Tímarit - 01.01.1873, Page 104
104
messu til jóla. Á þessum árum hélt Þorsteinn sýslu-
maður 7 og stundum 8 vinnumenn, og tíundaði þá opt
yfir stórt hundrað hundraða í lausafé, er sýnir, hvílíkur
búhöldur hann hefur verið.
Leiðréttíngar:
1. Eg hefl getið þess, að Jón, sem Einarsnesættin
er komin frá, kallist í ættartölubókum ýmist Magn-
ússon, eða Guðmundsson Magnússonar, en eg hefi
fundið í bréfum, að faðir hans hefir heitið Magnús.
2. Hefi eg getið þess, að sumir teldu Þorgils, afa
Þorsteins sýslumanns Sigurðssonar, Bergþórsson
Bjarnasonar, en aðrir sleptu Bergþóri út úr, og
kölluðu Þorgils Bjarnason; en í áminstri æfisögu
Þorsteins sýslumanns, er Þorgils talinn Bergþórs-
son, sem því án efa er hið rétta; þeir langfeðgar
|>orsteins sýslumanns, Bergþór, Þorgils og Sigurð-
ur bjuggu allir á Jörfa í Haukadal.
Kosíar innheft 42 sk.