Morgunblaðið - 26.10.2000, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Móðursystir mín,
HELGA SIGURÐARDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
andaðist mánudaginn 16. október síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum innilega auðsýnda samúð.
Fyrir hönd ættingja,
Sigurður Svanbergsson.
t
Útför ástkærrar móður okkar,
ÁSTU KRISTINSDÓTTUR WATHEN,
Ránargötu 21,
Reykjavík,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 27. október kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Krabbameinsfélag íslands.
Sunna Ronaldsdóttir Wathen,
Sean Ronaldsson Wathen.
t
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlý-
hug, vináttu og samúð við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
KRISTINS PÁLSSONAR
útgerðarmanns
frá Þingholti,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sem annaðist hann á Heilbrigðisstofnun-
inni í Vestmannaeyjum, til félaga í AKÓGES og Kvenfélags Landakirkju
fyrir veitta aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Þóra Magnúsdóttir,
Magnús Kristinsson, Lóa Skarphéðinsdóttir,
Jóna Dóra Kristinsdóttir, Björgvin Þorsteinsson,
Bergur Páll Kristinsson, Hulda Karen Róbertsdóttir,
Birkir Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
JÓNS S. GUÐMUNDSSONAR,
Ljósvallagötu 22.
Eysteinn Guðmundsson, Valgerður Guðleifsdóttir,
Ásgeir Guðmundsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir,
Kristín M. Guðmundsdóttir, Pétur Jóhannsson,
Sigríður Ósk Guðmundsdóttir, Mikael Gabríelsson,
Ólína Guðmundsdóttir, Einar Sigurbergsson,
Ruth Woodward
og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HALLFRÍÐAR NJÁLSDÓTTUR,
Hlíðarvegi 44,
Siglufirði.
Njáll Sverrisson,
Jóhandíne Sverrisdóttir,
Vigdís Sverrisdóttir,
Fríða Sverrisdóttir,
Hallgrímur Sverrisson,
barnabörn og
Ólöf Guðmundsdóttir,
Valdemar Guðmundsson,
Jónas Valtýsson,
Ingimar Jónasson,
Fanney Gunnarsdóttir,
barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar SIGURLAUGAR AÐALSTEINSDÓTTUR verður
skrifstofa skólans lokuð frá kl. 12.30 í dag, fimmtudaginn
26. október, og kennsla fellur niður frá kl. 13.00.
Tækniskóli íslands.
+ Sigurlaug Aðal-
steinsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 28. desember á
lýðveldisárinu 1944.
Hún lézt aðfaranótt
fyrsta vetrardags,
laugardaginn 21
þ.m. á heimili sinu í
Norðurbrún 32. For-
eidrar hennar voru
Aðalsteinn Jóhanns-
son, tæknifræðingur
og kaupmaður í
Reykjavík og kona
hans Hulda Óskars-
dóttir, húsmóðir.
Hulda lifír dóttur sína, en Aðal-
steinn dó 12. júní 1998. Systur
Sigurlaugar eru Guðný, f. 22.
febrúar 1942, og Auður María, f.
19. desember 1951. Guðný er gift
Sverri Hauki Gunnlaugssyni og
eiga þau þrjú börn,
Kristínu Huldu, f. 27.
maí 1964, Katrínu
Auði, f. 11. mars 1969
og Aðalstein Hauk, f.
20. júlí 1973. Auður
María er gift Vil-
hjálmi Bjarnasyni og
eiga þau tvær dætur,
tvíburana Huldu Guð-
nýju og Kristínu
Mörthu, sem eru f.
16. nóvember 1981.
Sigurlaug giftist
eftirlifandi eigin-
manni sínum Eggert
Jónssyni 6. apríl 1974
og eignaðist með honum tvo
stráka, Tómas Guðna Eggertsson,
f. 27. september 1974, og Eirík
Áka Eggertsson, f. 14. apríl 1977.
Sigurlaug varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1964 og öðlaðist starfsréttindi
meinatæknis hérlendis vorið
1966, en hélt þá utan til frekara
náms í Edinborg, óumdeildri höf-
uðborg Skotlands. Þar vann hún
lengst af við Royal Infirmary
sjúkrahúsið og lauk meðfram
starfinu prófí í meinatækni með
taugameinafræði sem sérgrein.
Hún hóf störf hjá Rannsóknar-
stofu Háskólans í vefjameinfræði
haustið 1971 og tók fljótlega við
kennslu nema í meinatækni á
grundvelli samvinnu Rannsóknar-
stofunnar og Tækniskóla íslands.
