Morgunblaðið - 08.05.1999, Page 73

Morgunblaðið - 08.05.1999, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ ______________________________LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 73 UMRÆÐAN „Prestur nokkur... sveigði framhjá44 NÚ HAFA staðið ritdeilur á miUi guðsmannanna Geirs Waage og Ragnars Fjalars Lárussonar þar sem Ragnar er fylgjandi árás NATO á Júgóslavíu en Geir á móti. Ég hélt satt að segja að bréf Ragnars væri fullnægjandi svar við gagnrýni Geirs á aðgerðir NATO, en þetta sýnir lík- lega hve bamalegur maður getur verið. Geir segir í síðustu grein sinni (29. apríl) að ágreiningurinn sé ekki um hvort það átti að gera eitthvað heldur að NATO skuli ríða á vaðið án samráðs Sameinuðu þjóðanna (SP). Geir virðist gleyma því að ef málið hefði verið borið undir Öryggisráð SÞ hefði það dagað þar uppi. Rússar og Kínverjar hefðu beitt neitunar- valdi sínu og því hefði kúgun og slátr- un Serba haldið óáreitt áfram. Geir segir aðgerðir NATO vera vanhugsaðar. Þessi gagnrýni hefur heyrst lengi en á móti spyr ég hve Kosovo Ég hef ekki heyrt eitt orð frá því góða fólki, segir Þorkell Ágúst Ottarsson, á móti að- gerðum NATO. regluaðgerð og hver sá friðarsinni sem heldur að það sé hægt að halda friðinn með aðgerðarleysi ætti að spyrja sig hvort hægt væri að halda uppi lögum og reglum á íslandi án þess að hafa lögregluvald sem gætti þess að þeim væri framfylgt. Það hefur sýnt sig að SÞ voru of mátt- vana til að geta gert nokkuð og því varð NATO að grípa til vopna. Hér er hvorki olia eða valdapot keppikeflið, heldur réttlætið sjálft. Þessar árásir eru jafn réttlátar og árásir bandamanna á Hitler, sem Geir er svo stoltur af í grein sinni, að íslendingar hafi ekki átt aðild að. Eitt er víst að hann talar ekki fyrir mína hönd. Ég hefði verið mjög stolt- ur ef íslendingar hefðu átt aðild að því að yfírbuga fasistastjóm Þýska- lands, hlutleysi við slíkar aðgerðir eru í mínum augum engin dyggð. Geir virðist nefnilega vera mjög upp- tekinn af hlutleysinu og verður ekki betur séð en hlutleysi hjá honum merki aðgerðarleysi, að standa hjá og horfa á! Á móti spyr ég; var Jóhannes skírari hlutlaus? Var Jesús Kristur hlutlaus í gagn- rýni sinni á yfirvöldin? Voru spámenn Gamla testamentisins hlutlaus- ir? Er höfundur Opin- bemnarbókarinnar í gagmýni sinni á róm- verska ríkið hlutlaus? Það mætti halda að Geir hafí ekki gaumgæft boð- skap Biblíunnar nýlega eða bókstaflega gleymt flestu því sem þar stendur. Geir bendir þó réttilega á að áður en Þorkell Ágúst Milosevic hóf aðgerðir Óttarsson sínar var nóg af áþekk- um glæpum í heiminum sem NATO hefur látið afskiptalaust, eins og mál- efni Kúrda, Tíbet og Austur-Tímor. En í hverju felst gagn- rýni Geirs? Vegna þess að óréttlæti hefur feng- ið að viðgangast þá eigi það áfram að viðgang- ast! Vegna þess að kúg-* uðum hefur ekki verið rétt hjálparhönd síðustu áratugi megi ekki byrja á því núna! Hverskonar rök eru þetta? Eitt er víst að þetta eru ekki rök hins miskunnsama Samverja heldur miklu frekar hins drambláta prests og levíta sem sveigðu fram hjá því þeir vildu ekki óhreinka hendrn- sínar (Lk 10:31- 32) og héldu þar með ,hlutleysi“ sínu. Höfundur er guðfræðinemi. TJ L302J lengi átti að undirbúa árásimar. Er ár ekki nægur undirbúningstími? Á Geir við að árásimar séu vanhugsað- ar vegna þess að ekki var búið að reikna út hvað myndi gerast? Við megum ekki gleyma því að stríð er eins og tafl. Það tefla tveir og því get> ur annar taflmaðurinn ekki ráðið gangi leiksins einn. Þeir sem heimta að NATO viti hvemig málin þróast og ákveði upp á sitt einsdæmi hvenær og hvemig átökunum ljúki gera óraunhæfar kröfur. En hvað með þá fullyrðingu að árásir NATO hafi gert ástand Albana verra? í fyrsta lagi vil ég benda á það að þótt málefni Kosovo hafi nýlega komist í fjölmiðla á íslandi þá merkir það ekki að það sé nýtt á nálinni. Kúgun Serba á meirihluta Albana í Kosovo hefur staðið í nær áratug og í áraraðir hefúr fólk þurft að flýja heimili sín og fjölskyldur. Sjálfur hef ég á undanfómum áram t.d. starfað sem túlkur fyrir landflótta Kosovo Albana á íslandi. Ef eitthvað er þá hefur það dregist um of að grípa í taumana. Geir heimtar aðrar leiðir en nefnir engar. Það var búið að reyna sáttarleiðina í rúmt ár, án ár- angurs. Milosevic var meira að segja búinn að semja um friðaraðgerðir en sveik þær. Hve lengi á að bíða og horfa á? Jú, vissulega hafa árásir Serba aukist en á móti kemur að ekki kvarta Albanar. Vegna fjölskyldu- og vinatengsla er ég í góðu sambandi við Albana, bæði frá Albaníu og Kosovo og ekld hef ég heyrt eitt orð frá þvi góða fólld á móti aðgerðum NATO. Sú er ekki heldur raunin um þá flóttamenn sem tekið hefur verið við- tal við á öldum Ijósvakans hér á ís- landi eða erlendis. Albanar mótmæla ekki árásunum þótt þær hafi flýtt fyrirfram ákveðnu þjóðarmorði í Kosovo. Þeir skilja nefnilega að kúg- ún verður ekki kveðinn niður án fóma. Geir segir aðgerðimar hafa gert vont verra og fylgt Serbum um glæpamenn ríkisstjórnarinnar. í fyrsta lagi er þetta ekki rétt. Það era margir innan Serbíu sem era á móti þjóðemishreinsunum ríkisstjórnar- umar. I öðra lagi verður Geir að koma með aðrar tillögur ef honum finnst þessi svona vond. Hvað vildi hann annað gera? Er hægt að gera eitthvað annað? Hefði Geir viljað efnahagsþvinganir eða fleiri friðar- umleitanfr? Slíkar aðgerðir era áþekkar því að ef lögreglan kæmi að áflogum myndi hún í stað þess að yf- irbuga árásaraðilann fara að gera honum erfitt fyrir og reyna að þreyta hann. Hemaðaraðgerð NATO er lög- J J 0 A1 á notuðum bílum með alvöru afslætti ÍP H ISÉlÉÉteli Þú kemur og semuí £ Opið virka daga kl. 9-18 og laugardaga kl. 12-17 BÍLAHÚSIÐ (í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavík Símar: 525 8096 - 525 8020 • Símbréf 587 7605 • Tölvupóstur gusi@ih.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.