eignir samtals 2.796,5 2.787,2 0,3% I. Skuidir og eigiO té: | Milljónir króna Skammtímaskuldir 843,6 556,1 51,7% Langtímaskuldir 1.317,5 1.502,8 -12,3% Eigið fé 635,4 728,3 -12,8% Skuldir og eigið fé alls 2.796,5 2.787,2 0,3% Veltufé frá rekstri 54,9 81,9 -33,0% FBA og Kaupþing ósátt við gagnrýni á verðlagningu hlutabréfa í Baugi „Framtíðar- sýn Baugs af- ar spennandi44 HEILDARTAP Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. var 80 milljónir króna samkvæmt endurskoðuðum árshluta- reikningi tímabilsms 1. september 1998 til 28. febrúar 1999. Þar af var gengistap 41 milljón króna. Rækju- veiðar og rækjuvinnsla félagsins var rekin með tapi en bolfiskvinnslan voru rekin með hagnaði. Að sögn Einars Svanssonar, framkvæmdastjóra Fisk- iðjusamlags Húsavíkur, er gert ráð fyrir að rekstur félagsins seinni helm- ing rekstrarársins verði í jafnvægi. I tilkynningu frá Fiskiðjusamlag- inu kemur fram að hagnaður íyrir af- skriftir og fjármagnskostnað nam 125 milljónum króna á þessu sex mánaða tímabili, en það er 45 milljónum króna lakari afkoma en á sama tíma árið á undan. Af 80 milljóna króna heildartapi er tap af reglulegri starf- semi rúmar 79 milljónir. Afskriftir námu 102 milijónum króna á móti 94 milljónum árið áður. Fjármagns- kostnaður er tæpar 103 milljónir og hækkaði á milli ára um 44 milijónir, en skýringin á því er gengistap upp á 41 miíljón króna. Nettóskuldir félags- ins voru um 1.464 milljónir í lok febr- úar 1999 sem er sambærileg tala við sama tíma árið á undan. Veltufé frá rekstri er um 54 milljónir króna sam- kvæmt uppgjörinu í stað 82 milljóna í sambærilegu uppgjöri árið áður. Einar Svansson sagði að gengistap Fiskiðjusamlags Húsavíkur væri fyrst og fremst vegna japanska jensins sem hefði verið að hækka frá því í október. „Gengishlutinn er stór í þessu en síðan hafa rækjuveiðar og vinnsla gengið illa og almennt verið undir áætlun hjá okkur. Bolfiskurinn svo- lítið yfir áætlun og hefur hann fylli- lega staðist væntingar okkar og meira til á þessu ári. Þetta tímabil sem við erum að gera upp núna var hins vegar afskaplega eifitt í veiðun- um, en rækjuveiðamar duttu gjör- samlega niður í haust og ekkert fór að rætast úr þeim fyrr en nú í mars og apríl. Það má því segja að þetta uppgjörstímabil skanni þetta versta tímabil sem hefur komið í rækjunni síðustu árin,“ sagði hann. Einar sagði að gert væri ráð íyrir jafnvægi í rekstri félagsins seinni- hluta ársins og afkoman í árslok yrði svipuð og nú væri komin fram. Akveð- ið hefur verið að loka rækjuverk- smiðju félagsins á Kópaskeri milli ver- tíða, en það getur þýtt að verksmiðjan verði lokuð frá maí til október. Netagerð Fiskiðjusamlags Húsa- víkur var rekin með hagnaði umrætt tímabil og hefur verið ákveðið að stofna hlutafélag um netagerð fé- lagsins. Félagið mun heita Höfði ehf. og mun í fyrstu verða alfarið í eigu Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Þörf á enn frekari samþjöppun Húsvíkingur ÞH-1, sem er eina skip Fiskiðjusamlags Húsavíkur, var rekið með miklu tapi áðumefnt sex mánaða tímabil. Skipið var keypt 1997, en það var smíðað árið 1994 í Noregi og er því eitt af nýjustu skip- unum í íslenska flotanum. Verið er að skoða möguleika á sölu skipsins, en á síðustu mánuðum hafa nokkrir er- lendir aðilar falast eftir skipinu og tilboð hafa borist félaginu. Kemur fram í tilkynningu Fiskiðjusamlags- ins að rétt þyki að kanna þetta frekar og selja skipið ef viðunandi verð fæst. Andri Sveinsson, verðbréfamiðlari hjá Búnaðarbankanum, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að afkoma Fiskiðjusamlagsins ylli vonbrigðum. „Vonbrigðin eru sérstaklega mikil í ljósi þess að fyrir tæpum tveimur árum fjárfesti félagið fyrir háar fjár- hæðir í rækjufrystitogaranum Hús- víkingi og rækujverksmiðjunni á Kópaskeri. Báðir þessir liðir eru nefndir sem ástæða fyrir tapinu og tel ég að stjórnendur félagsins þurfi að gera hluthöfum betur grein fyrir hvaða forsendur lágu að baki þessum fjárestingum. Veltufé frá rekstri er 54 milljónir