Fréttablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 14
2! KÖRFUBOLTI TT qiQA-itiArra/H -ílUé' TRF 11ABLAÐIÐ 100S 16UnbJ_;?J PUOAQUiaiHtt 15. janúar 2002 ÞRIÐJUPACUR EFSTU LIÐ N BA-DEILDARIN N AR VESTURSTRÖND LIÐ U T L.A. Lakers 26 8 Minnesota 27 9 Sacramento 27 9 San Antonio 25 9 Dallas 25 11 Utah 19 17 Seattlc 19 17 Phoenix 19 19 AUSTURSTRÖNP LIÐ u T New Jersey 24 11 Milwaukee 21 13 Boston 22 14 Indiana 21 17 Toronto 20 17 Washington 18 16 Orlando 19 20 Detrolt 17 18 Real Madrid: Með Vieira í sigtinu fótbolti Real Madrid hefur áhuga á því að lokka Patrick Vieira hjá Arsenal eða Andriy Shevchenko hjá AC Milan til liðs við sig fyrir næsta leik- tímabil. Florentino Perez, forseti spænsku risanna, segir þessa tvo vera á listanum hjá Jorge Valdano þjálfara. Perez var viðriðinn ráðningar Luis Figo og Zinedi- ne Zidané. Þeir voru báðir keyptir fyrir ótrúlegar fjárupphæðir. Hann segir Real hinsvegar aðeins muna bæta við sig einum stjörnuleikmanni fyr- ir næsta leiktímabil. „Valdano er smekkmaður og hann hugsar um þessa tvo. f besta tilfelli eigum við eftir að næla í ann- an þeirra," sagði Perez. Hann segist ekki hafa áhyggjur af því að hafa svo marga stjörnuleikmenn í liðinu. Aðdáendurnir séu svo ánægðir. ■ Enski bikarinn: Sex leikir í kvöld PATRICK VIEIRA Seldur frá AC Milan til Arsenal 1996. fótbolti Sex leikir fara fram í enska bikarnum í kvöld. Ekki mörg úrvalsdeildarlið spila en það er einnig spilað í bikarnum á morgun. Leikir kvöldsins eru: Crewe á móti Sheffield Wednes- day, Fulham á móti Wycombe, Middlesborough gegn Wimble- don, York á móti Grimsby, Brighton gegn Peterborough og Brighton á móti Preston. Margir þessarra leikja áttu að fara fram fyrr í mánuðinum en var frestað vegna veðurs. Fyrri leikur Wycombe og Fulham fór 2- 2 og Middlesborough gerði markalaust jafntefli við Wimbledon. ■ O’Neal í slag: Shaquille sá rautt körfubolti Það hefur löngum tíðkast hjá varnarmönnum, sem eru að spila við Los Angeles Lakers í NBA deildinni, að brjóta illa á Shaquille O’Neal. Þetta gera þeir einfaldlega til að halda Shaq í skefjum. Hann skorar fjölda stiga í hverjum leik og tekur barsmíð- unum jafnan ótrúlega vel. Á laugardaginn fékk Shaq hins- vegar nóg þegar Lakers voru að spila við Chicago Bulls. í hvert einasta skipti sem hann var með boltann undir körfunni brutu Brad Miller og Charles Oakley harkalega á honum. Mælirinn fylltist þegar þeir hrintu Shaq þegar hann fékk sendingu. Hann hljóp á eftir Mill- er og sendi tvö þung högg að hon- um þar sem hann sneri baki í hann. Fyrra höggið var vindhögg en það seinna fór í mark. Bolarnir tveir fóru í gólfið. Það þurfti fjöl- da manns að stía þeim í sundur. Miller stóð upp skyrtulaus og all- ur í skrámum. Oakley meiddist ekki en hann hellti sér af fullum krafti í slagsmálin. „Maður þarf að hugsa tvisvar um þann sem ræðst aftan að mann,“ sagði Miller. „Ég var feg- inn að Oakley var þarna til að hjálpa mér.“ Lakers töpuðu leiknum 1.06- 104. Líklegt er að O’Neal fái nokk- urra leikja bann. Hann talaði ekki við fréttamenn eftir leikinn. ■ HÖRKUSLACUR Shaquille O'Neal heldur hér í skyrtu Brad Miller eftir að hafa kýlt hann. Öryggisvörð- ur þurfti að rífa skyrtuna af Miller, Shaq neitaði að sleppa. Bulls vann 106-104. Virðingin kemur af því sem maður gerir Vanda Sigurgeirsdóttir tók nýverið við þjálfun kvennaliðs KR í knattspyrnu eftir að hafa þjálfað karlalið Neista frá Hofsósi síðastliðið sumar. Hún sagði Fréttablaðinu frá muninum á því að þjál- fa konur og karla. Einnig komu íjósaferðir Neistamanna til tals. SIGUR FYRSTU HELGI Vanda er enn að þjálfa Neista á Hofsósi, en mun hætta um leið og annar þjálfari verður ráðinn. Hér er hún á innanhússmótinu um síðustu helgi, sem KR vann. knattspyrna „Mér líst bara mjög vel á það að vera komin aftur í Vesturbæinn. Mér leið mjög vel síðast þegar ég var hérna og ég reikna bara fastlega með að svo verði aftur,“ sagði Vanda Sigur- geirsdóttir, nýráðinn þjálfari KR í kvennaknattspyrnu, þegar Fréttablaðið náði tali af henni í gær. Eftir að blaðamaður hafði óskað