Alþýðublaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 6
FYRIR tíu árum síðan var allt önnur merking lögð í orðið ungl- ingur en nú. Þær, sem nú eru kallaðar ungar stúlkur, hefðn þá ver- ið nefndar skólastclpur. Þær sóuðu lífinu íklæddar öklasokkum og reimuðum skóm, stuttpilsum, með hálsbindi og í skyrtum, sem betur hefðu sómt sér á karlmönnum (verr hefðu þær ekki getað farið). Og ef þær voru ekki svona til fara, voru þær útbúnar sem einhvers konar vasaútgáfur af mæðrum sínum. Nú er öldin önnur eins og meðal annars má sjá á þessari mynd. Þær eru óneitanlega augnayndi þessar þrjár. AÐÞRENGD- IR VOTTAR I sovézka blaðinu Sovét Molda via birt'st nýlega nafnlaust bréf frá einum ,Votti Jehova* og kvart- ar hann þar undan því að í Sovét- ríkjunum sé ekkert trúarbragða- freLi. Ástæðuna fyrir því, að bréf ið er biit í heild, segir blaðið vera áskorun bréfritarans um að það j yrði gert. „Og þetta gerum við, — með ! athugasemdum okkar vitaskuld, ‘ segir blaðið. Það kallar „Votta Jehova,, „erlend leiguþý" og á- sakar þá um að rita niður útvarps i me sur frá Bandaríkjunum og j dreifa þeim síðan meðal íylgj- I enda sinna í Rússlandi. „í þessu biéfi eru beztu rökin, ! sem hægt er að ’ hugsa rér gegn þessum óþekkta borgara, sem við getum ekki leyft okkur að kalla ! félaga, sakir þss, að hann er hug- myndafræðilegur óvinur sovézku þjóðaiinnar. Látum það koma fyrir augu þjóðarinnar." Hluti bréfsins er þannig: „Máifrelsi og prentfrelsi er að- eins fyrir guðleysingja. Trú- menn eru réttlausir í þes.u landi. Þess vegna getum við ekki rökrætt við ykkur á jafnréttisgrundvelli né boðað sjónarmið okkar. Þetta er óheiðarlegt af guðleys!ngjum. Þeir ættu að leyfa okkur að gefa út okkar eigið blaö undir nafninu „Kristin æ.ka,“ eða „Orð sann- le'kans“ og leyfa okkur að selja það við hlið Sovét Moldavia í verzlunum. Blað okkar yrði aðeins keypt af áhugamönnum mn írúmál," segir í bréfinu. „Þar gætum við gefið ;vör okkar við guðleysisckrifum , ykkar. ÞET'T’A er hin kunna amma, Marlene Dietrich, sem nú cr orffin 58 ára aff aldri. Hún er þarna á leiff til æfingar fyrir E1 Alanif'in-samkomu, þar sem hún ætlar aff syngja hiff fleikna vinsrf'’•• }rg sitt frá stríffsánmmn, Lilli Marlene. Hvar er hin guðlausa samvizka ykkar, sannleikurinn, sem þið ætl ið að byggja á „réttlátasta samfé- lag á jörðinni?“ Svör Sovét Moldavíu voru svo- hljóðandh „Við ætlum ekki einungis að byggja upp réttlátasta samfélag á jörðinni, við enim raunveru- lega að því, með mjög góðum ár- angri, og það er alveg sama hve hart þið leggið að ykkur, ykkur mun ekki takast að koma í veg fyrir það. En til þess að geta hald ið uppbyggingunni áfram óáreitt ir, verðum við að koma í veg fyr ir niðurrifsáróður ykkar. Þið, vott ar Jehóva, brjótið gegn sovézkum. lögum. Þið kallið sovézkar þjóðir „verkfæri Satans“ og kapítalista- þjóðir „verkfæri guðs“. Þið írú- ið á dómsdag, með öðrum orðum kjarnorkuslríð, þar sam aðeins þið eigið að komast af, en allir aðr ir að farast. Þið eruð mannhatarar og hafið einnig þá óskammfeilni til að bera að fara fram á mál- og prentfrelsi. Við stöndum vörð um frelsi hinna sovézku þjóða og einmitt þess vegna mun ykkur ekki verða veitt mál- eða prentfrelsi, alveg á sama hátt og við leyfum ekki útgáfu klámrita eða amerískra myndasagna, né heidur dreifingu liinna aíturhaldssömu dagblaða, tímarita eða bóka, sem vinir ykk ar, hinir erlendu fjandmenn lands- ins vilja ólmir fylla bókaverzlan- ir okkar af.