Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 23 ERLENT Yfir Trirable, sem og auðvitað öllum öðrum, vofði nefnilega hin umdeilda Drumcree-ganga Oraníumanna í Portadown. Skiptir í því sambandi máli að Portadown er einmitt í kjör- dæmi Trimbles; kjördæmi þar sem búa flestir harðlínumanna úr röðum sambandssinna, og þar sem menn eru allt annað en ánægðir með að bresk stjómvöld skyldu banna Óraniumönn- um að ganga fylktu liði í gegnum hverfi kaþólskra á sunnudag. Hafa menn reyndar látið þess getið að það hefði gert Trimble mun auð- veldar fyrir í samningaviðræðunum í þessari viku, ekki síst gagnvart harð- línumönnum í eigin flokki, hefði hann getað fengið því framgengt að Óram'u- menn fengju að ganga sína leið. Þreyta og Örvænting Sannkallaðir maraþonfundir hafa farið fram í Belfast í þessari viku enda öllum ljóst að til h'tils er að semja um frið ef mönnum tekst ekki að setja í farveg þau ákvæði sem tryggja eiga að friðurinn sé varanlegur, og sem taka á þeirri óánægju sem var undir- rót vargaldarinnar til að byrja með. Þurftu viðsemjendur að lifa með þeirri vitneskju að mistækist þeim ætlunarverk sitt gátu þeir átt von á hörðum átökum strax um helgina. Vopnahlé öfgahópa voru jafnframt í húfi. Tony Blair var heldur þreytulegur þegar hann mætti til fundar í Stor- mont í gær, og kannski ekki furða enda hafði hann setið nánast stans- laust á fundum síðan hann kom til Belfast á mánudag. Hann hafði sett deilendum „endanlegan" frest til að leysa ágreiningsefni sín sem rann út á miðnætti á miðvikudag en áfram hélt hann þó, og var sem breski forsætis- ráðherrann hefði ákveðið með sjálfum sér að hann færi ekki frá Belfast fyrr en einhver vísir að samkomulagi lægi fyrir. Eftir því sem klukkustundimar liðu greip hins vegar nokkur örvænting, og ekki síður þreyta, deilendur og mun Blair í gær og fyrrakvöld hafa beitt öllum ráðum til að þrýsta á Trimble. Jafnframt mun Bill Clinton Bandaríkjaforseti hafa hringt ítrekað í Trimble og gert honum ljóst að nafn hans yrði ritað í sögubækur skrifaði hann undir það samkomulag, sem virtist vera að taka á sig mynd. Á sama hátt var Trimble áreiðanlega minntur ítrekað á hverjum yrði um kennt, ef viðræðumar fæm út um þúfur. Þykja þessir atburðir um margt minna á síðustu stundimar áður en Trimble skrifaði undir friðarsam- komulagið sem kennt er við föstudag- inn langa í fyrra. Þá, eins og nú, strandaði á sambandssinnum. I það skiptið gaf Trimble sig að lokum en allt fram á síðustu stundu í gær vom menn ekki vissir um að hið sama myndi gerast nú. Trimble var tregrir til að treysta orðum Sinn Féin Eftir fímm daga erfíða samningalotu í Belfast hillti loks undir samkomulag í gær ----------------------------------7-- um myndun heimastjórnar á Norður-Ir- landi og afvopnun IRA. Davíð Logi Sig- urðsson segir að allt fram á síðustu stundu hafí sambandssinnar átt erfítt með að trúa loforðum Sinn Féin um að IRA myndi sannarlega hefja afvopnun. EFTIR að Kanadamaðurinn John de Chastelain birti skýrslu sína í gær um afvopnun öfgahópanna á Norður-ír- landi vöknuðu vonir enn á ný um að hægt yrði að finna lausn á deilum leið- toga stríðandi fylkinga um myndun heimastjómar og afvopnun írska lýð- veldishersins (IRA). Sagði í skýrslu hershöfðingjans fyrrverandi að ástæða væri til að ætla að IRA og öfgahópar sambandssinna myndu sannarlega afvopnast að fullu fyrir maílok á næsta ári og vakti það vonir um að hægt yrði að telja David Trimble, leiðtoga stærsta flokks sam- bandssinna (UUP), á að samþykkja myndun heimastjómarinnar með að- ild Sinn Féin, stjómmálaarms IRA, gegn loforðum um að IRA byrji af- vopnun fyrr en síðar. Afar erfitt er að henda reiður á hvað átti sér stað á bakvið tjöldin í samn- ingaviðræðunum í þessari viku, sem fóra fram í stjómarbyggingum við