Hún var ráðin stundakennari í
fræðilegri og klínískri aðferða-
fræði í veljameinafræði við
meinatæknideild Tækniskóla ís-
lands 1983 og lektor í hlutastöðu
1991 en þeirri stöðu gegndi hún
til dauðadags. Hún lauk ennfrem-
ur prófi í kennslu og uppeldis-
fræðum frá Kennaraháskóla Is-
iands vorið 1997 með hárri fyrstu
einkunn.
Útför Sigurlaugar fer fram frá
Áskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
SIGURLAUG AÐAL-
STEINSDÓTTIR
Kveðja frá systur.
„Ég er upprisan og lífið. Sá sem
trúir á mig, mun lifa, þótt hann
deyi.“ (Jóh. 11.25).
Þegar sumarið hafði sent síðustu
sólargeisla sína og veturinn hélt
innreið sína, kvaddi Sigurlaug syst-
ir mín þennan heim. Það var henni
líkt, enda hafði hún yndi af því að
hlúa að fallegum blómum og runn-
um í garðinum sínum á sumrin.
Hún hafði barist við vágest í tæp
þrjú ár og gafst ekki upp fyrr en í
fulla hnefana þegar allur mannleg-
ur máttur var þrotinn. Öll vissum
við, sem stóðum henni næst, að
komið var að kveðjustund og það
vissi hún best sjálf. Vonin er sterk,
þess vegna kemur kallið óvænt og
söknuðurinn verður mikill.
Margs er að minnast. Það sem
fyrst leitar á hugann, er þegar dæt-
ur mínar fæddust og Sigurlaug
frænka var fyrst til að heilsa þeim.
Þá vorum við „litla fjölskyldan"
nýflutt til Vestmannaeyja og Sigur-
laug frænka lét ekki sitt eftir liggja
og vildi vera frænkum sínum til
halds og trausts fyrstu vikuna
þeirra í „Eyjum“. Upp frá því átti
hún stóran þátt í hjörtum þeirra
systra.
Fyrstu jólin okkar eftir að við
fluttum upp á meginlandið fengu
systurnar boð um að koma í pipar-
kökubakstur hjá frænku sinni.
Hélst sá siður öll árin. Þá var gam-
an að hitta frændur, bræðurna
Tómas Guðna og Eirík Áka og
seinna litla frændann, Eggert
Georg. Oft bættust fleiri við úr
„stór fjölskyldunni" og tóku þátt í
bakstrinum. Þetta voru „litlu jólin“
okkar.
Ég minnist jólaboðanna hjá syst-
ur minni. Það var einhver sérstakur
„sjarmi" sem fylgdi þeim. Dýrindis
máltíð, hljóðfæraleikur húsmóður-
innar og Tómasar Guðna undir
söng og dansað kringum jólatréð og
síðast en ekki síst upplestur hús-
bóndans á jólasögu.
Ég vil leyfa mér að halda því
fram að systir mín hafi að mörgu
leyti átt gjöfult líf á sinni stuttu
ævi. Hún öðlaðist menntun, sem
hugur hennar stóð til. Eignaðist
góðan mann og góð böm og vann
alla tíð að hugðarefnum sínum.
Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir
allt, sem hún var mér og mínum og
bið góðan Guð að styrkja feðgana.
Auður María (Maja).
Sumarið kvaddi fyrir tæpri viku
og alveg um sama leyti kvaddi jarð-
lífið elskuleg kona, Sigurlaug Áðal-
steinsdóttir. Mig langar til að sýna
minningu hennar þakkarhug fyrir
vináttu og gleðistundir sem ég varð
aðnjótandi af hennar hálfu, allt frá
heimahúsum æskuáranna til eigin
heimilis fullvaxta konu. Þeirra
stunda naut ég oftast með konu
minni, Guðnýju S. Óskarsdóttur,
móðursystur Sigurlaugar. Er þá
ekki sízt að minnast margra jóla-
boða, sem þau hjónin Sigurlaug og
Eggert héldu árlega um langt
skeið. Svo menningarlegar veizlur -
með tónlistar- og bókmenntaívafi -
hafa ekki gerzt betri annarstaðar,
það er ég handviss um.
