Morgunblaðið - 21.03.2000, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 B 9
KÖRFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Þeir komu mikið við sögu - Keit Vassell, KR og Shawn Myers, Tindastóli.
Hetjudáðir Myers
voru til einskis
KR komst í undanúrslit íslandsmótsins í körfuknattleik með sigri
á Tindastóli í íþróttahúsi sínu í Frostaskjóli á laugardag. Leikar
fóru 78:70, vesturbæjarliðinu í hag, en viðureignin var mun
tvísýnni en lokatölurnar bera með sér. Hetjudáðir Shawn Myers,
sem fór fyrir gestunum líkt og svo oft áður, skutu heimamönnum
skelk i bringu. Viðstaddir gripu andann á lofti yfir tilþrifum hans,
en einn síns liðs, að kalla, mátti hann sín lítils gegn samstilitum
KR-ingum, sem hafa úr miklu úrvali góðra leikmanna að skipa.
Uppi varð fótur og fit í íþróttahúsi
KR þegar Myers, hinn lipri
Trínídad-búi, minnkaði muninn í eitt
stig, 69:68, með
Edwin þriggja stiga körfu
Rögnvaldsson fyrii' Tindastól, sem
sknfar hafði verið þrettán
stigum undir í síðari
hálfleik. Sauðkrækingar á áhorfenda-
pöllunum fögnuðu framlagi Myers og
tóku gleði sína á ný, en brúnin þyngd-
ist á vesturbæingum. Andartaki síðar
gátu KR-ingar, leikmenn og áhorf-
endur, þó ekki annað en dáðst að hin-
um mikla loftfimleikamanni er hann
fylgdi eigin þriggja stiga skottilraun,
sem geigaði, eftir með einni áhrifa-
mestu troðslu sem undhritaður hefur
orðið vitni að. Myers sá að skotið var
ekki nægilega nákvæmt, hélt í humátt
á eftir boltanum og náði til hans með
hægri höndinni eftir að boltinn kast-
aðist hátt í loft upp af körfuhringnum.
Viðstaddir heyrðu háan hvell við
fimafasta troðsluna og æptu af undr-
un, fögnuði og aðdáun í senn.
Uppákoma af þessum toga var lík-
leg til að slá KR-liðið útaf laginu, eins
og það lagði sig. Meira hefði þó þurft
til í þetta skiptið. Lið KR var óárenni-
legt. Sauðkrækingar áttu í miklum
erfiðleikum með að hemja Jónatan
Bow, þ.e.a.s. þegar hans naut við, því
hann hvfldist alllengi á varamanna-
bekknum. Bow gerði 23 stig fyrir KR,
sýndi hvers hann er megnugur þótt
viðureignin hefði verið annar leikur
hans eftir langt hlé vegna meiðsla
hans á fæti.
Bow var atkvæðamestur heima-
manna en þríeykið sterka; Bow, Keith
Vassell og fyririiðinn Ólafur Jón
Ormsson, reyndist andstæðingum
sínum óþægur ljár í þúfu, sem fyrr.
Magni Hafsteinsson, nítján ára piltur
sem lék sérstaklega vel í fyrri leikn-
um, á hrós skilið fyrir vamarleik sinn
gegn Kristni Friðrikssyni, sem hefur
oft fengið fleiri opin skotfæri en hann
státaði af í Frostaskjólinu á laugar-
dag. Þá setti Jakob Öm Sigurðarson,
sem er árinu yngri en Magni, mark
sitt á leödnn. Hann gerði tvær þriggja
stiga körfur í röð undir lok fyrri hálf-
leiks, einmitt er leikmenn Tindastóls
höfðu gert þrjár körfur í röð.
Fjöldi mistaka varð Sauðkræking-
um að falli. Oftsinnis fórast þeim ein-
faldar sendingar illa úr hendi. Auk
þess var örvænting þeirra heldur
snemmbær, sem leiddi af sér skotval-
ið á lokasprettinum sem þjálfarinn,
Valur Ingimundarson, nefnir í sam-
tali við Morgunblaðið. Eftir stendur
að Tindastóll gerði of mörg dýrkeypt
mistök og lenti því í baráttu við stiga-
töfluna, ef þannig má að orði komast,
lungann úr leiknum. Eggjabikar-
meistaramir, sem komið höfðu á
óvart með góðri frammistöðu sinni í
vetur, þurfa sem fyrr að hætta keppni
í átta liða úrslitum. Lið Tindastóls
hefur aldrei komist lengra á Islands-
mótinu og gerir það ekki þetta árið.
En það rættist sem lá Ijóst fyrir áður
en KR og Tindastóll áttust við - það
að annað þeirra, hvort um sig fram-
bærilegt körfuknattleikslið sem erfitt
er að útiloka úr hópi fjögurra bestu
liða landsins, varð að sætta sig við að
fara snemma í sumarfrí. Það kom í
hlut Tindastóls.
„Hárréttur dómuri1 eða ekki?
