Morgunblaðið - 28.09.1999, Page 20

Morgunblaðið - 28.09.1999, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FORSETI ÍSLANDS Á AUSTURLANDI Opinberri heim- sókn um Austur- land lokið OPINBERRI heimsókn forseta Islands um Norður-Múlasýslu og Fjarðabyggð lauk á laugar- dag, en þá var farið um Fljóts- dalshrepp og Austur-Hérað. I Fljótsdalshreppi var Val- þjófsstaðarkirkja heimsótt. Haldin var morgunstund í kirkjunni í umsjón sóknar- prestsins, séra Láru Guðbjarg- ar Oddsdóttur, og forseti m.a. kynntur fyrir brúðunni Fróða sem aðstoðar við barnafræðslu í vetur. Boðið var upp á morgun- kaffi í Víðivallaskógi og skóg- urinn síðan skoðaður undir leið- sögn Helga Gfslasonar, fram- kvæmdastjóra Héraðsskóga. Víðivallaskógur markar upphaf bændaskógræktar á Islandi. Nemendur fluttu frumsamda tónlist Nemendur í Hallormsstaðar- skóla tóku síðan á móti forset- anum, en skólinn er samstarfs- verkefni sveitarfélaganna Fljótsdalshrepps og Austur- Héraðs. Forseti kynnti sér al- mennt skólastarf þar og hlýddi á frumsamda tónlist sex til átta ára nemenda og Iagið Oddrún, eða Ættarfylgjan, í flutningi skólahljómsveitarinnar. Lagið samdi Gunnar Gunnarsson, nemandi í tíunda bekk, en texta Hákon Aðalsteinsson. Hádegis- verður var snæddur í Hús- stjórnarskólanum á Hallorms- stað í boði sveitarstjórna Aust- Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Forseti tekur íyrstu skóflustunguna vegna jarð- vegsskipta á íþróttaleikvanginum á Egilsstöðum. Morgunblaðið/Þorkell Boðið var upp á nýlagað ketilkaffi þegar Víðivallaskógur var heimsóttur. Þessar ungu stúlkur fylgdust brosandi með heimsókn forsetans á íþróttaleikvanginn á Egilsstöðum. ur-Héraðs og Fljótsdalshrepps. í Austur-Héraði var Safna- húsið á Egilsstöðum skoðað. Meðal annars lítil sýning á bréf- um, bókum og Ijósmyndum Vestur-íslendinga sem vakti töluverðan áhuga forsetans. Að því loknu tók forseti fyrstu skóflustungu vegna jarð- vegsskipta á íþróttaleikvangin- um á Egilsstöðum. Þá ávarpaði forseti ársþing UIA og afhenti „Hvatningu forseta Islands til ungra Islendinga“ í síðdegis- dagskrá í fþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum. I síðdegisdag- skránni var einnig boðið upp á söng og tónlist fyrir forseta og fylgdarlið. Kvöldverður var snæddur í boði sveitarstjórnar Austur-Héraðs í húsnæði Al- þýðuskólans á Eiðum. Mikilvægt mótvægi í umræðu um byggða- vanda FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði uppbyggingu Hér- aðs, Fellahrepps og Egilsstaða vera öðrum byggðarlögum góða íyrir- mynd. Forsetinn ávarpaði íbúa þess- ara byggðarlaga á hátíðarsamkomu sem haldin var í Iþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum á laugardag vegna op- inberrar heimsóknar til Norður- Múlasýslu og Fjarðabyggðar. I ræðu sinni minntist forsetinn á þann sóknarhug og metnað sem ein- kenndi íbúa Héraðs, Fellahrepps og Egilsstaða, auk vilja þeirra til að búa svo um hnúta að áfram dafni þar blómlegar byggðir í sátt manns og