Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Side 69
69
6186. ®/9
6187. —
6188. —
6189. “/,
6190. 18/9
* 6191. —
6192. —
Orf, nýsmíðað, úr furu, eftir Pál Kristjánsson, Húsavík;
með venjulegu, íslenzku lagi að mestu leyti. L. 181,5
sm. — Osneitt að neðan og hólkalaust.
Hrífa, nýsmiðuð, skaft úr furu, haus úr beyki, tindar
úr brúnspæni; eftir sama og síðasta nr. Járnbeygja er
sett á haus og skaft, svo sem tíðkast á síðustu árum.
L. 204 sm.
Ullarþráður tvinnaður, hvítur, tvær hespur; einkar vel
spunninn og tvinnaður; grannur mjög. Frá húsfrú Jó-
hönnu Jóhannsdóttur, Kolgröf í Skagafirði.
Þessi síðasttöldu 4 nr. (6185—88) voru fengin til
safnsins af Iðnsýningunni s. á.
Finnur Jónsson prófessor, Kaupmannahöfn: Met úr bronzi,
sívalt, þverm. 2,7 sm., hæð 1,5 sm., bollamyndað, vídd
innan 1,3—1,7 sm., dýpt 1 sm. Þyngd um 53—4 gr.
(2 aurar?). Fundið á Gásum við Eyjafjörð fyrir nokkr-
um árum, ofarlega í jörð nálægt búðatóftum þar; hefir
nýlega verið sorfið á tveim stöðum lítið eitt, en óskemt
og heilt að öðru leyti.
Líkneski Mattheusar guðspjallamanns, skorið úr tré og
málað, kyrtillinn gulur, kápan græn með gyltum borð-
um. Líkneskið er stórskemt, vantar á hægra fót, hægra
framhandlegg og hendi, nefið og fleira. Hæð, með litl-
um palli, sem áfastur er undir, 40 sm. Maðurinn vængj-
aði (eða svo sem var álitið á síðari öldum: engillinn) stend-
ur við hægri hlið Mattheusar aftan til og hafa þeir
snúið höfðum saman, en höfuð, hægra væng og hægri
hendi vantar á þessa mynd. Mattheus heldur bók undir
vinstri hendi.
Líkneski Markúsar guðspjallamanns; svipað nr. 6190 að
öllu leyti; kyrtillinn blár og kápan ranð; hægri fram-
handleggur og hönd af. Ljónið liggur við vinstri hlið.
Hæð 40 sm. Bók í vinstri hendi.
Líkneski Jóhannesar guðspjallamanns; svipað nr. 6190
og 6191 að öllu leyti; Jóh. er hér myndaður sem ung-
lingur. skegglaus; kyrtill stuttur, rauður; kápan fellur
niður um fæturna, græn. Hægri arm og hönd vantar.
Bók í vinstri hendi. örnin við hægri hlið. Hæð 39 sm.
Öll þessi líkneski voru fyrrum á prédikunarstól í
kirkjunni á Ingjaldshóli, en sá stóll er gjöreyðilagður.
Líkneski Lúkasar mun og glatað. Myndirnar eru vel