Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 45 , J r\ I í ,nj fl ■ SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR + Sigríður Sveins- dóttir fæddist í Ás- um í Skaftártungu, V estur-SkaftafelIs- sýslu, 26. júní 1921. Hún lést á líknardeild Landsspítalans þriðju- daginn 25.janúar síð- astliðinn. Heimili hennar síðustu ár var á Njálsgötu 82 í Reykjavík. Sigríður var næstyngst 15 barna hjónanna Sveins Sveinssonar í Ásum, sem seinna kenndi sig við Norður Foss í Mýr- dal, og Jóhönnu Margrétar Sigurð- ardóttur. Eftirlifandi systkini Sig- ríðar eru Guðríður, f. 22.11. 1908; Róshildur, f. 21.2. 1911; Ingunn, f. 12.9. 1915 og Gísli, f. 16.5. 1925. Látin eru þau Sigursveinn, Gyðríð- ur, Runólfur, Sveinn, Páll, Kjartan og Guðmundur. Þijú létust í frum- bernsku. Sigríður giftist Guð- mundi Hjaltasyni skip- stjóra 6. maí 1945. Foreldrar hans voru Sigríður Guðmun- dsdóttir og Hjalti Jóns- son (Eldeyjar Hjalti). Sigríður og Guðmund- ur eignuðust tvö börn, Jóhönnu Margréti, f. 6.6 1946 og Hjalta Jónsson, f. 29.2 1948. Jóhanna Margrét er búsett í Frankfurt í Þýskalandi og Hjalti býr ásamt eiginkonu sinni Paulu Gudmundsson í Missis- ippi í Bandaríkjunum. Sigriður og Guðmundur slitu samvistir. Sigríð- ur giftist Gísla Jónssyni verksljóra 23. febrúar árið 1973. Hann lést 3. janúar 1995. Dóttir Gisla er Gu- drún, gift Gunnari Guðjónsson og eiga þau íjögur böm. Utför Sigríðar fór fram í Foss- vogskirkju mánudaginn 31. janúar. Við fráfall frænku minnar Sigríðar Sveinsdóttur koma upp í hugann ótal ljúfar minningar. Eg var u.þ.b. tveggja ára þegar faðir minn dó af slysförum. Við mæðgurnar stóðum ekki lengi óstuddar því fljótlega tóku Bergþóra foðursystir mín og Kjartan eiginmaður hennar okkur að sér og gengu mér í foreldra stað. Kjartan var bróðir Sigríðar og voru miklir kærleikar á milli þeirra systkinanna. Með Kjartani föður mínum eignaðist ég fjölmenna og alveg einstaka fjöl- skyldu. Þessi fjölskylda var engri annarri fjölskyldu lík, hún hafði bókstaflega áhuga á öllu því sem lífs- anda dró. Þjóðlíf, náttúrufar og ná- ungakærleikur, ekkert var henni óviðkomandi. Umhyggja fjölskyld- unnar í garð barna var einstök. Fjölskyldan kom fram við böm af nærgætni og hlýju og umfram allt af virðingu. Kynni mín af Sigríði Sveins- dóttur frænku minni verða mér ógleymanleg. Alla tíð ávarpaði hún mig á sinn sérstæða hátt eins og t.d.; „Falleg mín, hjartað mitt, gullið mitt eða engillinn minn“ og auðvitað var ég best allra. Þannig talaði hún við öll böm. Allt þetta varð örugglega til þess að viðkomandi bami, eins og mér, fannst að það hlyti að vera alveg sérstakt, í það minnsta lagði ég mig alla fram um að standa undir nafni. Þetta viðmót Sigríðar og fjölskyld- unnar allrar gagnvart börnum var eitthvað sem þótti sjálfsagður hlutur. Þetta lífsviðhorf sem ég kynntist sem bam, hefur ætíð síðan reynst mér gott veganesti á lífsleiðinni. Sem barn sat ég oft á rigningar- dögum heima í Heiðargerði og naut þess í ríkum mæli að skoða ljósmynd- ir af fjölskyldunni sem Loftur Guð- mundsson eiginmaður Guðríðar frænku hafði tekið. Athygli mín beindist oftast að ljósmyndunum af Sigríði sem vora teknar við hin ýmsu tækifæri. Á öllum myndunum var hún jafn glæsileg, fegurðin og lífsgleðin skein úr augum hennar. í mínum huga var hún fegurst allra. Ljós- myndirnar af henni með bömunum sínum