Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Side 42

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Side 42
42 er farið upp á heiðina, sem kölluð er Dynjandisheiði; er hún á milli Arnarfjarðar og (xcirjtjófsfjarðar. Á Dynjanda fékk eg mér kunnugan mann, svo eg hafði tvo menn og tvo hesta ; um kveldið lögðum við á heiðina; það er í fljótu máli sagt, að eg hefi aldrei á æfi minni farið yfir jafnvonda heiði, og heitir hún bráðófœr með hest að fara, þó maðr neyðist til þess. Upp á heiðina er ákaflega hátt, og svo snarbratt, að hestarnir stóðu nær upp á endann; þegar loksins upp kom, tók bráðum ekki betra við; þá eru holurðir og stórgrýti, enn sumstaðar vóru fannir, og reyndum við að þræða eftir þeim. Að norðanverðu er þó heiðin allra verst; þar sem hún er hæst, heitir kjölur; hann er þó engan veginn hár hryggr, þvi að ofan er heiðin flöt í heild sinni. Enginn er hér vegr, því ekki er fjölfarið hér, enn þó sýndist mér á einstaka stað sem votta fyr- ir, að til forna hafi hér verið einhver ruddr vegr. og það ekki svo lítið mannvirki. Á leiðinni fengum við þokugúlp og rigningu. f>annig klöngruðumst við áfram um nóttina með hestana ; ekki má heiðin heita löng; eg held við höfum verið um fjóra tíma yfir hana; niðr af heiðinni að sunnan er ekki bratt, enn þó vegr hinn versti. þegar niðr dró í Geirþjófsfjarðarbotn, fór að koma smá- skógr; vóru það mikil umskifti ásýndum. Niðr að Botni komum við um miðja nótt; svo heitir sá eini bœr sem þar er; það er lítill bœr; gerðum við fyrst vart við okkr, og lágum svo í heyhlöðu það sem eftir var nætrinnar. Mánudaginn 31. júlí var rigning framan af, enn batnaði um hádegi og gerði sólskin og bezta veðr; fór eg þá að skoða mig um, og notaði til þess það sem eftir var af deginum. Aldrei hefi eg komið á neinn stað, sem mér var meiri forvitni á, enn Geir- þjófsfjörð. Oft hafði eg gert mér hugmynd um, hvernig hér hag- aði til á þessum útlegðarstað Gísla Súrssonar, þar sem sagan lýsir svo nákvæmlega viðburðunum. Geirþjófsfjörðr gengr inn af Arnarfirði, eins og sagan segir, Mns. bls. 38; nær hann lengst inn allra Suðrfjarðanna, sem kallaðir eru; skal þeirra síðar getið; íjörðrinn er langr enn ekki breiðr; inn- an úr botni sér út eftir honum öllum og í fjöllin, sem eru að sunn- anverðu við Arnarfjörð. Dalrinn inn frá firðinum er allbreiðr enn ekki langr; er hann sem hálfkringlóttr fyrir; þar er mikið undir- lendi ; allr dalrinn er yfir höfuð skógi vaxinn upp í botn og upp í hlíðar beggja meginn, og mest alt undirlendið; einkannlega nær skógrinn langt út með firðinum að sunnanverðu; þó sögðu mér kunnugir menn, að skógrinn hefði verið miklu meiri áðr í Geirþjófs- firði. Upp frá fjarðarbotninum er sléttlendi að norðanverðu við ána. þ>ar stendr bœrinn Botn skamt upp frá sjónum; túnið er mest slétt. Áin rennr í djúpum gljufrum upp frá ; þar kemr önnur á í hana, sem heitir Austrá, og er hún líka með gljúfrum, og myndast tunga milli

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.