Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 82

Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 82
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM í KVÖLD og á laugardag ætlar Sin- fóníuhljómsveit íslands undir stjóm bandaríska hljómsveitarstjórans liiek Benjamin að ferðast aftur | -Qflfckkra áratugi og leiða bíógesti Há- skólabíós aftur inn í hina þöglu svart/ hvítu tíma kvikmyndanna. Gerð verð- t ur tilraun í til þess að endurskapa | þann rykfallna sjarma sem sveif í gegnum ljósgeislann frá sýningarvél- [ unum áður en kvikmyndimar lærðu i að tala. Rick Benjamin lagði stund á píanó- l nám við Julliardskólann í Bandaríkj- i unum og hefur um árabU verið stjóm- | andi The Paragon Ragtime Orchestra, einu sinfóníuhljómsveit | heimsins sem sérhæfír sig í undirleik við þöglu myndimar. t Lifandi töfrar | „Þetta var þannig að þegar kvik- ! myndaverin höfðu klárað myndimar horfði tónlistarstjóri þeirra á þær og ákvarðaði þá tímapunkta þar sem ný tónUst ætti að koma inn,“ segir Rick Benjamin hljómsveitarstjóri. „Síðan vora ábendingar tónhstarstjórans sendar ásamt filmunum til 8.000 til 10.000 bíóhúsa. Hvert bíóhús hafði sinn tónUstarstjóra sem tók við leið- beiningunum og rótaði svo á nótna- lager bíóhússins eftir réttu nótunum. Það var sérstef fyrir hverja senu. Það vora mjög fáar myndir á þessum tíma sem létu sérsemja fyrir sig tónlist. Það vora bara notuð brot úr hinum og tfiessum verkum.“ Þar af leiðandi urðu engar tvær bíósýningar nákvæmlega eins. Einnig var ekkert endilega víst að öll bíóhús- in ættu nótur allra þeirra verka sem tónUstarstjóri kvikmyndaveranna mældi með og þá var það starf tónUst- Sinfónían leikur undir við þrjár þöglar myndir í Háskólabíói í kvöld sveitarstjóra að þekkja þær kvik- myndir sem sýndar era eins og hand- arbakið á sér. „Utsetningarnar þurfa að vera ná- kvæmar upp á sekúndu. Það er mjög erfitt að stjórna hljómsveit á svona sýningum því þegar þú ert að sjá um undirleik við dans eða sviðsleik þá er einhver samvinna í gangi. Kvikmynd- ir era kaldar, þeim er alveg sama. Þær láta bara eins og við séum ekki þama, þær era vélrænar og miskunn- arlausar." Rick segir æfingamar með sinfón- íunni hafa gengið vonum framar. Á meðan á sýningum stendur snúa hljóðfæraleikarnir bakinu í sýningar- tjaldið og sjá því ekki myndina. For- vitnin hefur því oft náð yfirhöndinni og oft þegar einhver fui'ðuhljóð hljóma hafa hljóðfæraleikaramir að- eins stoUst til að líta um öxl. „Slagverksdeildin er að sjá um hljóðbrellumar. Þeim finnst þetta allt mjög skemmtilegt. Ég kom með nokkra kassa með mér af undratækj- um til þess að framkvæma hljóðbreUur. Barnagrátur, kúabaul og alls- konai' furðu- flautur, bjöllur og ásláttar- hljóðfæri. Bíó- gestir eiga eftir að heyra ýmiss konar furðuhljóð," segir Rick að lok- um. Auk Sinfóníunnar standa Kvik- myndasjóður íslands og Kvikmynda- safn Islands fyrir sýningunni. Sýning kvöldsins hefst kl,19:30 en sýning laugardagsins kl.15. arstjóra bíóhúsanna að finna aðra álíka tónsmíð úr safni sínu til þess að íyUa upp í skarðið. „Það sem er svo áhugavert er það að á þessum tíma vora átta til tíu þús- und hljómsveitir starfandi í bíóhúsun- um og það á tíma þegar aðeins sex sinfóníuhljómsveitir vora starfandi í Bandaríkjunum. Þannig þúsundir verka vora samin fyrir bíóhúsin.“, Afi Ricks var einn þeirra fjölmörgu tónUstarmanna sem veittu þöglu myndunum hljóð á íyrri hluta þessar- ar aldar. Hann talaði oft með saknað- artón um þá einstöku stemmningu sem myndast við lifandi undirleik Kvikmyndir eru kaldar Gamanmyndimar þrjár sem sýnd- ar verða í kvöld og á laugardag era The Immigrantmeð Charles Chaplin, The Cops með Buster Keaton og Never Weaken með Harold Lloyd. Það er mjög mikilvægt fyrir hljóm- tónUstar á kvikmynda- sýningum. „Jafnvel eftir að hafa séð nútíma- myndir með þeim gæðum sem þær hafa í dag, talaði hann um að töframir væru horfn- ir.