tveimur, þeim Jóhönnu og Hjalta, vöktu ekki síður áhuga minn. Þar gat að líta hamingjusama móður og prúðbúin, mannvænleg böm. Eg var stolt af því að eiga hana fyrir frænku. Hún var falleg yst sem innst. Hún gladdi mig oft með gjöfum og stundum fylgdu í kjölfarið andvökun- ætur þar sem ég sat hugfangin og handlék þær eða horfði bara á þær á náttborðinu mínu. Það var alltaf jafn ánægjulegt að hitta Sigríði hvort sem það var á heimili hennar, í sundi eða annars staðar. Útbreiddur faðmur og hjarta- hlýja beið mín hvenær sem við hitt- umst. Það var alltaf sérstaklega gam- an að ræða við Sigríði, hún komst skemmtilega að orði og látbragð hennar og blikið í augunum verður alla tíð ógleymanlegt. Sigríður frænka mín var dugleg að heimsækja Bergþóm móður mína eftir að faðir minn dó, fyrir tveimur áram. Sigríður hafði stundum orð á því að það væri nú ekki mikið mál fyr- ir sig því að bíllinn hennar rataði sjálfur upp í Heiðargerði. Styrkur frænku minnar og stuðningur á þess- um erfiðu tímum reyndist okkur í fjölskyldunni ómetanlegur. Við sem þekktum Sigiíði eigum eftir að sakna hennar sáran, en minn- ingin um einstaka konu, dýrmæta perlu sem var gull af manni mun lifa áfram í huga okkar. Frændsystkinum mínum þeim Jó- hönnu, Hjalta og fjölskyldu sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjm'. Guð blessi minningu Sigríðar Sveinsdóttur. Ragnheiður Hermannsdúttir. Ég kynntist Sigríði gegnum vöðva- bólguna mína og er það sennilega það eina góða sem bakverkir mínir hafa nokkurn tímann haft í för með sér. Hún ávarpaði mig um leið og ég steig inn úr dyrum með „engillinn minn“ og ég man að mér þótti þetta dálítið furðulegt sökum stuttra kynna okkar, en ég vandist fljótlega þeirri ótrúlegu umhyggju og hlýju sem hún sýndi mér. Það var í eðli hennar að láta öðr- um líða vel og hún virtist geta gefið af sjálfri sér endalaust. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá Sigríði, hún tal- aði t.d. alltaf um „tölvuskömmina" og hló svo að eigin sérvisku. Ég man líka eftir því þegar ég aílitaði einu sinni á mér hárið hvað henni þótti fyndið að nú værum við báðar eins, alveg hvít- hærðar! Svo gat hún hlegið endalaust að því þegar ég reyndi að sleppa við kínverska hausanuddið hennar. Sigríður bjó yfir miklum fróðleik á sviði náttúralækninga, sem hún miðl- aði til annarra af einskærri um- hyggju. Hún kenndi mér t.d. að best væri að vera í grænu fyrir framan „tölvuskömmina" en alls ekki hvítu. Hún vissi allt um alls kyns olíur og smyrsli og er mér mjög minnisstætt þegar áragamalt hælsæri hvarf yfir nótt eftir meðferð hjá Sigríði. Ég held að mér hafi samt aldrei tekist að finna mér skó sem vora henni að skapi, en það var dæmigert fyrir hana að láta sig varða skóbúnað annarra, hún vildi öllum svo vel. Þegar ég hitti hana síð- ast var hún mikið veik en var samt að hafa áhyggjur af því að ég borðaði ekki nógu mikið. Ég held að engin orð fái nokkum tíma lýst þeirri einstöku manneskju sem Sigríður hafði að geyma. Ég nem því staðar hér og minnist Sigríðar vinkonu minnar, fallegustu konu sem ég hef kynnst, með söknuð í hjarta. Valgerður Rós Sigurðardóttir. Móðursystir mín, Sigríður Sveins- dóttir, lést á líknardeild Landspíta- lans eftir tiltölulega stutta sjúkdóms- legu. Þegar læknir hennar, Sigurður Amason, var með hana til meðferðar eftir að krabbamein hafði greinst í henni, spurði hann hana oft á tíðum um líðan hennar og hún svaraði ætíð: „Mér líður vel, bara alveg ágætlega.