Morgunblaðið - 26.10.2000, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
_______________________________________MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Byggðasafn Vestfjarða vill gera við Sædfsi ÍS og varðveita á floti
Vilja byggða-
kvóta til að gera
út safngrip
BYGGÐASAFN Vestfjarða á ísa- bátsvdl eins og þá sem uppliaflega
firði hefur óskað eftir hlutdeild í var í Sædísi og verður hún sett í bát-
byggðakvótanum til þess að gera inn.
við og varðveita gamlan bát, Sædísi
IS, sem safninu hefur áskotnast.
Hyggst safnið varðveita bátinn á
floti, gera út og verka aflann í Neð-
stakaupstað.
Sædís er að mörgu leyti merki-
Iegur bátur, að sögn Jóns Sigurpáls-
sonar, safnstjóra Byggðasafns Vest-
fjarða á Isafirði. Báturinn er úr eik
og var smíðaður á ísafirði á árinu
1939 af Bárði G. Tómassyni, fyrsta
íslenska skipaverkfræðingnum, sem
rak slippinn á fsafirði um árabil.
Báturinn er einn af sjö Dísum sem
Bárður smiðaði í raðsmíðaverkefni
fyrir útgerðarfélagið Njörð á ísa-
firði. Sædís hefur varðveist ásamt
Bryndísi sem enn er gerð út frá fsa-
firði en Jón veit ekki til þess að aðr-
ir bátar úr þessu raðsmíðaverkefni
séu til. Safnvörðurinn telur að ekki
séu eftir margir bátar frá þessum
árum. Þá segir hann að Sædís hafi
varðveist. án umtalsverðra breyt-
inga og eigi enn seglbúnað og
megnið af veiðarfærunum sem not-
uð hafa verið frá upphafi.
Sædís hefur ávallt verið gerð út
frá höfnum við ís;ifjarðardjúp. Vil-
mundur Reimarsson útgerðarmað-
ur í Bolungarvík gaf Byggðasafninu
bátinn. Hann var tekinn upp í slipp
á síðasta ári og gert við það bráð-
nauðsynlegasta. Jón segir að þó
nokkuð þurfi að gera við bátinn sé
það tiltölulega lítið miðað við aldur
hans. Skipta þurfi um stýrishús og
vél. Svo vill til að safnið á heillega
„Hugur okkar stendur til þess að
gera bátinn upp í sinni upprunalegu
mynd og varðveita hann á floti,“
segir Jón. Þótt ekki þurfi að ráðast í
umfangsmiklar viðgerðir er Ijóst að
því fylgir töluverður kostnaður að
gera bátinn útgerðarhæfan.
Sú hugmynd hefur komið upp að
fá hlutdeiid í byggðakvótanum til að
fjármagna viðgerð Sædísar og varð-
veislu á sjó í sinni upprunalegu
mynd og umhverfí. Hefur hug-
myndinni verið komið á framfæri en
ekki liggur fyrir hveijar undirtektir
verða. „Það er nauðsynlegt að finna
lausn á þeim vanda sem er að fá
fjármagn í jafneðlilegan hlut og að
varðveita sögu okkar höfuðatvinnu-
vegar," segir Jón Sigurpálsson.
Sólþurrka fiskinn
í Neðstakaupstað
Jón telur mikilvægt að hafa
Sædísi á sjó. Þannig varðveitist bát-
urinn best. Telur hann unnt að hafa
margvísleg not af honum, nefnir
kennslu og ferðaþjónustu, meðal
annars mannflutning, og veiðar í
smáum stíl ef kvóti fæst.
Safnið er með aðstöðu til fisk-
verkunar við safnhúsið í Ncðsta-
kaupstað á Isafirði og hefúr sól-
þurrkað um eitt tonn af þorski á
sumrin. Er það liður í að sýna ferða-
fólki gömul vinnubrögð við fisk-
verkun. Segist Jón vel geta hugsað
sér að margfalda þann tonnafjölda
sem safnið verkar.
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
Sextugu Dísirnar, þær tvær sem eftir eru, liggja nú hlið við hlið í ísa-
Ijaröarhöfn. Sædís er nær bryggjunni en áhugi er á að varðveita hana á
sjó í sinni upprunalegu mynd. Bryndís er enn gerð út.