henni til hamingju með ís- landsmeistaratitilinn innanhúss ^ sem KR-stúlkur ,, unnu um liðna „Strákarnu- helgi> barst talið að eru ekki komandi tímabili a veg eins með kr „Næsta viðkvæmir og tímabil leggst bara stelpurnar" mjög vel í mig, enda er hópurinn góður sem ég er með í höndunum. Eg hef fengið tvo sterka leikmenn sem bættust við góðan hóp sem var fyrir," segir Vanda og á þar við systurnar Ásthildi og Þóru B. Helgadætur. Vanda býr um þessar mundir á Sauðárkróki. Næsta vor flytur hún til Reykjavíkur þar sem hún mun einbeita sér að þjálfun KR- liðsins, sem hún þjálfaði einnig fyrír nokkrum árum með góðum árangri. Síðasta sumar kom Vanda mörgum á óvart er hún tók að sér karlalið Neista frá Hofsósi, sem spilar í 3. deild. „Mér fannst bara mjög gaman að þjálfa liðið. Ég er mjög ánægð með Neistamenn að hafa gefið þér þetta tækifæri. Þeir eru á undan sinni samtíð í ís- lenskri boltaíþróttasögu," sagði Vanda um veru sína hjá Neista. Hvað varðar muninn á því að þjálfa karla og konur sagði Vanda að það væri að mörgu leyti svip- að. „Öll æfingauppbygging er al- veg eins þannig að ég þjálfa þá ekki á neinn annan hátt. Það eru þó ákveðnir hlutir sem eru öðru- vísi. Strákarnir eru ekki alveg eins viðkvæmir og stelpurnar, þar sem stundum þarf að tipla á tánum. Ég er reyndar ekki mjög fylgjandi því að standa yfir fólki og skamma það. Ég er meira fylgjandi því að maður eigi að reyna að láta áhugann koma inn- anfrá. Að áhuginn komi frá íþróttamönnunum sjálfum til að gera vel og það þurfi ekki einhver að standa og öskra yfir þeim. Það er bara þannig yfir höfuð að ef strákarnir gera einhver mistök þá er aðeins auðveldara að ráða við þá,“ sagði Vanda. „Það sem mér hefur fundist skondnast við að þjálfa meistara- flokk Neista er þeg- ar þeir hafa ekki komist á æfingar af því að það er vesen í fjósinu. Síðasta aði allt í einu sjö á F,ytur suður æfingu af því að þá í vor. voru þeir í hey- skap. Þetta var alveg ný reynsla fyrir mig,“ sagði Vanda aðspurð um minnstæð atvik frá þjálfun Neistaliðsins. En hvernig tóku strákarnir í Neista á móti henni? „Þeir tóku mér mjög vel. Það hefur stundum verið sagt við mig að kona geti alls ekki þjálfað karlmenn og þeir beri ekki virðingu fyrir henni. Það rættist engan veginn auk þess sem það er ekki minnsta mál fyrir mig að halda uppi aga,“ sagði Vanda. „Eins og ég hef alltaf sagt þá kemur virðingin ekki af því að vera þjálfari eða hvort þú sért kona eða karl. Virð- ingin kemur af því sem maður gerir. Um leið og þeir sáu að ég vissi hvað ég var að gera.þá var þetta ekkert mál.“ freyr@frettabladid.is VANDA Þroski • Gleði • Hreyfing • Samhæfing • Félagsstarf Skemmtilegt og spennandi! Skautaæfíngar fyrir börn og unglinga Skautafélagið Björninn listskautadeild Skráning og upplýsingar: Laugard. kl.1000 - I230 og mánud. kl: I5,s - 2000 og í síma 588-8700. ítalska liðið vill sigur: Ferrari girnist Montoya formúla i Meistararnir í Formúla 1, ítalska liðið Ferrari, eru á hött- unum eftir kólumbíska ökumann- inum Juan Pablo Montoya fyrir keppnistímabilið 2003. Hann byrj- aði að aka í Formúla 1 keppninni í fyrra og stóð sig mjög vel. Montoya er á samningi hjá Willi- ams. Ferrari hugsar Montoya sem eftirmann Michael Schumacher, sem hefur unnið heimsmeistaratit- ilinn fjórum sinnum. Samningur liðsins við ökumanninn Rubens Barrichello rennur út í lok ársins. Ef því tekst að næla í Montoya þarf hann að aka við hlið Schumacher og sætta sig við að láta í minni pokann. Samningur Ferrari við Schumacher rennur út í lok árs 2004. Það er hinsvegar hægara sagt en gert að næla í Kólumbíumann- inn. Hann hefur sagst vera áhuga- laus um að aka hjá Ferrari við hlið Schumacher vegna þess að Þjóð- verjinn yrði ávallt látinn ganga fyrir. Auk þess hefur Williams lið- ið forgang á keppnistímabilið 2003 og ætlar að öllum líkindum að MONTOYA OG SCHUMI Liðsfélagar að ári? halda í hann. Þar á bæ eru menn ekki ánægðir með ítalana. í ljósi áhuga þeirra kostar það mikla launahækkun að halda Montoya ánægðum. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.