“ Þá varð lækninum að orði: „Ég þekki ykkur þessa Skaftfellinga, ykkur líð- ur best þegar þið þjáist mest.“ Já, hún frænka mín var'af sterku bergi brotin, hún kvartaði ekki en hlustaði því betur á sorgir og þjáningar ann- arra og líknaði fólki. Hún fæddist að Asum í Skaftártungu, tveggja ára gömul var hún reidd yfir Mýrdals- sandinn að Norður-Fossi í Mýrdal í þá tíu systkina hópi. Fjölskyldan þurfti að yfirgefa smjörsveitina sína, Tunguna, þar sem Ásar vora prests- jörð og faðir hennar prestssonurinn varð að finna sér aðra jörð til ábúðar. Ung stúlka fór hún til Reykjavíkur og hitti þar mannsefnið sitt, Guðmund Hjaltason skipstjóra, Skaftfelling líka; faðir hans, Eldeyjar-Hjalti, var einmitt fæddur á Norður-Fossi, þar sem Sigríður seinna sleit bamsskón- um. Heimili hennar og Guðmundar var annálað fyrir gestrisni og höfð- ingsskap, þar átti stórfjölskyldan athvarf. Þau hjónin eignuðust tvö böm, óskabörnin Jóhönnu Margréti og Hjalta Jónsson, en á heimilinu dvöldust langdvölum systkinabörnin við nám eða sumarstörf. Á sumrin fluttist sjómannskonan upp í sveit, í sumarbústað þeirra hjóna að Hjalta- stöðum i Mosfellssveit. Eiginmaður- inn var oft langdvölum að heiman, oft mánuðum saman í siglingum en hann var skipstjóri á Foldinni og Hvassa- fellinu og sigldi um öll heimsins höf. Sigríður stýrði bömum og búi af myndarskap og gjafmildi á efni sin og þegar húsbóndinn kom heim, oft eftir langar fjarverur, var tekið á móti honum af ást og mikilli umönnun. En veður skipast í lofti. Guðmundur og Sigríður slitu samvistum eftir ástríkt hjónaband, bömin flugu úr hreiðrinu og Sigríður fór að vinna utan heimilis. A þessum áram fór hún undir leið- sögn systur sinnar, Róshildar, að stunda líkamsrækt og kynna sér gamlan vísdóm um lækningar og líkn- un og áður en þær vissu af var fólk farið að leita til þeirra hópum saman til að fá bót meina sinna. Sigríður hafði læknandi hendur en óumræði- leg hlýja hennar og ástúð átti ekki lít- inn þátt í að fólki leið betur og fannst það hafa fengið bót meina sinna eftir leiðsögn hennar og nudd. Árið 1973 giftist Sigríður seinni manni sínum, Gísla Jónssyni verk- stjóra, miklum sómamanni og reynd- ist hún honum og dóttur hans, Guð- rúnu, þá á unglingsaldri, mikil stoð og stytta. Gísli andaðist árið 1995 og naut hann einstakrai- umönnunar konu sinnar í erfiðum veikindum allt til dauðadags. Alla tíð jók Sigríður við þekkingu sína í alþýðulækningum. I móðurætt hennar var margt góðra ljósmæðra og grasalækna, föðurafi hennar, Sveinn Eiríksson, þótti rneiri læknir en prestur og afi hans, Sveinn Páls- son landlæknir, var tengdasonur fyrsta landlæknis íslands, Bjama Pálssonar. Sigríði var eðlislægt að hjúkra og líkna og áhugi hennar og elja var óbil- andi að bæta við þekkingu sína. Hún kynnti sér gamlar læknisaðferðir og húsráð í Þýskalandsferðum þegar hún dvaldist hjá Jóhönnu Margréti dóttur sinni, sem búsett er í Frankf- urt. Einnig aflaði hún sér fanga hjá syninum og tengdadótturinni Paulu í fjölmörgum heimsóknum sínum til þeirra í Missisippi í Bandaríkjunum. Hún forvitnaðist einnig um alþýðu- lækningar í Nígeríu en þar \ið ströndina er Hjalti sonur hennar yfir- maður á stóram oh'uborpalli þótt heimili hans sé vestanhafs. Én