En önnur minning eldri er mér
nú einnig ofarlega í huga. Þá var
Sigurlaug aðeins 4-5 ára að aldri,
einhver fríðasta yngismær í
Reykjavík og víðar. Við hittumst í
Kirkjutorgi 4, heima hjá ömmu
hennar, tengdamóður minni. Þetta
var á fögrum sumarmorgni og þar
sem við þurftum ekki neinu sér-
stöku að sinna ákváðum við að taka
okkur gönguferð í kringum Austur-
völl. Við gengum hönd í hönd og
töluðum um það sem fyrir augu
bar. Þú þekktir þá þegar Dómkir-
kjuna og svo benti ég þér á Al-
þingishúsið og styttuna af Jóni for-
seta. Og þú hlustaðir með athygli
og komst með skynsamlegar spurn-
ingar sem ég reyndi að leysa úr. Og
svo lukum við hringnum kringum
Austurvöll og alltaf síðan hefur
þessi morgunganga verið mér
minnisstæð vegna þess hvað ég
hafði yndisfallegan og skemmtileg-
an förunaut.
En nú er sumarið liðið. Ég vona
að feðgarnir, Eggert og synirnir
Tómas Guðni og Eiríkur Áki, geti
eftir megni vikið frá sér vetrar-
drunganum. Sama ósk vil ég að
berist Huldu, móður Sigurlaugar,
og systrunum, Guðnýju og Auði
Maríu, og fjölskyldum þeirra. Guð
blessi allt þetta góða fólk.
Baldur Pálmason.
„Þar sem jökulinn ber við loft
hættir landið að vera jarðneskt, en
jörðin fær hlutdeild í himninum,
þar búa ekki framar neinar sorgir
og þessvegna er gleðin ekki nauð-
synleg, þar ríkir fegurðin ein, ofar
hverri kröfu“. (HKL, Fegurð him-
insins).
Þegar vetur gekk í garð kólnaði
skyndilega. Mágkona mín, Sigur-
laug Aðalsteinsdóttir, lauk sinni
jarðvist eftir snarpa baráttu við
illvígan sjúkdóm. Þegar ég minn-
ist Sigurlaugar kemur mér fyrst í
hug umfjöllun skáldsins um feg-
urðina.
Sigurlaug hlaut gæfu og gjörvi-
leika í vöggugjöf. Hún fæddist á
menningarheimili og aflaði sér
þeirrar menntunar, sem hugur
hennar stóð til, og hún naut náðar-
gáfu sinnar sem fólst í tónlistinni,
píanó og harmónikka voru hennar
hljóðfæri.
í Eggerti eignaðist Sigurlaug
lífsförunaut, sem er henni um
margt ólíkur. Þau bættu hvort ann-
að og saman eignuðust þau tvo syni,
þá Tómas Guðna og Eirík Áka, sem
eru foreldum sínum og ættingjum
til mikils sóma. Og svo kom litli
kariinn, Eggert Georg sonur Tóm-
asar Guðna.
Sigurlaug á tvær litlar frænkur,
sem nú sakna hennar. Sigurlaug
er nefnilega fyrsta frænkan
þeirra. Hún var fyrsta frænkan,
sem kom og sá þær á fæðingar-
deildinni. Sigurlaug var upp-
áhaldsfrænkan þeirra. Nú baka
Hulda Guðný og Kristín Martha
ekki framar piparkökur með Sig-
urlaugu frænku. Þær systur sakna
vinkonu sinnar.
Fyrir tæpum þremur árum dró
ský fyrir sólu. Sigurlaug greindist
með vágest. Hún mætti örlögum
sínum, staðráðin í að hafa sigur.
Ef til vill vissi hún manna best
hvernig þeirri baráttu myndi lykta
en hún gafst aldrei upp. Hún
kveinkaði sér aldrei og hún stóð á
meðan stætt var. Sigurlaug vildi
vera heima; hún spurði vinkonu
sína: „Ef ég verð veikari, heldur
þú að ég verði þá að fara á spít-
ala?“ Vinkonan sagði nei og Sigur-
laugu var létt. Henni leið alltaf
best í faðmi fjölskyldunnar.
Þegar ég kveð Sigurlaugu ætla
ég að minnast fegurðarinnar og
hjartahlýjunnar.
„Best er að gleyma heimi sínum,
bæði því sem maður hefur orðið að
þola og eins hinu sem maður þráir,
því sem maður hefur misst og hinu
sem maður kann að vinna, gleyma
lífi sín sjálfs andspænis þeirri feg-
urð þar sem mannlegu lífi sleppir
og eílífðin tekur við, hið fullkomna,
fegurðin sem efsti dómur“. (HKL,
Fegurð himinsins).
Vilhjálmur Bjarnason.
Sigurlaug Aðalsteinsdóttir var
lífsglöð kona og elskuleg og hafði
góða návist. Við Ástríður áttum
fjölda ánægjustunda með þeim
Éggerti á borgarstjórnarárunum
og einnig síðar þótt dagleg sam-
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
%
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
KT sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstadur
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
U
w
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.