Morgunblaðið - 23.06.1999, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
FRÉTTIR
Fjármálaráðherrar Norðurlandanna komu sainan á fundi á Egilsstöðum í gær
Efnahagsástandið gott
á Norðurlöndunum
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
NORRÆNU ráðherrarnir böðuðu sig í sólinni áður en fundur þeirra hófst í gærmorgun.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR
Norðurlandanna komu saman á
fundi á Hótel Héraði á Egilsstöð-
um í gær og ræddu efnahags- og
fjármál. Fundurinn er annar
tveggja árlegra funda þar sem ráð-
herramir bera saman bækur sínar.
A fundinum var rætt um stöðu
og horfur í efnahagsmálum á Norð-
urlöndunum. Ráðherramir héldu
blaðamannafund að loknum fundin-
um og bentu á að almennt ríkti
gott ástand í þeim málum. Hag-
vöxtur sé mikill, vaxandi atvinna
og verðbólga lág. Reiknað er með
að heldur dragi úr hagvexti bæði í
Noregi og Danmörku á næstunni.
Ráðherramir vora sammála um
mikilvægi þess að viðhalda traustri
stöðu ríkisfjármála og lágri verð-
bólgu. Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra gerði grein fyrir efna-
hagsstefnu nýrrar ríkisstjómar á
Islandi og lagði áherslu á mikil-
vægi aðhaldssamrar ríkisfjármála-
stefnu í þeimi efnahagsuppsveiflu
sem nú ríkir hér á landi.
Ráðhen-arnir ræddu um málefni
ESB/EES og reynsluna af Efna-
hags- og myntbandalaginu og áhrif
þess á efnahagslíf Norðurland-
anna. Þeir töldu ljóst vera að með
tilkomu myntbandalagsins þrengd-
ist svigrúm til hagstjómar á sviði
peningamála og því sé það enn
mikilvægara en áður að stefna í
ríkisfjármálum sé traust. Finnar
eru eina Norðurlandaþjóðin sem er
aðili að evrasvæðinu. Á fundinum
gerðu þeir grein fyrir helstu
áherslum sínum, en þeir taka við
formennsku í Evrópusambandinu
1. júlí nk.
Fjallað var um áhrif aukinnar al-
þjóðavæðingar á starfsemi nor-
rænna kauphalla og verðbréfa-
þinga og kynntar helstu niðurstöð-
ur sérstakrar athugunar í þeim
efnum.
Áhrif hagvaxtar
á ríkisijármál mikil
Rætt var um aukið samstarf á
þessu sviði og ákveðið var að huga
að frekari samræmingu skráning-
arreglna norrænna fjármálavið-
skipta. Ráðherrarnir lýstu yfír
vilja sínum til að aðstoða Eystra-
saltsríkin þrjú við frekari þróun á
þessu sviði.
I niðurstöðum norrænnar
skýrslu, sem kynnt var, varðandi
áhrif hagvaxtar á afkomu hins op-
inbera kom fram að áhrif hagvaxt-
ar á ríkisfjármálin á Norðurlönd-
unum eru hlutfallslega mikil sem
dregur úr svigrúmi til hagstjórnar-
aðgerða. Því sé mikilvægt að
tryggja stöðugleika í ríkisfjármál-
um. Hvað umhverfismál varðar
kom fram niðurstaða norrænnar
skýrslu um umhverfismál að ávinn-
ingur er takmarkaður af aukinni
norrænni samræmingu á því sviði.
Ráðherramir ræddu aukna sam-
ræmingu hagrænna aðgerða á
sviði umhverfismála. Þá var fjallað
um málefni Eystrasaltsríkjanna
þriggja m.a. í ljósi norrænu fjár-
festingaráætlunarinnar sem hljóð-
ar upp á 180 milljónir evra eða 15
milljarða íslenskra króna. Þessi
áætlun kom til framkvæmda árið
1992 og lýkur á þessu ári.
Að fundahöldum loknum heim-
sóttu ráðheiTarnir Lagarfossvirkj-
un og síðan var ekið til Borgar-
fjarðar eystri og litið inn í Álfa-
steini. Eftir þá ferð var ekið inn í
Hallormsstað og í Atlavík þar sem
Lagarfljótsormurinn beið og
ferjaði ráðherrana og fylgdarlið til
Egilsstaða um leið og þeir snæddu
kvöldverð um borð.
Fundur dómsmálaráðherra Norðurlandanna í Reykjavík
Ahersla verður lögð á mál-
efni ungra afbrotamanna
Morgunblaðið/Jim Smart
DOMSMÁLARÁÐHERRAR Noröurlandanna aö loknum fundi. Frá vinstri: Odd Einar Dorum, Noregi, Laila
Freivalds, Svíþjóö, Sólveig Pétursdóttir, Islandi, Frank Jensen, Danmörku og Johannes Koskinen, Finnlandi.
Á FUNDI dómsmálaráðherra
Norðurlandanna, sem haldinn var í
Reykjavík í gær, var ákveðið að
koma á fót sérstökum vinnuhópi
embættismanna til að fjalla um mál-
efni ungra afbrotamanna á Norður-
löndum. Var tillaga þess efnis borin
fram af Islands hálfu og mikið rædd
á fundinum, að sögn Sólveigar Pét-
ursdóttur dómsmálaráðherra.
Að sögn Sólveigar era málefni
ungra afbrotamanna afar mikilvæg-
ur málaflokkur og hafa ráðherrar
Norðurlandanna mikinn áhuga á að
leggja meiri áherslu á hann en hing-
að til hefur verið gert.