Sigríð- ur frænka uppskar einnig sín laun fyrir það sem hún veitti öðrum. Ófáir úr heilbrigðisstéttunum, bæði læknar og hjúkranarfræðingar, leituðu til hennar um hjálp á óhefðbundinn hátt og þegar hún svo sjálf veiktist naut hún umönnunar þessara faglærðu skjólstæðinga sinna sem vora henni vinir í raun. Sýndu mér vini þína, þá veit ég hver þú ert. Sigríður andaðist sátt, þakklát fjölskyldu sinni og öllum vin- unum sem létu hana finna þessa síð- ustu mánuði hve mikils virði hún hafði verið þeim. En gleði hennar lýsti sér best á dauðastund, vitandi að við banabeð hennar sátu bömin hennar tvö sem bæði höfðu snúið heim frá út- löndum til að sinna móður sinni síð- ustu mánuðina. Hún dó með bros á vör, hún Sigga frænka mín. Blessuð sé minning hennar. Brynja Benediktsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, sem lést fimmtudaginn 27. janúar, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju föstudaginn 4. febrúar kl. 14.00. Innilegar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis- ins í Borgarnesi fyrir frábæra umönnun og hlý- hug í garð hinnar látnu. Halldór Karelsson, Lovísa G. Munoz, Sísí Karelsdóttir, Jón Gestur Sveinbjörnsson, Anna Karelsdóttir, Sigurður Már Gestsson, Gígja Karelsdóttir, Einar Örn Karelsson, Ragnheiður Einarsdóttir, Erla Karelsdóttir, Jón Hartmann og barnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, LÁRUS SVEINSSON trompetleikari, Leirutanga 35b, Mosfellsbæ, sem lést á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykja- víkur þriðjudaginn 18. janúar, verður jarðsung- inn frá Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 1. febrúar, kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd eða minningarsjóð Karlakórsins Stefnis. Ingibjörg Lárusdóttir, Björn Óli Ketiisson, Þórunn Lárusdóttir, James Healy, Hjördís Elín Lárusdóttir, Ægir Örn Björnsson, Sigurlaug Sara, Ágúst Leó, Þórunn Lárusdóttir. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, HANNES V. ARASON, Suðurbyggð 21, Akureyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 2. febrúar kl. 13.30. Albert Hörður Hannesson, Ágústa Stefánsdóttir, Elísabet Emma Hannesdóttir, Kolbrún María Hannesdóttir, Árni Grétar Árnason, Kristrún Inga Hannesdóttir, Gylfi Gunnarsson, Margrét Alma Hannesdóttir, Kristján I. Hallgrímsson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, NJÓLA JÓNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóii sunnudaginn 30. janúar. Útför hennar fer fram frá Áskirkju föstudaginn 4. febrúar kl. 15.00. Jón Þórðarson, Katrín Einarsdóttir, Ólafur Þórðarson, Hilda Hilmarsdóttir, Dagrún Þórðardóttir, Birgir Jónsson, Trausti Þórðarson, Eydís Guðbjarnadóttir, Ingunn Þórðardóttir, Guðbrandur Gimmel, barnabörn og barnabarnabörn. t Við þökkum innilega öllum þeim sem auð- sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og útför móður okkar og tengdamóður, ÞÓRUNNAR VIGFÚSDÓTTUR, Skálpastöðum. Starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Borgamesi færum við sérstakar þakkir fyrir umhyggju og alúð í hennar garð. Guðbjörg Þorsteinsdóttir Johansson, Nils Johansson, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Kristín Þorsteinsdóttir, Valgeir Jónsson, Guðmundur Þorsteinsson, Helga Bjarnadóttir, Vigfús Önundur Þorsteinsson, Auður Sigurðardóttir og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.