Gefn - 01.01.1872, Qupperneq 30

Gefn - 01.01.1872, Qupperneq 30
32 gegnum þrístrent gler ljós járnsins með stækkunargleri í þessum ljósbreytíngum, þá sjá menn hvernig regnbogalitir koma fram hvorr eptir annan eptir því sem járnið hitnar meira, öldúngis eins og í sólargeislanum: fyrst hinn rauði, þá gulrauður, gulur, grænn, ljósblár, myrkblár og loksins, þegar hitinn er orðinn 1200 stig, þá kemur fjólublái litur- inn fram, hinn sjöundi, og þá er sama hlutfallið komið og það sem er í sólargeislanum. Hinir sjö litir, sem í ljósinu eru, eru sjö geislar, sem hverr fær sinn lit af þeim bylgjuhraða sem hann flýgur með í gegnum rúmið; geislarnir fara eða fljúga í öldum eða hlykkjum eins og í krákustig og menn vita gjörla hlutfall hvers eins: rauði geislinn er beinastur, það er: hans öldu- gángur er minnstur, eða: hann brotnar minnst. Fjólublái geislinn, sem síðast kemur fram, er blykkjóttastur, það er: hans öldugángur er mestur, eða: hann brotnar mest. þessi öldugángur er titríngur eða skjálfti ljósgeislanna, og vér hefðum einnig getað kveðið svo að orði: að rauði geislinn skjálfi minnst, en hinn fjólublái mest. Menn vita og vel hversu skjótlega þessi skjálfti gengur, en það verður ekki mælt nema með millíónum og billíónum. (4000 rauðir hlykkir reiknast á hverri línu). í raun og veru er Ijós og hljóð hið sama: eyrað sér ekki, og augað heyrir ekki; en það sem eyrað ekki sér, það sér augað, og það sem augað ekki heyrir, það heyrir eyrað: það er: heyrnartaugarnar skynja allt sem hljóð, og sjónartaugarnar skynja allt sem ljós: fái menn högg á augað, eða þrýsti á það þegar þvi er haldið lokuðu, þá bregður glampa fyrir innaní liöfðinu, og vér sjáum ljóshríngi: það er Ijósseðli sjónartauganna, semvaknar við þrýstínguna, en sjálfar sjónartaugarnar finna ekki til neins sársauka, þær tinna ekkert nema ljósið; sársaukinn eða »tilfinníngin« merkist af öðrum taugum, sem liggja þar í kríng eins og annarstaðar. Efvér ímyndum oss einhverja veru, gædda einhverju lífi, en sem ekki væri nema tóm heyrn og svo næm, að hver hin minnsta þrvstíng gerði áhrif

x

Gefn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.