SAUÐKRÆKINGAR kvörtuðu sáran yfír ákvörðun dómaranna
að dæma sóknarbrot á Kristin Friðriksson í skyndiupphlaupi
gegn Ólafi Ormssyni þegar rúmar tvær mmútur lifðu leiks og
munurinn aðeins þrjú stig. Kristni auðnaðist að leggja boltann í
körfuna, en dómararnir Jón Bender og Sigmundur Már Her-
bertsson tóku þá afstöðu að Ólafur hefði þegar tekið sér löglega
varnarstöðu. Ef villa hefði verið dæmd á Ólaf, og karfa góð,
hefði Kristinn getað jafnað metin úr vítaskoti. I stað þess juku
KR-ingar muninn í ijögur stig.
„Við vorum ekki ánægðir með ruðninginn sem Kristinn fékk
á sig. Mér finnst alveg hræðilegt þegar dómarartaka svona af-
drifaríkar ákvarðanir undir lok leiks. Mér finnst ekki gaman að
skjóta á dómara, en mér fannst vafaatríðin lenda öll öðrum
megin,“ sagði Valur Ingimundarson, þjálfari Tindastóls.
Starfsbróðir hans, Ingi Þór Steinþórsson hjá KR, var á önd-
verðum meiði. „Þetta var hárréttur dómur og ég er mjög stolt-
ur af honum að hafa dæmt þennan ruðning,“ sagði Ingi Þór.
Alveg
eins og
leikir eiga
að vera
„VIÐ fórum náttúrulega yfír það
sem fór úrskeiðis fyrir norðan og
framkvæmduni úrbæturnar mjög
vel í fyrri hálfleik. Við hittum
ágætlega og fengum fín færi. Við
reyndum að halda uppteknum
hætti í seinni hálfleik, en hikstuð-
um aðeins. Við kláruðum dæm-
ið,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari KR, eftir að lið hans
hafði tryggrí sér sæti í undan-
úrslitum Islandsmótsins með
sigri á Tindastóli.
„Liðsheildin var mjög sterk.
Jakob [Örn Sigurðarson] kom
ískaldur inn og skoraði tvær
þriggja stiga körfur þegar við
vorum að missa forskotið i Iok
fyrri hálfleiks. Mér fannst þetta
flottur leikur, alveg eins og leikir
eiga að vera; mikil spenna og
dramatík.“
Ingi Þór vitnaði í pistil sinn á
heimasíðu KR, sem hann reit áð-
ur en hann hélt norður á Sauðár-
krók ásamt lærisveinum sínum.
„Eg sagði að liðsheildin myndi
skila sínu í lokin og hún gerði
það.“
Ingi sagði að viðureignin við
Tindastól hefði krafist mikiila
átaka og orku. „Við mætum víg-
reifir í undanúrslitin. Við þurfum
að nota tímann mjög vel. Menn
eru ábyggilega lemstraðir eftir
svona Ieik,“ sagði Ingi Þór.
Um lið Tindastóls sagði hann:
„Þeir hætta aldrei. Þeir mega
eiga það. Báðar viðureignirnar
voru mjög skemmtilegar. Eg held
að viðureignin hafi verið mjög
sanngjörn og að úrslitin hafi ver-
ið á þá leið. Eg tel að við höfum
staðið uppi sem betra liðið í þess-
um tveimur leikjum. En þeir eiga
rnjög gott Iið, ungt lið og gott,“
sagði Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari körfuknattleiksliðs KR.
ES
sáttir
VITASKULD féll . leikmönnum
Tindastóls tapið fyrir KR mjög
þungt. Það endurspeglaðist í bún-
ingsherbergi liðsins á laugardag, um
leið og KR-ingar fögnuðu sigri.
Sauðkrækingar höfðu unnið sér rétt
á oddaleik á heimavelli í viðureign-
inni við KR, en af honum varð aldrei
þar sem liðið hélt ekki velli í heima-
byggð sinni. Tindastóll ætlaði sér
lengra. Valur Ingimundarson, þjálf-
ari liðsins, lýsti líðan liðsins. „Okkur
líður auðvitað mjög illa. Við ætluðum
okkur að vinna KR, komast áfram.
Við eram alls ekki sáttir. Mér fannst
við berjast og við gáfum allt sem við
áttum í þetta. KR-ingar eru orðnir
stórir, mjög stórir og sterkir," sagði
Valur. „Við eram bara búnir núna og
mætum bara sterkari næsta ár. Við
lærum ef til vill af þessu.“
Þjálfarinn sagði að hann teldi lið
sitt engu síðra en KR-inga. „Við spil-
uðum mjög góða vörn í seinni hálf-
leik, en voram full fljótir á okkur í
sókninni og vorum með lélegt skot-
val. Við hefðum getað gert betur
hvað það varðar. Leikur okkar í fyrri
hálfleik var mjög slakir, sérstaklega
vörnin, en hún lagaðist í þeim síðari.
Við lékum ekkert alilla, langt í frá.
En ég tel okkur jafn góða og KR-
inga. Þeir hafa meiri reynslu. Margir
þeirra hafa oft farið í gegnum úr-
slitakeppni, en við erum með fjóra
eða fimm leikmenn sem hafa aldrei
tekið þátt í henni. Þetta er nýtt fyrir
þá,“ sagði Valur Ingimundarson,
þjálfari Tindastóls.