Skírnir - 01.01.1899, Qupperneq 17
Hagur laniHmanna. Mentamál.
17
hlnt í stofufénu, er var um 6 millíonir króna. Hafði félag þetta bæki-
stöð sína á Akraneei og í Hafnarfirði, bélt það úti 6 botnvörpuskipum og
lagði fisk hjer upp og ealtaði. En illa farnaðÍBt félogi þesBU. Yarð afL-
inn lítill, en kostnaðnr afarmikill. Hefur nú heirst að skaðinn hafi orð-
ið um 300000 krónur, og að félaginu verði slitið. Aunað félag var stofn-
að á austurlandi er Garðar nofnist. Yoru þeir í stjórn þess Þorsteinn
Erlingsson og fleiri á Seiðisfirði, en forkólfur þess Hermann nokkur, þísk-
ur að ætt. Það félag hefur verið aðgerðarlitið, en nú hefur heirst, að
misklíð sé upp komin meðal stjórnanda þess. Um aflabrögð þess hefur
ekkert heirst.
Enn má þess geta, að enskur fiskikaupmaður, Ward að nafni, settist
að í Hafnarfirði og hélt þaðan úti einu botnvörpuskipi og saltaði fiskinn.
Hafði hann einnig skaða á því og hætti.
í páskavikunni barst ishroði að MelrakkaBléttu og var mikið af blöðru-
sel í ísnum. Voru drepuir 100 selir. Þá rak um 5 hvali þar um slóðir
á árinu. — Enn skal þess getið að hákallaBkip öfluðu fremur vel.
Ábirgðarfélag þilekipa við Faxaflóa hélt fund með 20 skipBeigöndum
13. febrúar. Árið áður voru 32 skip í ábirgð. í fiista flokki voru 16
skip, virt á 160735 kr. vátrigð firir 101133 kr. En í öðrum flokki voru
16 skip, virt á 123045 kr.. vátrigð firir 76126 kr.
Skipastóll var enn aukinn þetta árið, þótt ekki væri það jafnmikið og
ondanfarin ár.
Landskjálftakippir fundust víða um suðurland og vesturland, en eng-
inn beið neitt tjðn af því.
Fólkstalan á öllu landinu var um áramótin sem hjer segir: Eftir
skírsluin presta voru 76207 menn á landinu 31. desember 1898. Fæðst
hafði 2361 barn, en dáið höfðu 1707. Þar af druknuðu 73, en 11 dóu af
slisum og 2 höfðu firirfarið sér sjálfir. Hefur fólksfjöldi vagsið um 654 á
árinu 1898.
Mentamál. Áge Schierbeck tók embættispróf í læknÍBfræði (2. oink.)
við háskólann í Höfn. Magnús ArnbjainarBon frá Selfossi tók firri hluta
embættiaprófs í lögum við háskólann í Kaupmannahöfn (1. eink.) og Jón
öorkelsson frá Reinivöllum sama próf (1. eink.) og enu Páll Vídalín Bama
próf (1. eink.). Firri hluta læknisprófs tók Siguiður Magnússon frá Lauf-
ási (með 1. eink.). Sigurður Péturseon frá Ánanaustum tók embættispróf
I verkfræði við báskólann í Khöfn (1. eink.).
Sklrnir 1900.
2