Stormont-kastala í útjaðri Belfast. Þó var orðið Ijóst að í raun strandaði á Trimble og félögum hans í samninga- nefnd UUP, Sinn Féin hafði lagt fram tilboð sem bæði Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, og Bertie Ahem, forsætisráðherra írlands, töldu afar álitlegt og sem sambandssinnum væri ekki stætt á að hafna. Fullyrða frétta- skýrendur að allt frá því á miðviku- dagskvöld hafi viðræðumar í raun snúist um að koma málum þannig í kring að Trimble gæti skrifað undir samkomulag. Á fimmtudagskvöld, þegar svo virt- ist sem viðræðumar væra í raun fam- ar út um þúfur, var augljóst af fasi Gerrys Adams, leiðtoga Sinn Féin, að hann átti erfitt með að sætta sig við hversu tregur Trimble var til að gang- ast að samkomulagi. Adams taldi sig hafa gengið eins langt og hægt var og mun hann hafa talið að bæði Blair og Ahem væra sáttir við tilboð hans, og að þeir væra sannfærðir um að hægt væri að treysta orðum hans. Því strandaði einungis á Trimble. Spum- ingin sem lýðveldissinnar vora að spyrja sig var þessi: Ef þeim hafði tekist að sannfæra forsætisráðherra Bretlands um að hægt væri að treysta orðum þeirra, hvers vegna í ósköpun- um þrjóskaðist Trimble við? Sinn Féin lofaði afvopnun IRA í viðræðum sínum við Trimble mun Adams hafa boðist til að leggja fram yfirlýsingu þar sem fullyrt væri að Ekki til marks um breytta stefnu Rússa WILLIAM Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, segist ekki telja að flug tveggja rússneskra sprenguflugvéla inn fyrfr íslenskt loftvarnarsvæði sé til marks um breytta stefnu rússneskra stjórn- valda gagnvart Vesturlöndum. Hann kvaðst telja flugið hafa átt að reyna á viðbragðsgetu Bandaríkj- anna, og bætti því við að fljótt hefði verið brugðist við. Tveir rússneskir „Birnir,“ sprengjuflugvélar af gerðinni Tupo- lev TU-95MS, flugu inn á loftvarnar- svæði Islands sl. föstudag. Tvær F-15 orrustuþotur varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli flugu í veg fyrir Birnina og fylgdust með ferðum þeirra. Rússnesku vélarnar flugu umhverfis landið og fylgdu banda- rísku þoturnar þeim út af loftvarnar- svæðinu. Cohen nefndi, í viðtali við CNN í fyrrinótt, að þetta væri í fyrsta sinn „í fimm eða sex ár“ sem rússneskar sprengjuflugvélar hefðu verið stein- snar frá Bandaríkjunum. Wesley Cl- ark, yffrmaður herafla Atlantshafs- bandalagsins (NATO), sagði flug rússnesku vélanna til marks um „óvenjulega mikinn vilja til að taka áhættu". Bandaríska blaðið Washington Post fjallaði ítarlega um flug vélanna og greindi frá því að flugið hefði valdið nokkram áhyggjum hjá ráða- mönnum í Washington. Talsmaður bandaríska þjóðaröryggisráðsins sagði hins vegar að þarlend stjórn- völd teldu þetta léttvægt atvik. „[Rússar] vilja að eftir sér sé tekið sem afli sem takast þurfi á við,“ sagði Cohen um hugsanlegan tilgang flugsins. „Við tökumst á við þá.“ Sinn Féin gæti sannfært IRA um að afvopnast fyrir maílok árið 2000. Jafn- framt að herinn væri reiðubúinn að semja um tímaáætlun þar sem skjal- fest væri nákvæmlega hvenær og hvemig þessi afvopnun ætti að fara fram. Sá hængur var hins á að Adams var ekki reiðubúinn til að láta Trimble þetta tilboð í té skriflega fyrr en hann hefði fullvissu fyrir því að Trimble myndi ganga að því. „Við útskýrðum fyrir þeim að við gætum ekki gert þetta tilboð skriflega vegna þess hve þessi mál era viðkvæm," sagði Adams í fyrrakvöld. Trimble var því tækni- lega séð ekki að segja ósatt þegar hann sagði seint á miðvikudagskvöld að hann hefði ekki „séð“ nein slík til- boð frá Sinn Féin. Adams fullyrti þó að Trimble þyrfti ekki að velkjast í vafa um hvað myndi verða í tilboðinu, og mátti sjá að Ádams var reiður yfir ólíkindalátum Trimbles. Það virðist alveg Ijóst að þegar Bla- ir ræddi um það á fimmtudag að deilendur hefðu stigið „söguleg, risa- vaxin skref' í þessum viðræðum, og að samkomulag væri innan seilingar, átti hann við það tilboð sem Sinn Féin var þá þegar búið að leggja fram. Þau tíðindi höfðu nefnilega gerst að Gerry Adams hafði fullyrt að hann gæti fengið IRA til að afVopnast. Harðvít- ugustu hryðjuverkasamtök í Vestur- Evrópu, Irski lýðveldisherinn, vora reiðubúin til að láta af hendi vopnin sem herinn hefur eytt þrjátíu árum í að sanka að sér. Hér vora sannarlega mikil tíðindi að gerast. Trimble átti við raun- verulegan vanda að etja Ástæða þess að Adams vildi ekki leggja tilboð sitt fram skriflega, nema hann hefði fullvissu fyrir því að gengið yrði að því, var sú að hann vildi ekki að þetta tilboð yrði skjalfest einhvers staðar, þannig að hægt væri að vísa til þess yrði sest niður til samninga síðar meir. Staðreyndin var nefnilega sú, og svo virðist sem Blair hafi haft af því nokkrar áhyggjur, að allsendis óvíst væri að slíkt tilboð frá Sinn Féin yrði í boði seinna. Reuters ÞRATT fyrir að vísir að samkomulagi um myndun heimastjórnar og afvopnun IRA lægi fyrir á Norður-Irlandi í gær vofir yfír íbúum hér- aðsins hin umdeilda Drumcree-ganga Óraníumanna í Portadown, sem orðið hefur vettvangur harðra átaka undanfarin sumur. Reynt verður fram á síðustu stundu að flnna málamiðlun sem bæði kaþólikk- ar og mótmælendur í Portadown geta sætt sig við. En eins og The Irish Times hafði eftir ónefndum sambandssinna þá vildi UUP ekki trúa „kraftaverkinu mikla“ nema þeir sæju það svart á hvítu. Trimble vildi fá loforðið skrif- legt, og hann vildi að IRA undirritaði það. Sambandssinnar hafa reyndar ávallt litið á Sinn Féin og IRÁ sem tvær hliðar á sömu mynt en í þessari viku brá Trimble á það ráð að segja sem svo: Leiðtogar Sinn Féin halda því ætíð fram að þeir tali ekki fyrir hönd IRA, hvers vegna ættu sam- bandssinnar þá að taka orð Sinn Féin um afvopnun IRA trúanleg? Vandamál Trimbles í hnotskurn er það að jafnvel þótt hann sætti sig við tilboð Sinn Féin, og væri reiðubúinn til að láta af kröfunni um að afvopnun IRA eigi sér stað áður eða samhliða myndun heimastjómarinnar, þá er vitað að nokkrir felagar hans í þing- flokki UUP era það ekki. Liggur fyrir að ef fleiri en fimm af tuttugu og átta þingmönnum UUP á n-írska heima- stjómarþinginu sætta sig ekki við samkomulagið þá era dagar Trimbles sem leiðtoga UUP taldir og öll sam- komulag um myndun heimastjómar fallin hvort eð er. I þessu ljósi er skiljanlegt hvers vegna Trimble vildi hafa í höndimum loforð Blairs fyrir því að hann myndi setja löggjöf í gegnum breska þingið sem tryggðu sjálfkrafa að ef IRA stæði ekki nákvæmlega við gefin lof- orð, og afhenti öll vopn á tilsettum tíma, væra skilmálar samkomulagsins um myndun heimastjómarinnar með aðild Sinn Féin umsvifalaust fallnir úr gildi. Einungis með þess háttar vamagla í farteskinu taldi Trimble sig reiðubúinn til að mæta þeim í flokki sínum sem ekki vildu hvika frá kröf- unni um „vopn fyrst, svo heima- stjóm“, og var hann hikandi þó. Lrttu viö í Intersport Hjá okkur færðu allt í ferðalagið: Tjöld, svefnpoka, bakpoka, gönguskó, fylgihluti, útivistarfatnað o.fl. o.fl. ÞlN FRlSTUND - OKKAR FAG VINTERSPORT Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is Opid; Mánud. - fimmtud. 10-18 FÖstud. 10-19 Laugard. 10-16. Mario Puzo látinn Ncw York. AP. BANDARÍSKI rithöfundurinn Mario Puzo, sem skrifaði með- al annars söguna um Guðföð- urinn, lést á heimili sínu á Long Island í gær. Hann var 78 ára. Auk Uuðföðursins, sem kom út 1969 og hefur selst í um 21 milljón eintaka um allan heim, skrifaði hann sjö skáld- sögur og hafði nýlokið einni er hann lést. Hún kemur út á næsta ári. Puzo var fæddur í New York, og voru foreldrar hans ítalskir innflytjendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.