“ Framh. á 13. síffv ; ífiu' a TAMDAR HÝENUR Sumir þeir hlutir, sem gerast á vorum dögum í Eþíópíu, valda því að manni finnst lítið til ann- arra hluta Afríku koma eftir að hafa orðið vitni að þeim. í austur landamærahéruðum landsins, þar sem h'num slétteggjuðu Harar- fjöllum hallar niður að eyðimörk- um Sómalílands, búa hinar há- vöxnu og spengilegu konur Itu ætt flokksins, sem ganga 40 km. leið til markaðar og aftur til baka dag hvern. Þær bera með sér börn sín og afurðirnar á nöfðinu. Karlmennirnir í sjálfri borginni Harar eiga það til að berjast um þessar föngulegu stúlkur. Á þeim bardögum er ekkert hálfverk, því að þar eru blóðheitir menn og eru alls ekki hlífnir við sína keppinauta. Þetta eru form leg einvígi og vopnin eru gildir, kvistóttir viðarbútar. í þessum eiii vígum er allt undir hugkvæmni og flýti komið. Reglurnar sem þeir nefna svo eru þær, að alls staðar má slá andstæðinginn, sem á hann verður höggi komið, sér í Lagi, þar sem hann er viðkvæmastur fyrir. Þegar annar einvígismaðurinn sveiflar staf sínum að höfði hins, beygir sá sig og réttir honum leggjarhögg um leið, og ef hann er ekki nógu snar í snúningum að stökkva upp, molast fótur hans. Það er sjaldgæft, að sigurvegar- inn komi frá bardaga með alla limi heila. Sá sem tapar liggur jafnan eftir á vellinum með brot inn haus. Annað dæmi um hina undarlegu og frumstæðu siði þessarar þjóð- ar er samband það, sem ríkir þar milli manna og dýra. Ef við segðum hinum innfæddu söguna af ljónaynjunni Elsu, sem gerð hefur verið fræg í bókinni „Born- Free“ yrðu þeir aldeilis máttlausir af hlátri. Eþíópíumenn hafa átt vinsam- leg samskipti við ljón sín kyn- slóð eftir kynslóð og svo til allir ættarhöfðingjar hafa nokkur ljón með hirð sinni. Það vekur ekki furðu neins Eþíópíumanns. Hitt þykir þeim miklu fremur í frásögur færandi, að Hararbúar halda hýenur. „Komdu með mér í kvöld," sagði gestgjafi minn í Harar, Ato Aina ha Wolde Tsaiq, „ég skal sýna þér nokkuð sem dýrafræðingar liafa ætið talið óhugsandi.“ Til útskýringar vil ég geta þess, að eldri hlutinn í Hararborg er ! umluktur veggjum, sem Tyrkir I reistu á sínum tima. Um hlið hans kom 1854 e'nna fyrstur vesturlanda | búa til landsins, Sir Richard Burt- . on og fékk þá sömu kveðju og mér er enn veitt ef ég læt sjá mig á öngstrætum Harar. ,Feranghi‘ sem merkir útlendingur. Þegar myrkrið sígur yfir og í- búamir eru horfnir á bak við gluggahlera sína, heldur undarleg hersing innreið sína í staðinn. Frá gróðurlitlu landinu umhverfis þyrpast hýenur hundruðum sam- an inn fyrir veggina. Þegar við ókum í átt til veggjar ins um nóttina veittum við fyrst athygli dauflegu bliki augna þeirra í skini bílljósanna. Síðan komu þær sjálfar í ljós, dröfnóttar á búkinn og Ijótar í hreyfingum. Þær stukku um í rjóðrinu um- hverfis greinagisið tré sem íbú- amir festu þjófa sína og morð- ingja upp í og hurfu síðan inn í skuggana í leit að fæðu. 6 21. nóv. 1963 — ALÞÝBUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.