ki’óna og lækkar um 28 milljónir milli tímabila. Ljóst er að þetta veltufé stendur ekki undir nýj- um fjárfestingum og afborgunum lána svo ekki sé minnst á til að mæta kröfum um arðsemi," sagði Andri. Hann sagði að Búnaðarbankinn hefði í ráðleggingum sínum lagt megináherslu á að almennir fjárfest- ar horfðu á hlutabréf stærri og traustari hlutafélaga á markaði. „Þessi aíkoma sýnir að það er mun meiri áhætta í rekstri minni sjávar- útvegsfyrirtækja sem ná ekki áhættudreifingu í krafti vel dreifðrar kvótastöðu. Ljóst er að þörf er á enn frekari samþjöppun í sjávarútvegi og arðsemi í greininni til að hún verði áfram álitlegur fjárfestingarkostur," sagði Andri. „VIÐ erum þeirrar skoðunar að við séum að bjóða hlutabréf í Baugi hf. á mjög góðu verði," segir Svanbjöm Thoroddsen, fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins. Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Kaupþings, tekur í sama streng. I Morgunblaðinu í gær birtist viðtal við Albert Jónsson, forstöðu- mann verðbréfaviðskipta hjá Fjár- vangi, þar sem hann lýsti þeirri skoðun sinni að hlutabréf í Baugi séu of hátt verðlögð, og taldi Al- bert ekki óeðlilegt að verðmæti Baugs lægi á bilinu 5-6 milljarðar ki-óna, sem vísar á gengi á bilinu 5 til 6. Hlutabréfin í Baugi eru hins vegai’ boðin fjárfestum á genginu 9,95. Engin sambærileg félög „Ástæðuna fyrir annarri skoðun Alberts Jónssonar hjá Fjárvangi á verðlagningu hlutabréfanna tel ég að megi rekja að einhverju leyti til þess að Baugur sé fyrsta félag sinnar tegundar inn á almennan hlutabréfamarkað, og skorts á samanburði við sambærileg félög. Ég tel fráleitt að bera saman fyrir- tæki í smásöluverslun, með tiltölu- lega litla íjárbindingu í sínum rekstri, við útgerðarfélag fjár- frekra frystitogara," segir Hreiðar Már hjá Kaupþingi, en Albert bar saman fjármunamyndun Baugs hf. og Samherja hf. í viðtalinu í gær en tók reyndar fram að fyrirtækin væru ekki fyllilega samanburðar- hæf. „Við erum að horfa á fyrirtæki sem var í fyrra að fara gegnum miklar breytingar. Allt hefur þetta í för með sér ákveðinn kostnað en samt nær félagið mjög góðum ár- angri á seinasta ári, og stefnir í enn betri árangur á þessu ári, m.a. þar sem hlutfallslegur kostnaður er lægri,“ segir Svanbjörn Thoroddsen. „Mín reynsla af alþjóðlegum verðbréfamörkuðum er sú að aðil- ar á þeim mörkuðum horfi mun fremur til áætlaðs hagnaðs við- komandi árs og næsta árs við verð- mat á félögum heldur en til sjóð- streymis síðasta árs, enda eru menn að fjárfesta í framtíðar sjóð- flæði fyrirtækja,“ segir Hreiðar Már, en spáð er 627 milljóna króna hagnaði hjá Baugi á þessu ári. Erlend fjárfesting styrkir „Við sjáum að erlendir fjárfest- ar, Reitangruppen, hafa sýnt fé- laginu það traust að fjárfesta í fé- laginu," segir Hreiðar Már. „Til- koma þessa erlenda aðila mun opna tækifæri á erlendum mörk- uðum og leiðir til hagkvæmari inn- kaupa,“ segir Svanbjörn. Svan- björn bendir einnig á að Baugur sé að undirbúa sókn á sérvörumark- aði, með samningi um rekstur Debenhams-verslunar og TopShop-verslunar í Reykjavík, auk áfoma um verslun með miklu úi-vali sérvöru í Smáralind í Kópa- vogi. „Framtíðarsýn Baugs er því afar spennandi, sem fjáifestar eru einnig að kaupa sig inn í,“ segir Svanbjörn. „I kjölfar stofnunar Baugs varð mjög hörð samkeppni á matvöru- markaði. En í dag er mun meiri ró yfir þessum markaði og mun minni áhætta í rekstri Baugs og fyrir- tækið búið að sanna sig. Því er eðlilegt að verð bréfanna sé hærra,“ segir Hreiðar Már. Ekki raunhæfur samanburður Heiðar Guðjónsson hjá við- skiptastofu Islandsbanka telur ekki raunhæft að bera saman Baug og Samherja, og telur að þar sé verið að bera saman epli og appelsínur. „Fjármunamyndun verslunarfyrirtækis sem leigir alla sína framleiðsluþætti er ósam- bærileg við fjármagnsfrekt fram- leiðslufyrirtæki," sagði Heiðar í samtali við Morgunblaðið. Að- spurður vildi Heiðar þó ekki koma með eigin mat á verðmæti Baugs hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.