Gefn - 01.01.1872, Side 46

Gefn - 01.01.1872, Side 46
Landnám Landnám köllum vér það að einhverjir menn nema land og kasta á það eign sinni til þess að búa þar, hvort sem nokkur þjóð er fyrir eða ekki. þetta er hin rúmasta merk- íng orðsins. í fornöld voru lönd víða numiu svo vér höfum sögur af; það voru ekki einúngis Grikkir, heldur og ótal aðrar þjóðir, sem fengu sér nýja bústaði híngað og þángað út um heiminn, og þegar einhverjir voru fyrir, þá urðu ætíð atburðir milli þeirra og komumanna. En þá var lífið raunar með öðru móti en nú, menn voru ekki eins komnir til sjálfra sín og menn nú eru, og það sem nú er kallað grimð og ójöfnuður, gerði daufari áhrif á menn en það mundi nú gera. Samt getum vér ekki dæmt um þetta af neinni reynslu; vérgætum í rauninni vel ímyndað oss, að tilfinníngar hafi einnig á þeim tímum verið vakandi í brjóstum mannanna, með hverju móti sem það kann að hafa verið; vérvitum elcki nema mörgum kunni að hafa þókt sárt að sjá á bak átthögum sínum, og yfir höfuð er rnjög bágt að dæma um flestar fornaldar- þjóðir, af því vér þekkjum ekkert að kalla til þeirra nema af ritum Grikkja og Rómverja, sem fyrirlitu alla nema sjálfa sig, og dæmdu því alla öldúngis rángt. Yarla mun nokkurt fegra né friðsamlegra landuám finnast en íslands. J>ar voru engir fyrir til þess að banna mönnum

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.