“ Og þann- ig vaknaði áhugi Ricks Benjamin til þess að endur- skapa þessa fomu stemmn- ingu í sagn- fræðilegum til- gangi. Sinfónía í svarthvítu Þegar Chaplin féll á óæðri endann var það hljómsveitarstjóri sem sá til þess að hljóðið skilaði sér til áheyrenda. Birgir Örn Steinarsson hitti Rick Benjamin hljómsveitarstjóra sem ætlar ásamt Sinfóníunni að færa þöglum myndum hljóð. Morgunblaðið/Þorkell Rick Benjamin að störfum, með bros á vör. Þegar kvikmyndaverin höfðu klárað myndirnar horfði tónlistarstjóri þeirra á þær og ákvarð- aði tímapunktana þar sem ný tónlist ætti að koma inn t Frakklands FYRIR tveimur áram kom út hér á landi fyrsta breiðskífa tvíeykisins Bang Gang sem var þá skipað þeim Barða Jóhannssyni og Esther Talíu Casey. Þegar platan kom út var Bang Gang þegar búið að ná samningi við East/West í Frakklandi, undirfyrirtæki Warner-útgáfurisans, um út- gáfu á breiðskífu þar í landi, en Frakkarnir féllu fyrir lag- inu „Sleep" vorið 1998. Það tekur þó tíma að koma skífu saman fyrir útgáfu ytra, íðida talsverð vinna lögð í að syngja lög upp á nýtt, snurf- usa og endurvinna, og einnig endurhljóðblandaði Kid Loco tvö iög. Platan kom svo út í Frakklandi og Þýskalandi fyrir tveimur vikum og nokkrir dómar um plötuna hafa birst f frönskum blöðum en Barði Jóhannsson segir að frönskukunnátta sín sé ekki beys- in og hann skilji ekki það sem þar stendur. „Það sem ég hef fengið að Morgunblaðið/Björg Barði og hjálparhellurnar Jóhann Gunnarsson bassaleikari, Arnar Þór Gíslason trommuleik- ari og Þórhallur Bergmann hljómborðsleikari. Til að ljá Bang Gang rödd hefur Védís Hervör Ámadóttir söngkona einnig slegist í hópinn. sjá hing- aðtil hefúr alla vega verið mjög veglegt í blaðsíðum talið, það er minn mælikvarði enda er ég ekki vel að mér í frönsku." Til að kynna skífúna er Bang Gang- flokkurinn á leið til tónleikahalds ytra. í haust kom hingað til lands fríður hópur blaðamanna að hitta hljóm- sveitina að máli, en á næstu dögum heldur Bang Gang svo til Frakk- lands í snarpa tónleikaferð, en leikið verður á sex tónleikum á sjö dögum. Tónleikamir verða ýmist í sjónvarpssal eða skemmtistöðum í París eða nálægum borgum, en á milli þess sem Barði flengist um Pa- rís með hljómsveit sinni verður hann í viðtölum. Eins og getið er var Bang Gang tvíeyki á súium tíma, en Esther I nýjasta tölublaði franska tíma- ritsins Mix er að finna myndar- lega umfjöllun um Barða og Bang Gang undir yfirskriftinni „Isstjarna". sneri sér að leiklistinni og sfðan má segja að Barði hafí verið einn í sveit- inni, en fengið söngkonur til liðs við sig eftir því sem honum hefur þótt þurfa. í Frakklandsferðinni verður hann með gott betur sér til halds og traust, því hann hefur sett saman hljómsveit sem skipuð er þeim Jó- hanni Gunnarssyni bassaleikara, Arnari Þór Gislasyni trommuleik- ara, Þórhalli Bergmann hljómborðs- leikara og Védísi Hervör Arnadótt- ur söngkonu. Sveitin mun leika á sjónvarpsstöðinni Canal +, í helsta spjallþætti Frakklands, Nulle Part Ailleurs. Einnig leikur Bang Gang í M6-sjónvarpsstöðinni, þætti sem heitir því góða nafni Hit Machine, þá í tveimur plötubúðum, síðan Batof- ar-klúbbnum á Signu og loks á tón- listar- og menningarhátíð í Caen. „Hátíðarhaldaramir töluðu um að þetta yrði í fyrsta skipti sem techno- tónleikar era haldnir í leikhúsi þar á bæ,“ segir Barði og kímir. Á milli þess sem leikið verður á tónleikum verða viðtöl veitt af kappi að sögn Barða; „þetta verður í það minnsta ekkert frí.“ Eins og getið er hafa ýmsar söng- konur komið við sögu Bang Gang undanfarið, en þær eru þijár sem helst hafa sungið með sveitinni, Esther Talía, sem var í hljómsveit- inni í upphafi, Védís, sem fer með út til Frakklands, og Sara Guðmunds- dóttir, en fyrir tveimur vikum hélt Bang Gang tónleika í Noregi og þá söng Sara. Barði segir að það sé í sjálfu sér ágætt að hafa svo margar söngkonur upp á fjölbreytni að gera, þó best færi á því að vera með einhveija fasta: „Ég spái þó ekki mikið í það, þetta hefúr allt gengið að óskum hingað til. Ég velti þessi kannski fyrir mér þegar ég byija á næstu plötu.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.