náttúru. Þá sagði forseti árangurinn í upp- byggingu Héraðs, Fellahrepps og Egilsstaða vera mikilvægt mótvægi í umræðu um byggðavanda á Islandi. Mörg byggðarlög hafi vissulega barist við erfíðleika og þrengingar og margir misst trú á möguleika landsbyggðarinnar. Það sé því vert verulegrar athygli að á sama tíma hafí vaxið og eflst margir þéttbýlis- staðir í sveitum og breytt byggða- mynstri landsins til hins betra. Forseti sagði árangur Egilsstaða- búa, Fellahrepps og Héraðs vera bæði lærdómsríkan og lofsverðan. íbúafjöldi hefði rúmlega tuttugufald- ast á öldinni og atvinnulíf orðið fjöl- þættara. Menntastofnanir á svæðinu bjóði nú nýjum kynslóðum fjölþætt tækifæri og skógrækt og skrúðgarð- ar lýsi alúð og virðingu gagnvart um- hverfí og auðlindum náttúrunnar. Saga Héraðs, Fellahrepps og Egilsstaða væri lýsandi fordæmi og sönnun þess að byggðir landsins byggju yfir krafti og getu til að sækja fram til bættra lífskjara og betra mannlífs. Hver mínúta skipulögð BAKKAFJÖRÐUR var meðal þeirra byggðarlaga sem forseti ís- lands, Olafur Ragnar Grímsson, sótti heim í opinberri heimsókn sinni til Austurlands í síðustu viku. Freydís Magnúsdóttir var í undir- búningsnefnd fyrir komu forsetans til Bakkafjarðar. Hún segir hverja mínútu í heimsókn forseta til Bakkafjarðar hafa verið skipulagða þannig að fólki gæfíst tækifæri á að hitta hann. Við komuna til Bakkafjarðar tók hreppsnefnd og oddviti, Steinar Hilmarsson, á móti forsetanum. í tilefni af komu forseta var tæki- færið notað til að afhenda íbúum sveitarfélagsins formlega málverk af staðarskáldinu Kristjáni frá Djúpalæk. Málverkið var gjöf frá Guðmundi Halldórssyni frá Kvísl- arhóli á Tjörnesi. Að lokinni mótöku hrepps- nefndar var stærsta fiskverkunar- fyrirtæki staðarins, fiskverkun Gunnólfs, heimsótt. Þá var gengið út á Gömlu bryggjuna og forseta sýndar þær aðstæður sem íbúar Bakkafjarðar bjuggu við lengi framan af. Hafnleysa var á Bakkafirði fram á níunda áratug- inn, þannig að hífa þurfti báta upp á bryggjuna með krana þegar vonskuveðri var spáð. Skólabörn, veifandi fánum, tóku síðan á móti forsetanum við grunnskóla stað- arins þar sem boðnar voru kaffi- veitingar í sal skólans. Freydís segir íbúa Bakkafjarðar vera ánægða með heimsókn for- seta, þeir hafi t.d. margir mætt í kaffiveitingar í grunnskólanum til að hitta hann. Fjölmiðlar hafi þó mátt sýna viðburðinum meiri áhuga, en Bakkafjörður er lítið byggðarlag og kom því stór hluti íbúa að heimsókn forsetans með einum eða öðrum hætti. Viðurkenning veitt átta ungmennum VIÐURKENNINGIN „Hvatning forseta Islands til ungra íslend- inga“ var veitt átta ungmennum úr Fljótsdalshreppi, af Norður- og Austur-Héraði, úr Fellahreppi, frá Borgai-firði eystra og Egilsstöðum sl. laugardag. Forseti afhenti viður- kenninguna á hátíðarsamkomu í Iþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum. Viðurkenninguna hlutu að þessu sinni: Dagrún Sóla Óðinsdóttir, 10 ára, frá Fellabæ. Hún stundar nám