Fleiri flytja
frá höfuð-
borgarsvæð-
inu en til þess
ENN dregur úr búferlaflutningum
af landsbyggðinni til höfuðborgar-
svæðisins og flutningar þaðan út á
land eykst. Þetta kemur fram í
Hagvísum Þjóðhagsstofnunar, þar
sem vísað er í tölur frá Hagstofu ís-
lands en samkvæmt þeim hafa um
12% fleiri llutt frá höfuðborgar-
svæðinu en til þess það sem af er
árinu.
Fyrst vai'ð vart við þessar breyt-
ingar á búferlaflutingum lands-
manna á öðrum ársfjórðungi ársins
og heldur þróunin áfram á þeim
þriðja.
Bæði á Suðurnesjum og Vestur-
landi eru fleiri aðfluttir en brott-
íluttir og á Suðurlandi munar ekki
miklu. A Vesturlandi eru það Akra-
nes og Borgarnes sem bera uppi
niðurstöðutölur landshlutans alls
en á Suðurlandi eru Selfoss og
Hveragerði með fleiri aðflutta en
brottflutta innanlands á meðan
fækkar á öðrum stöðum.
Fleiri flytjast til landsins en frá
því í öllum landshlutum nema Aust-
urlandi, þar sem ríkir jafnvægi.
------M-*-------
Slökkviliðið
kallað tvisvar út
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað út tvisvar í gærkvöldi, i
en í hvorugt skiptið var hætta á ferð-
um og tjón óverulegt.
Laust fyrir klukkan níu var
slökkviliðið kallað að Héraðsdómi
Reykjavíkur, þar sem kveikt hafði
verið í ruslafötu og rúmum hálftíma
síðar var það kallað að deild 12A á
Landspítalanum við Hringbraut þar
sem ísskápur hafði brunnið yfir.
Bdkaútgefendur áformuðu að gefa ekki upp leiðbeinandi verð í Bökatíðindum
Btíist við hressileg-
um „bókajólum“
Vegna breytinga sem orðið hafa á eignarhaldi bókaforlaga á árinu er jólabóka-
vertíðarinnar beðið með eftirvæntingu. Talið er að verðstríðið verði ekki
minna en fyrri ár og bókatitlum hefur fjölgað. Útgáfustjóri Iðunnar telur leið-
beinandi verð í Bókatíðindum skrípaleik en tekur bátt í leiknum, nauðugur
viljugur. Björn Jdhann Björnsson ræddi við nokkra bókaútgefendur.
útgefenda á dögunum kom til um-
ræðu að gefa ekki lengur upp leið-
beinandi verð bóka í Bókatíðindum,
sem félagið hefur til langs tíma
gefið út fyrir hver jól og koma út í
næsta mánuði. Ástæða umræðunn-
ar var sú að sumir útgefendur
töldu reynslu síðustu ára sýna að
lítið væri að marka leiðbeinandi
verð sökum mikillar verðsam-
keppni. Niðurstaðan varð hins veg-
ar sú að flestir bókaútgefendur
munu gefa leiðbeinandi verð upp,
en að sögn formanns Félags ís-
lenskra bókaútgefenda, Sigurðar
Svavarssonar, verður enginn
skyldaður til þess. Að sögn Jóns
Karlssonar, útgáfustjóra Iðunnar,
stóð til að gefa ekki upp Jeiðbein-
andi verð á bókum forlagsins en
hætt hefur nú verið við þau áform.
„Við ætluðum að gera þetta þar
sem mér finnst þetta orðið skrípa-
leikur þegar megnið af bókunum er
selt á allt öðru verði en gefið er
upp. Almennt er ég hlynntur því að
verð komi fram í auglýsingum og
annars staðar en ég vildi ekki vera
að gefa upp falskt verð til að taka
þátt í einhverri afsláttarkeppni. Ég
ákvað hins vegar í dag [gær] að
birta þetta þar sem allir virðast
ætla að gera það,“ sagði Jón þegar
blaðið ræddi við hann í gær.
