Kvennablaðið - 30.11.1907, Blaðsíða 4

Kvennablaðið - 30.11.1907, Blaðsíða 4
81 KVENNABLAÐIÐ. öll fötin sem á að þvo í kalt vatn. Morg- uninn eftir vind eg alt upp með vindunni, og ber uppleysta sólskinssápu eða kastorin- sápu í alla bletti og rákir og nugga það vel. Síðan læt eg mátulega mikið af fötum ofan í sápulút úr kastoríu- eða sólskinssápu sem er í vélinni og soðin er áður úr 3 — 4 sól- skinssápustykkjum í hæfilega miklu vatni í þvottabala, með þvottinum. Þetta er eins og áður er sagt látið sjóða í 15 mínútur. Auðvitað verður að velja bezta þvottinn saman, og ó- hreinustu fötin sér. Síðan er farið að eins og hér að framan er sagt. Á þenna hátt má þvo mikinn þvott á 6 kl.st. án þess að þurfa að nugga eða bursta. Þau föt sem eg þvæ á þenna hátt eru hvítari, en með nokkru öðru móti. Þannig má spara tíma, krafta og peninga, og um leið hafa þá sælu meðvitund að vera ekki upp á þvottakonur komin. Af því eg sit venjul. fleiri kl.st. dagiega við ritstörf, þá hefi eg ekki tíma til að sauma eða gera við föt nema lítið eitt. En haust og vor tek eg saumakonu, sem gerir við gömul föt og saumar ný föt. Þá hjáipa eg henni sem eg get, og sauma í höndun- um það vandaðasta. Stöku sinnum er vönd- uðustu fötum komið fyrir annarstaðar. Á sumrin geri eg sjálf við allan nærfatnað og léreft, og sauma það sem vantar af nýju. Mönnum þykir ef tii vill undarlegt að eg tek mitt eigið heimilislíf sem fyrirmynd. En ef menn vilja berjast fyrir einhverri breyt- ingu, þá dugar ekki að draga sjálfan sig í hlé. Eg hefi viljað sýna að það væri vel unt að koma heimilisverkunum af án vinnu- konuhjálpar, með því að skifta límanum hyggilega, vera iðjusamur og reglusamur og nota sér uppfundningar nútímans, og auk þess hafa þó tíma til annara starfa. Ef eiuhver ber því við að ýmsar konur hafi ekki heilsu til þessa, þá svara eg því að kraftarnir aukist með áreynslu og æfingu. Auðvitað má maður ekki telja smárispur og skeinur á höndum, þær hverfa við vanann. Líkaminn styrkist lika ef maður þvær sér vel um hann alian í næturstöðnu vatni á hverj- um morgni, og tekur sér svo 10 mínútna »gymnastik« áður en tekið er til við vinn- una, Það er engin minkun fyrir neina hús- móður að gera heimilisverkin, og jafnvel ekki heldur, þótt hún þurfi að þvo gólf og gera hvað sem fyrir kemur. Alt er betra en að vera upp á hjálp annara kominn, sem veitt er með afarkostum. Það er eingöngu undir sterkum vilja komið að fá sig til að byrja. Svo þegar búið er að raða öllu niður hent- ugiega, þá gengur það eins og af sjálfu sér. Margir menn hafa þá stöðu að þeir geta hjálpað konum sínum með erfiðustu verkin. Þótt þeir hafi einhver viss emhættisstörf eða daglega erfiðisvinnu, þá geta þeir það oftast nær ef þeir vilja. Hvers vegna ætli konan ætti líka að vinna miklu iengri tíma en nokkur annar á heimilinu? En ef að öll fjöl- skyldan hjálpast að, og hver hefir sitt vissa verk að leysa at hendi af heimilisstörfunum, þá munu menn bráðum komast að raun um, að heimilið verður miklu skemtilegra þegar enginn vandalaus er, og að mjög víða, þar sem nú eru fleiri eða færri þjónandi verur, þarf enga aðra hjálp en þá, sem hjónin og börn þeirra geta skift á milli sín. Með því sparast mikil armæða, tími og peningar“. Sagan af Gústa Berling. Eftir Selmu Lagerlöf. (Framh.) Moðan Gústi dansaði við liana sat Sintram i sleðanum sínum niðri í garðinum, og fyrir aftan hann var Melchior Sinalaire. Hann beið Mariönnu óþolinmóðlega. Ilann barði ofan í snjóinn með stóra fótpokanum sínum og barði sér, pvi pað var mjög kalt úti. »Þú hefðir líklega ekki átt að spila um Mariönnu«, sagði Sintram. »Hvað segirðu?« Sintram lagaði til taumana, lyfti upp keyr- inu og sagói: »Kossarnir peir arna áttu ekki að vera í sýningunnÍK. Stóri herramaðurinn reiddi upp hendina, til að gefa Sintram fyrir ferðina, en hann var pá allur á brott. Hann keyrði hestinn með

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.