Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fáeinir langt komn-
ir með fyrri slátt
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
SÍÐUSTU helgina í júní hófu
nokkrir bændur hér í uppsveit-
um Árnessýslu heyskap.
Spretta er afar misjöfn og er
sumstaðar komið all gott gras á
tún sem voru alfriðuð við beit í
vor.
Menn notfærðu sér góða
þurrkinn í síðustu viku þegar
hitinn komst yfír 20 gráður
suma dagana. Nýtingin á því
heyi sem slegið var þá er með
afbrigðum góð. Er fyrri sláttur
langt kominn á fáeinum bæjum.
Mikið hefur sprottið síðustu
daga og fljótlega fara þeir
einnig að bera ljá í jörð sem
ekki eru þegar byrjaðir, eink-
um ef heyþurrkur verður áfram
góður.
Víðast hvar er heyið bundið í
rúllur og þarf því ekki eins
mikinn þurrk og með eldri hey-
skaparaðferðum.
Skattayfírvöld bregðast við svikum starfsmanns skattsins
Huga að öflugra
innra eftirliti
RÍKISSKATTSTJÓRI og skattstjóri Skattstofu Reykjanesumdæmis
telja þörf á að skattayfirvöld komi upp innra eftirliti til að koma í veg
fyrir að starfsmenn brjóti af sér í opinberu starfi. I síðustu viku var
starfsmaður Skattstofu Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna
gruns um tæplega 11 milljóna króna svik á virðisaukaskatti.
UNNIÐ við heyskap í Núpstúni í Hrunamannahreppi.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sigmundur Stefánsson, skatt-
stjóri á Skattstofu Reykjanesum-
dæmis, sagði að ekki væri fyrir
hendi sérstakt skipulag til að koma í
veg fyrir starfsbrot af þessu tagi.
Kerfið væri t.d. ekki þannig byggt
upp að tveir menn kæmu að aðgerð-
um heldur væri einum manni treyst
til að gera færslur eins og þær sem
maðurinn, sem nú situr í gæsluvarð-
haldi vegna gruns um brot í starfi,
sáum.
„Varnir kerfisins beinast fyrst og
fremst að svikum utan frá. Svona at-
burður leiðir óhjákvæmilega til þess
að skoða þarf hvaða leiðir eru tækar
til að koma í veg fyrir atburð sem
þennan.“
Sigmundur sagði að þetta mál
væri visst áfall fyrir skattstofuna
með sama hætti og þegar fjárdrátt-
ur kemur upp í fyrirtækjum eða
stofnunum.
Indriði H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri sagði að þetta mál væri nánast
einsdæmi hjá skattinum, en þetta
sýndi engu að síður að þörf væri á að
koma á fót skipulegra innra eftiriiti í
skattkerfinu. Þetta mál sýndi að ekki
væri hægt að treysta því 100% að
þeir sem ráða sig til starfa hjá skatt-
inum stæðust þær kröfur um heiðar-
leika sem gerðar væru. Hann sagðist
reikna með að það yrði rætt innan
skattkerfisins alveg á næstunni
hvernig ætti að bregðast við svona
hlutum.
Indriði sagði að gerðar væru mikl-
ar kröfur um heiðarleika og traust
þegar menn væru ráðnir til skatts-
ins. Það væri hins vegar misjafn
sauður í mörgu fé. „Ég held að það
sé betra fyrir kerfið og starfsmenn
að það sé fyrir hendi eitthvert kerfi
sem með reglubundnum hætti skoð-
ar hvort allt sé með felldu.“
Slapp vel úr slysi
eftir grjóthrun
SJÖ ára telpa, sem slasaðist í
Fljótavík á Homströndum á
sunnudag er hún varð fyrir
grjóthruni og talið var að hefði
slasast alvarlega, slapp óbrotin
úr slysinu og var ekki þörf á að-
gerð á henni við komu á sjúkra-
hús.
Að sögn aðstoðarlæknis á
bamadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur var búist við að telpan gæti
þvi útskrifast af sjúkrahúsi í síð-
asta lagi í dag. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar sótti telpuna á slys-
stað á sunnudag og flutti hana á
sjúkrahús og var talið að hún
væri alvarlega slösuð eftir að
hafa fengið þungt grjót í bakið.
Lögreglan á Isafirði vinnur að
rannsókn slyssins á vettvangi, en
niðurstöður þeirrar rannsóknar
liggja ekki enn fyrir.
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Space
Wagon, árgerð 1998. Ekinn
38.000 km, sjálfskiptur.
Ásett verð kr. 2.080.000
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu I síma 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. I2-I6
BÍLANNGfEKLU
Nvm&r p-'rtf í nofv?vm bíhim!
Laugavegi I74.105 Reykjavík, sími 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
Morgunblaðið/Halldór
FREMUR var blautt í veðri í Þórsmörk um helgína og gekk á með skúrum.
„Fyllirí og
djöfulgangur“
Verð á leigukvóta hækkar enn
Margar útgerðir
hættar veiðum
Á ÞRIÐJA þúsund manns heim-
sótti Þórsmörk um seinustu helgi
og var talsverð ölvun á svæðinu,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Hvolsvelli, og meiri er-
ill en oft áður. Tveir gistu fanga-
geymslur lögreglu og ellefu voru
teknir grunaðir um ölvun við
akstur aðfaranótt sunnudags.
Engin stóráföll urðu í Þórsmörk,
en „sukk og svínarí og gekk á með
smálegum pústrum og djöfulgangi,
hnupli og líkamsmeiðingum," eins
og lögreglumaður á Hvolsvelli lýsti
ástandinu í samtali við Morgun-
blaðið. „Krakkarnir mæta til þess
eins að drekka, sérstaklega í Húsa-
dal og Langadal. Lögreglumaður
hér spurði ungan ökumann sem
var á leið úr Þórsmörk á sunnu-
dag, hvort hann hefði smakkað
áfengi. Pilturinn leit á hann stór-
um augum og spurði: „Hvern
fjandann heldurðu að ég hafi verið
að gera í Þórsmörk?"
LEIGUVERÐ á þorskkvóta hækk-
aði enn á Kvótaþingi íslands í gær,
þegar kílóið fór í 120 krónur og hef-
ur verðið aldrei verið jafn hátt. Alls
voru viðskipti með rúm 157 tonn af
þorski á þinginu í gær. Leiguverð á
ýsu, sem fór í 58 krónur fyrir helgi,
stóð í stað í gær, en aðeins voru við-
skipti með rúm 6 tonn. Þá voru enn-
fremur leigð 35 tonn af skarkola og
fór verðið upp í 70 krónur fyrir kíló-
ið.
Bjarga sér frá
veiðileyfamissi
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenski-a útvegs-
manna, segir ekki hægt að útskýra
hátt leiguverð á þorski nema á þann
hátt að menn fái þorsk þegar þeir
reyni að veiða aðrar tegundir og
borgi hátt verð fyrir kvótann tii að
missa ekki veiðileyfið. „En þegar
verð á öðrum tegundum hækkar
líka verður erfitt að útskýra þetta.
Ég verð því talsvert var við það
núna, sem er andstætt við það sem
áður var, að margir eru að hætta
veiðum og ætla að bíða næsta
kvótaárs. Það getur enginn gert út
á þessu verði. Það er Ijóst að Kvóta-
þing hefur valdið mikilli hækkun á
leigukvóta, þvert á það sem stefnt
var á í upphafí. Ég vona því að Al-
þingi afnemi þessi lög strax í haust,
þau hafa haft slæmar afleiðingar
fyrir marga staði og margar útgerð-
ir,“ segir Kristán.