Morgunblaðið - 24.07.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1999 15
_________HÖFUÐBORGARSVÆÐID ____
Arleg garðaskoðun verður
í Arbæjarhverfi á morgun
Arbær
HIN árlega garðaskoðun Garð-
yrkjufélags Islands fer fram
sunnudaginn 25 júlí milli kl. 14 og
18.
Að þessu sinni verða eftirtaldir
garðar til sýnis: I Arbæjarhverfi
Vorsabær 11, Hlaðbær 18 og
Fagribær 19. Það sem einkennir
meðal annars garðana í Vorsabæ
og Hlaðbæ er tegundafjöldi, marg-
ar fáséðar plöntur, skemmtilegt
litaval og ræktun í gróðurskála. í
Fagrabæ er garðurinn hannaður
samhliða húsinu þannig að úr verð-
ur ein heild. Lögð er áhersla á
gróðursælt umhveríl og skjól með
tegundum sem mynda hálfvillt
samfélag.
í Laugardalnum verður Grasa-
garður Reykjavíkur og Ræktunar-
stöð Reykjavíkurborgar opin. Það
þarf ekki að fara mörgum orðum
um Grasagarðinn svo þekktur sem
hann er. Sett verða upp skilti við
fjölda plantna með fróðlegum upp-
lýsingum sem birst hafa í Morgun-
blaðinu í þættinum „Blóm vikunn-
ar“.
Ræktunarstöðin framleiðir tré,
runna og sumarblóm fyrir Reykja-
víkurborg. Það er forvitnilegt að
skoða stöðina en þangað leggja fáir
leið sína.
Spölkorn frá Grasagarðinum og
Ræktunarstöðinni er Laugarás-
vegur 31. Þar má sjá mikla ræktun
í kerjum, tignarlegar tröppur, hell-
ur og gróður. Laugarásvegur 31
tengist stuttri gönguleið sem mælt
er með að garðaskoðarar rölti í
ferð sinni um Laugardalinn. í Gra-
sagarðinum og Ræktunarstöðinni
verður hægt að fá kort af göngu-
leiðinni.
Garðaskoðunin er öllum heimil.
Regat
SPRAY
WAY
Timberiand ©'
rlLA acSc^s
Opi&: mán,- fim. 10.00 - 18.30
fös. 10.00-19.00
lau. 10.00-18.00
KRINGMN