Morgunblaðið - 23.06.1999, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Helgigöng-
ur einkenna
prestastefnu
Prestastefnan hófst á Kirkjubæjarklaustri
í gær og henni lýkur á föstudag. Kristín
Sigurðardóttir og Sverrir Vilhelmsson
fylgjast með fundum presta.
HERRA Karl Sigurbjörnsson
biskup flytur ræðu sína.
ÞINGFULLTRUAR hlýða á ræðuhöld.
Morgunblaðið/Sverrir
HELGIGÖNGUR, sem skipulagður
hluti prestastefnu, eru nýbreytni á
prestastefnunni í ár. Fyrsta helgi-
gangan var farin í gær og verða
famar þrjár í dag. Aldrei áður hafa
helgigöngur verið þungamiðja
grestastefnu, að sögn dr. Sigurðar
Árna Þórðarsonar, verkefnisstjóra
safnaðaruppbyggingar.
Sr. Karl Sigurbjörnsson biskup
sagði í setningarræðu prestastefnu
að prestar landsins, djáknar, guð-
fræðingar, prestsmakar og sam-
starfsfólk væru saman komin til að
ganga sem pílagrímar. Pílagn'mur-
inn íyndi þreytuna í fótunum. Krist-
in trú væri ekki aðeins í höfðinu
heldur fælist hún í því að fínna,
þreifa á, smakka, bergja, neyta og
nærast.
Yfirskrift prestastefnu í ár er
samleið með Kristi. I setningar-
ræðu talaði biskup um þá samfylgd
íslensku þjóðarinnar með kristi sem
hófst fyrir þúsund árum á Þingvöll-
um. Prestastefnan í ár væri áning-
arstaður áður en lagt væri inn í
næsta árþúsund. Biskup harmaði
það einnig að klausturhald skyldi
hafa lagst af á Kirkjubæjarklaustri.
Hann talaði um viðburði liðins
synodusárs, um fjárhagslegt sjálf-
stæði kirkjunnar og að í fyrsta sinn
hefði verið kosinn forseti kirkju-
þings úr hópi leikmanna, Jón
Helgason. Biskup þakkaði Þorsteini
Pálssyni „áhuga hans og atbeina að
styrkja kirkjuna og leiða hana til
aukins sjálfstæðis". Fólk reis úr
sætum og viðhafði þögn til að minn-
ast látinna presta og látinna prests-
maka.
Nýtt merki þjóðkirkjunnar
í ræðu sinni kynnti biskup nýtt
merki þjóðkirkjunnar. Jóna Sigríð-
ur Þorleifsdóttir hannaði merkið
sem sýnir „skipið með krossinn sem
mastur, á öldum hafsins, eða skím-
arinnar“. Biskup sagði tengslin vera
við örkina hans Nóa og frásögnina
af því er Jesú kyrrði vind og sjó.
Hann sagði einnig að skipið gæti
verið fiskur og að fiskurinn væri
elsta tákn kristinnar trúar. Á grísku
er fiskur ichþýs og sáu kristnir
menn stafina í því orði sem upphafs-
stafi orðanna: Jesú Kristur Guðs
sonur, frelsari. Fiskurinn lifir í
vatni og eins lifir kristinn maður
skírninni, fyrir laug endurfæðingar-
innar.
Að lokinni setningarræðu biskups
fluttu Hjalti Zophaníasson, skrif-
stofustjóri í dóms- og kirkjumála-
ráðuneyti, og Jón Helgason, forseti
kirkjuþings, stutt ávörp.
Því næst var lagt af stað í helgi-
gönguna frá Systrafossi að
Systrastapa. Prestar og starfsfólk
biskupsstofu skiptust á að ganga í
broddi fylkingar með kross gerðan
úr trjágreinum. Sr. Pétur Þórarins-
son í Laufási fékk hest til reiðar þar
sem leiðin var torfær á hjólastóli.
Við Systrafoss var lesin upp íhug-
un og samkomugestir minntir á að
þeir væru pílagrímar á leið til móts
við minningu og sögu og að þeir
horfðu til framtíðar. Síðan var stutt
bæn. Síðan var göngunni haldið
áfram uns þeir fremstu staðnæmd-
ust og sussuðu niður í mannskapn-
um. Þá heyrðist kór syngja ofar í
fjallshlíðinni ljóðið „Fögur er fold-
sálmurinn „Ég heyrði Jesú
himneskt orð“. Síðan var gengið
áfram og staðnæmst við læk og
skírnarheitið endurnýjað. Að bæn
lokinni var gengið yfir Jækinn. Þá
var sunginn sálmurinn „Ég hef heit-
ið þér Jesús“.
Að endingu var gengið að
Systrastapa þar sem er útsýn til
Eldmessutanga. Lesið var upp úr
ævisögu Jóns Steingrímssonar, svo-
nefnds eldprests, þar sem segir frá
því þegar hraunið rann fram eftir
árfai’veginum og ekki varð annað
séð en að það myndi granda kirkj-
unni. Svo segir Jón frá því þegar
hann ákallaði guð „heitt og í al-
vöru“. Að lestrinum loknum bað
samkoman og söng svo sálminn „Nú
gjaldið Guði þökk“.
Helgiganga að
Langholtskirkju
Prestastefnan heldur áfram í dag
með morgunbænum í Kapellunni,
helgigöngu að bænahúsinu á Núps-
stað. Síðan verður farið suður í
Landbrot og Meðalland og gengin
helgiganga að Langholtskirkju í
Meðallandi. Þar mun dr. Sigurbjörn
Einarsson flytja hugleiðingu. Síð-
degis hittast hópar og ræða saman.
Þá verður aftansöngur í Kapellunni,
hátíðarkvöldverður og svo að end-
ingu guðsþjónusta á Jónsmessunótt
kl. 23 í gamla kirkjugarðinum við
Kapelluna. Helgiganga verður frá
Félagsheimilinu.
Prestastefnuna sitja 112 prestar
en með mökum og starfsmönnum
sækja 190 manns Prestastefnuna.
SÉRA Pétur Þórarinsson á hestbaki.
SIGURBJÖRN Einarsson biskup tekur stein úr dys.
in“. Jafnskjótt og kórinn þagnaði
tók annar við hinum megin við ána
og svo sungu þeir saman hvor sín-
um megin við gönguhópinn.
Að því loknu var beðin bæn og
gengið áfram uns staðnæmst var
við dys. Biskup tók stein úr dysinni
og bað viðstadda að fylgja fordæmi
sínu og ganga með steinana að hóli
skammt frá, leggja þá á hólinn og
mynda kross. Að krossinum mynd-
uðum var flutt bæn og sunginn