Njörður - 01.07.1917, Blaðsíða 2
94
NJÖRÐUR.
Sumargestir.
Guðm. Guðmundsson skáld dvel-
ur nú hér í bænum. Hann léfc
það ásannasfc, að ekki er gott að
maðurinn sé einsamall, þvi hann
hafði með sér konuna og dæfcurn-
ar allar, Hjördýsi, Steingerði og
Droplaugu. Slíkt fylgdarlið er
harla gott.
Um sama leyti kom hér vestur
hin nýja bók hans „Ljóð og kvæðiu
er bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar hefur gefið út og vandað
bið besta til.
Eg kom rétt núna höndum á
bókina. Hún færir bæði gamla
kunningja og nýja gesti, er 336
bls. og skift í 6 flokka.
Eg las fyrst endan. Það ræð
ég öllum til að gera við skáld-
skap hvort heldur hann er í ó-
bundnu máli eður rímaður. Þar
fekk ég:
Þúsund Ijóða land.
Þar sem hlustar hljóð
Hekla, þegar sær
fyrir söndum syngur fjær og nær, —
þar sem ljúflings-ljóð
léfctbrýn sveitamær
kveður glöð, er Gullfoss hörpu
slær, —
er mitfc æfctarland,
ástkærfc föðurland
ísland, ísland: þúsund ljóða land. :,:
Bókin er góð það bregst ekki,
sagði ég við sjálfan mig, svona
enda bindur enginn á bull. Nú
er best að lesa fyrsta kvæðið:
Heima.
Jeg uni mér best við arin minn,
er elskan mín situr með bros á kinn
og raular á vökunni sönginn sinn
við sofandi glókolla mína.
Jeg sit við borðið og lesþarljóð,
er loginn snarkar á aringlóð,
og brosandi geislar af gömlum óð,
sem góðvina bráleiftur skína.
Og hvar sem jeg lít er ljósbros eitt,
í litlu stofunni’ er bjart _ og hreitt,
frá dagstriti hvilist þar höfuð þreytt,
í heimilisfriðarins ríki.
Sem barnsaugu horfi’ inn í hjarta
mér,
með himneskan unað í för með sér,
hvert smávægið ilríki’ og birtu ber
í brjóst mér — í engils-líki.
Mér finnst jeg við alt og alla’ í sátt,
til einhverra þrekvirkja finn jeg
mátt, —
jeg kenni hvern einasta andardrátt
af elskunnar ljósvaka þrunginn.
Á blíðstiltum hljóðhreimum bersfc
mín önd,
sem brosandi leiði mig guð sér
við hönd
í eilífra hugsjóna heiðbjört lönd,
og heyrir þar friðarmál sungin.
— Hún leggur á öxl mér lófan sinn
og létt og vorhlítt um kollinn minn
hún strýkur, og mjúkan koss á kinn
jeg kenni sem árblæ hlýjan.
Þá finnst mér sem góðir andar að
mér ástmálum hvísli’ og geislabað
frá himni mig laugi á helgum stað
og hreimblæ mér veki nýjan.
Mér finnst jeg göfgast og hreinka
í hug,
og hálfu léttara viljans flug —
sem ósjálfrátfc víki alt á bug,
er andann til moldar dregur,
við guðdóminn skyldleik hans fyrst
jeg finn
er fyllir hún kærleik huga minn:
Guðs rniðill er elskandi ásthuginn
og eilífrar gæfu vegur!
Það tifcrar í kirðinni ljós um lin,
hún leiðir mig brosandi inn til sin
og bendir á sofandi börnin min
við bólsturinn ljósa og mjúka.
Þau draga andann svo djúpfc, en rótt
sem dreymi þau guð á heigri nótt.
— Hún læðist á tánum létt og hljótt
um lokkana þeirra’ að sfcrjúka.
I bæn mætast samhuga sálir tvær
og sjálfar sig kenna guði nær; —
við mænum þögul í framtíð fjær
á forlaga dulda vegu.
Og sjálfkrafa Ijóðstrengir titra títt.
og tónamál skelfur í kreimi blítt, —
hve blessað er inni, bjart og hlýtt
hjá börnunuin elskulegu.
Það er alveg óhætt að fara yfir
bókina upphafs milli og enda. Þar
er vafalaust margt gott, og þó
eitfchvað kynni að vera „svona
eins og geristu, hefur skáldið svo
mikið fyrir vanhöldum úr fyrsta
kvæðinu og svo gott ofanílag í
þvi síðasta, að lesarinn hlýtur að
verða ánægður, er hann athugar
feng sinn.
VESTA KOMIN.
Hún fór frá Seyðisfirði 27. maí.
Förin gjörð til Englands eftir
kolum.
Var hún af flesfcum talin af, en
sem betur fór snerist það á annan
veg. Kom hún í gær heilu og
höldnu til Hafnarfjarðar.
Herskip enskt fór með hana
vestur eftir öllu til að koma henni
undan kafbátum Þjóðverja.
TÍÐARFAR.
Frá Hvitasunnu til Jónsmessut
voru sífeldir kuldar. sólfar oftast
lítið en krepju-úrkomur suma daga.
Gjörði því hvorki gras að spretta
né fiskur að þorna.
Siðustu viku júnímánaðar var
þurkur hvern dag og suma þeirra
blífcfc veður.
AFLI.
Besti afli er nú kominn i Ögur-
nesi á smébáta.
Á færi afla menn allvel.
Á lóðir hefur fiskast vel á Siglu-
firði; þar hefur verið síld til beitu.
SÍLD.
Nokkrir bátar eru komnir út til
síldveiða og fleiri búast af kappi.
Til síldar hefur sést, en salts
ekki.
HEIM.
Bátarnir héðan hafa sumir sfcund-
að veiðar fyrir sunnan undanfar-
inn mánuð, sumir norður á Siglu-
firði.
Hvorirtveggja halda nú sem óð-
ast heim til þess að heilsa upp á
síldina.
KOLALAUST.
Kol fást nú engi, þótt gull sé
í boði.
Sumir sækja rekavið, margir
skera mó og nokkrir sækja surtar-
brand á Almenninga norður.
En ekkert dugar.
DÝR FLUTNINGUR.
Nýlega kom hingað kvartil frá
Kaupmannahöfn.
Það sem í því var vóg 50 kg.
og kostaði um 50 kr. þar í Khöfn.
Kvartilið sjálft kostaði 10 kr.
Flutningur á því hingað ásamt
ábyrgðargjöldum og fl. var 20 kr_
og 50 aurar.
Kvartilið kom við í Rvík og
hafði 6 kr. skaða á því, sem von var.
MEIRI MANNSPELL.
Svo er sagt, að í Ameríku sé
nýfundið sprengiefni, 10 þúsund
sinnum sterkara en dynamit.
Kemur það sér vel núna í stríð-
inu.
HYGGINDI SEM í HAG KOMA.
í einu héraði á írlandi er sögð'
uppreist, gjöra Bretar sem minnst
úr því, enda mun hún bæld niður
viðstöðulítið.
Allur þorri vígra manna af ír-
um er í hernum og berst þar fyrir
Breta.