Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Síða 71

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Síða 71
7i SKÝRSLUR I. Aðalfundr félagsins 2. ágúst 1883. Hinn annar aðalfundr félagsins var haldinn 2. ágúst 1883. Varaformaðr félagsins, herra Sigurðr Vigfússon, sýndi eftir- mynd þá af víkingaskipinu frá Gokstað í Noregi, er félagið hefir útvegað með samskotum, og skýrði frá ýmsum atriðum um skip þetta. Formaðr félagsins, Árni Thorsteinson, lagði fram reikning félagsins frá 2. ágúst 1882 til 2. ágúst 1883, og skýrði frá því, að tala félagsmanna væri orðin 29, sem gengið hefði í félagið æfi- langt, enn 231 með árstillagi, alls 260. Sumarið 1882 fór varaformaðr félagsins, herra Sigurðr Vigfús- son, um allmikinn hluta af Vestfjörðum, og hóf þar hinar miklu og ítarlegu ransóknir, sem skýrt er frá í Árbók þessari. Honum hepnaðist og í ferð sinni að safna mörgum og góðum gripum, sem hafa aukið forngripasafnið að mjög miklu. Eins og ákveðið var á ársfundi félagsins 2. ágúst 1882 hlut- aðist stjórn félagsins um, að gjöfum og samskotum væri safnað til þess, að fá eftirmynd af víkingaskipinu frá Gokstað, til þess að hún yrði til sýnis á forngripasafninu. Áskorun félagsins í þessu efni hafði svo góðan árangr, að eftirmynd skipsins varð albúin og kom hingað vorið 1883, og er hún nú á forngripasafni voru. þess skal getið, að formaðr félags Norðmanna til verndunar á forn- menjum, herra N. Nicolaysen, hefir gert sér mikið ómak við út- vegun eftirmyndar þessarar, og haft gætr á, að hún væri rétt í alla staði. Frá forngripasafni Dana (Oldnordisk Museum) hefir verið send að gjöf eftirrtiynd af Valþjófsstaðarhurðinni, steypt úr gypsi í fuilri stœrð, og svo vönduð, að hana má telja svo gott jafngildi hurðarinnar, sem verða má á þenna hátt. f>ó œskilegast hefði verið, að hurðin sjálf ætti dvöl á safni voru, þá er með þessu bœtt

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.