Vinnuhópnum er m.a. ætlað að
miðla upplýsingum milli landa um
fyrirbyggjandi aðgerðir gegn brot-
um ungmenna. Er honum einnig
ætlað að huga að úrræðum fyrir
unga afbrotamenn en í því sam-
bandi var á fundi ráðherranna vakin
sérstök athygli á fíkniefnavandan-
um.
Skýrsla um málefni ungra
afbrotamanna kynnt
Að sögn Sólveigar Pétursdóttur
hefur nýlega verið lokið við viða-
mikia skýrslu á vegum dómsmála-
ráðuneytisins, sem fjallar sérstak-
lega um unga afbrotamenn, þar sem
gerð var könnun á stöðu mála. Sól-
veig sagði það ljóst að ungum af-
brotamönnum hérlendis hefði fjölg-
að og því væri vandinn orðinn meiri.
í nefndri skýrslu væra hins vegar
lagðar fram ýmsar tillögur til úr-
bóta, en vegna þess hversu ný
skýrslan væri af nálinni hefði hún
ekki verið kynnt opinberlega. Að
sögn ráðherrans mun það hins veg-
ar verða gert fljótlega.
Sólveig sagði að ýmislegt væri
gert á Norðurlöndunum í málefnum
ungra afbrotamanna, sem þætti
spennandi og af hálfu dómsmála-
ráðuneytisins væri áhugi á að skipt-
ast á skoðunum við norræna aðila
hvað snertir úrræði sem best hafa
reynst á Norðurlöndunum. Að sama
skapi væri einnig áhugi íslenskra
aðila á því að miðla nágrannaþjóð-
unum af sinni reynslu.
Meðal annarra viðfangsefna fund-
arins var fyrirhugaður fundur
dómsmálaráðherra Eystrasaltsríkj-
anna og Norðurlandanna, sem hald-
inn verðu 3. nóvember nk., for-
mennskuáætlun Finna innan ESB
og fleira.
Dómsmálaráðherrar Norðurland-
anna halda reglulega fundi sem
þennan þar sem rædd era sameigin-
leg viðfangsefni, m.a. löggjafarstarf
sem ráðunejdi landanna bera
ábyrgð á að undirbúa.
Afrakstur hins noiræna sam-
starfs kemur m.a. fram í lagasam-
ræmingu, sem nær til fjölmargra
sviða löggjafarinnar. Sem dæmi um
slfka samræmingu má nefna löggjöf
sem varðar hjúskap og ættleiðingu,
samningalög og kaupalög og ýmsa
aðra löggjöf á sviði einkamálaréttar-
ins.
MORGUNBLAÐIÐ
F,.
Vélhjólamenn mót-
mæla veggjaldi
Töfðu um-
ferð um
göngin
FÉLAGAR í vélhjólaklúbbn-
um Sniglunum fóru á yfir 30
vélhjólum um miðjan dag á
sunnudag um Hvalfjarðar-
göngin og mótmæltu veggjaldi
fyrir vélhjól um göngin.
Nokkrar tafir urðu á umferð-
inni um göngin af þessum sök-
um.
Stefán Reynir Kristinsson,
framkvæmdastjóri Spalar,
segir að athugað verði hvort
unnt sé að lækka gjöld fyrir
vélhjól.
Fara ekki
ókeypis í gegn
Stefán Reynir segir að vél-
hjólamenn hafi farið fram á að
fara ókeypis í gegnum göngin
og hafi vísað í fordæmi á veg-
um í Evrópu. „Ég þekki það
reyndar ekki en veit að svo er
ekki í Skandinavíu. Við sam-
þykkjum ekki að þeir fari
ókeypis í gegn. Hitt er rétt að
af tæknilegum ástæðum höf-
um við ekki getað veitt vél-
hjólamönnum afslátt og við
munum skoða það mál betur.
Það yrði þá líklega leyst með
lækkun gjaldsins og það verð-
ur líklega inni í okkar allsherj-
arskoðun á gjaldtökunni,“ seg-
ir Stefán Reynir.
Tengdist
ekki ráninu
UNGUM manni, sem lögregl-
an í Reykjavík yfirheyrði í
íyrrakvöld í tengslum við rán,
sem framið var í sölutumi á
Óðinstorgi sama kvöld, var
sleppt að loknum yfirheyrsl-
um, þar sem í ljós kom að
hann var ekki talinn tengjast
ráninu.
Málið er enn í rannsókn hjá
lögreglunni í Reykjavik og
hafa ræningjamir, sem voru
tveir, ekki náðst enn.
Við ránið hélt annar ræn-
ingjanna afgreiðslustúlku
fanginni á meðan hinn fór í
peningakassann og tók um 20
þúsund krónur í peningum.
Þeir forðuðu sér síðan á
hlaupum út úr sölutuminum
með þýfið.
Ráðinn að-
stoðarmaður
ÁRMANN K. Ólafsson stjórn-
málafræðingur hefur verið
ráðinn að-
stoðarmað-
ur Ama M.
Mathiesen
sjávarút-
vegsráð-
herra.
Ármann
er bæjar-
fulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Kópa-
vogi. Hann staifaði sem að-
stoðarmaður Halldórs Blöndal
samgönguráðherra á síðasta
kjörtímabili.
Eiginkona Armanns er
Hulda G. Pálsdóttir og eiga
þau tvö börn, Hermann 5 ára
og Höllu Lilju 3ja ára.