Sigurður sagðist í samtali við
Morgunblaðið eiga von á hressileg-
um bókajólum, ekki síst í ljósi
breytinga á eignarhaldi útgáfufyr-
irtækja þar sem nýir aðilar þyrftu
að sýna sig og sanna á markaðnum.
Búist er við fleiri bókartitlum en í
fyrra, miðað við að bókakynningar
í Bókatíðindum eru komnar yfir
500 en voru um 460 í fyrra. Að sögn
Sigurðar helst verð á bókum svipað
og í fyrra. Þeir bókaútgendur sem
Morgunblaðið ræddi við töldu að
verðstríð á bókamarkaðnum yrði
ekki minna en verið hefur. Fátt
benti þó til að það yrði eitthvað
meira í ár en fyrri jól.
Frá síðustu jólum hafa hræring-
ar einmitt átt sér stað innan raða
bókaútgefenda. Bókaútgáfan Iðunn
sameinaðist Fróða, Mál og menn-
ing og Vaka-Helgafell sameinuðust
undir merkjum útgáfufyrirtækisins
Eddu, Jóhann Páll Valdimarsson
frá Forlaginu stofnaði JPV-forlag
ásamt fleirum og tveir starfsmenn
Máls og menningar gerðust með-
eigendur hjá bókaútgáfunni Bjarti.
Sigurður Svavarsson sagði að
verðsamkeppnin í fyrra hefði verið
með eindæmum. Einstakir smá-
söluaðilar, einkum stórmarkaðir,
hefðu borgað stórar fjárhæðir með
bókunum, sem hefðu jafnvel numið
hundruðum þúsunda yfir eina
helgi.
„Það er svo langt frá því að geta
talist viðskiptaleg glóra að halda
megi áfram með sama hætti.
Afram verður reynt að keppa um
viðskiptavinina með verðlagningu
en það eru smásöluaðilarnir sem
eru í verðstríðinu. Bókaútgefendur
eru meira í hlutverki heildsala og
hafa þá sérstöðu að gefa árlega út
Bókatíðindin. Að mati meirihlutans
innan félagsins var talið að Bóka-
tíðindin myndu missa gildi sitt ef
neytendur fengju ekki upplýsingar
um verð þar líka,“ sagði Sigurður.
Hann starfar sem útgáfustjóri hjá
Eddu og sagði það forlag ætla að
gefa upp leiðbeinandi verð á bók- j
um Máls og menningar og Vöku- .
Helgafells.
Ekki góður kostur
Jóhann Páll Valdimarsson sagði
við Morgunblaðið að vissulega
væru ákveðnir annmarkar á því að
gefa upp leiðbeinandi útsöluverð.
En menn hefðu talið það skárri
kost að halda áfrarri, þótt sá kostur
væri ekki góður. JPV-forlag mundi
því gefa upp leiðbeinandi verð.
„Við vitum að útsöluverð er og .
verður afar mismunandi vegna til-
boða og verðsamkeppni. Leiðbein-
andi útsöluverð er ekkert annað en
viðmiðun fyrir kaupendur. Þetta
þarf alls ekki að þýða hið rétta
verð í bókabúðum. Við ákváðum að
halda okkur við þetta þar sem okk-
ur þótti það bagaleg þjónusta
gagnvart lesendum Bókatíðinda að
fólk fengi enga hugmynd um á
hvaða verðbili bækurnar væru.
Fólk er orðið það meðvitað í dag
urn þessa verðsamkeppni að því er
Ijóst að bækurnar munu meira og *
minna fást á hagstæðara verði en
gefið er upp,“ sagði Jóhann Páll.
Snæbjörn Arngrímsson hjá
Bjarti sagði að bókaútgáfan myndi
halda áfram að gefa upp leiðbein-
andi verð. Hann taldi þessa um-
ræðu ekki bera vott um meira
verðstríð nú en áður. Samkeppnin
yrði eftir sem áður mikil. „Þetta
verður nákvæmlega sami söngur-
inn og í fyrra, sem er að sumu leyti |
ágætt en að öðru leyti ekki,“ sagði “
Snæbjörn.
EIGNALIFEYRIR
N j ó t t u l ífs i H s (II / a ,e v i