í þverflautuleik við Tónlistarskóla Austur-Héraðs og hefur sýnt sér- staka iðni og samviskusemi og hef- ur náð framúrskarandi árangri. Elsa Guðný Björgvinsdóttir, 15 ára, frá Egilsstöðum. Hún er góður námsmaður og afreksíþróttamaður á landsmælikvarða, m.a. margfaldur verðlaunahafi á Islandsmóti í frjáls- um íþróttum. Hún stundar auk þes nám við Tónlistarskóla Norður- Héraðs. Erla Dóra Vogler, 16 ára, frá Egilsstöðum. Erla Dóra er góður námsmaður og mikill frumkvöðull, fjölhæf og virk í félagsstörfum. Hún stundar söngnám og hefur tekið virkan þátt í starfi áhugaleik- félaga. Ema Friðriksdóttir, 12 ára, frá Fellabæ. Henni hefur, þrátt fyrir fötlun, tekist með einstökum dugn- aði að fylgja jafnöldrum sínum. Ema stendur vel að vígi í námi og félagslífi, stundar klarinettunám og æfir sund með Iþróttafélaginu Hetti. Hún er einstök fyrirmynd jafnt fötluðum sem ófötluðum sakir hugprýði sinnar og dugnaðar. Gunnar Gunnarsson, 15 ára, úr Fljótsdalshreppi. Hann þykir frá- bær námsmaður og stundar auk bóknámsins tónlistarnám, semur lög, stjómar og spilar í skólahljóm- sveit. Þá er hann góður skákmaður og hefur tvisvar unnið skákbikar skólans. Hallveig Karlsdóttir, 11 ára, frá Borgarfirði eystra. Hún hefur sýnt framúrskarandi hæfileika í námi og íþróttum og þykir auk þess efnileg- ur skákmaður. Ingi Valur Valgarðsson, 16 ára, frá Fremri-Víðivöllum. Ingi Valur hefur staðið sig vel í námi, tekið virkan þátt í félagsstarfi skólans og sýnt að hann er ábyrgur og vinnur vel. Hann er afreksmaður í íþrótt- um og varð m.a. í öðru sæti í kringlukasti sveina í bikarkeppni FRI sl. vor. Margrét Dögg Guðgeirsdóttir, 15 ára, frá Torfastöðum. Hún hefur sýnt ótvíræða leiðtogahæfíleika og dugnað í félagsstarfi. Margrét Dögg er góður nemandi, stundar tónlist- amám, syngur og leikur með hljóm- sveit skólans. Þá er hún afreks- manneskja í íþróttum og hefur unn- ið til verðlauna á íslandsmóti í frjálsum íþróttum og er Austur- landsmeistari í þeirri grein. Þórarinn Páll Andrésson, 12 ára, frá Borgarfirði eystra. En hann er góður námsmaður, efnilegur íþrótta- og skákmaður og hefur til- einkað sér einstaka prúðmennsku. Þórveig Jóhannsdóttir, 12 ára, frá Brekkugerði. Hún stendur sig vel í námi, er skipulögð í vinnubrögðum og ábyrg. Þórveig stundar tónlistar- nám og er virk í félagsstarfi skól- ans. Hún iðkar íþróttir, m.a. glímu, og varð Austurlandsmeistari í sín- um hópi sl. vor. Merki Fjarða- byggðar kynnt FORSETI íslands afhjúpaði nýtt merki Fjarðabyggðar í liðinni viku á hátiðarsamkomu í Nes- kaupstað. Merkið var hannað af þeim Guðjóni Davíð Jónssyni og Ant- oni Helga Jónssyni, en þeir áttu einnig heiðurinn af merki Kristnihátíðar. Þeir Guðjón Da- víð og Anton Helgi hlutu fyrstu verðlaun í samkeppni um nýtt merki Fjarðabyggðar, en það eru Eskifjörður, Reyðarfjörður og Neskaupstaður sem mynda sveit- arfélagið Fjarðabyggð. Alls bár- ust um 40 tillögur í samkeppnina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.