Alþýðublaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 16
tlMMmmMMMMMMMVMmMMMUMMmW'MMHHUUIUHMUUHMHMMtMWUHMUM* Dramatík í glósu bókum Um miðja næstu viku verður „Hart í bak” sýnt í 150. sinn. Það er fátíður viðburður, að ný, íslenzk leikrit, séu sýnd jafn- oft og ber því glöggt vitni, að höfundur og leikendur hafa ekki slegið slöku við Árangur- inn birtist í mikilli aðsókn og almennum vinsældum. Alþýðu- blaðið náði snöggvast tali af höfundinum, Jökli Jakobssyni, í gær og lagði fyrir hann fáeinar spurningar: — Áttirðu von á því, að svona vel tækist til, Jökull? . Mig óraði aldrei fyrir því og ég held engan, sem að þessu stóð. Það ríkti mikill efi um afdrifin fram á síðustu stundu. Á frumsýningu tvísteig ég aft- an við áhorfendábekkina og gat raunar með engu móti átt- að mig á því, liver útkoman yrði, en í hléinu brá ég mér inn í búningsherbergi. Þar •voru leikendurnir í sjöunda himni, og leikstjórinn sagðist halda, að mætti treysta því, að þetta yrði ekki neitt „fí- askó.” — Og það var Gísli Hall- dórsson? _ Já, og það er ekki sízt honum og leikendunum að þakka, hve vel leikritinu hefur v.erið tekið. Þeir lögðu svo m’ikla alúð við verk sitt — allt ofan í smæstu smáatriði. — Hefurðu ekki séð leikrit- ið oft sjálfur? — Nei, ég hef ekki séð nema frumsýninguna og nokkra búta seinna, en mér er sagt, að þetta sé sama leikritið ennþá, og það þykir mér afrek í sjálfu sér, 1 | — Og leikhúsgestir úti á landi hafa tekið leiknum vel, ekki síður en Reykvíkingar? — Já, mér hefur liejTzt á leikendunum, að það hafi alls staðar verið gott að leika, — Er ekki aðsóknin mjög góð hér enn? — Jú, það er held ég alltaf uppselt á sýningamar um helgar og svo til uppselt um miðja viku. — Þetta er annað leikritið, sem þú semur? — Nei, annað leikritið, sem kemst á svið Eg veit satt að segja ekki, live mörg þau leik- rit eru orðin, sem ég hef borið við að semja. Eg hef verið að fást við þetta alveg frá því, að ég fór að muna eftir mér. Eg held ég hafi ekki verið nema sjö eða átta ára, þegar ég var að berja saman það fyrsta. Og í menntaskóla var maður allt af að semja leikrit. Það voru ákaflega alvarleg og hádramat- Jökull Jakobsson ísk verk. Eg skrifaði jafnvel oft heilu tragedíurnar í glósu- bækumar mínar í tímunum — bæði á íslenzku og ensku, — „blank verse”, — kennaramir voru persónur í þessum verk- um og Þóroddur Oddsson oft- ast Hamletinn, Faustinn eða Manfreðinn eða hvað maður á að kalla það í þessum tra- gedíum. Sem sagt: annað veifið var ég alltaf að reyna við þetta, en Pókók var það fyrsta, sm komst á svið. Því var nú fyrst hafnað af báðum leik- húsunum. Það var ekki fyxr en Þorsteinn Ö. Stephensen tók við formennsku LR að afráðið var að sýna það. — Og það gekk vel, var það ekki? — Eg var ánægður Sýning- amar urðu 25 og mér fannst það verða mér ákaflega hollur skóli, að Pókók var sett á svið, því að þá komst ég í fyrsta sinn í nána snertingu við svið- ið, sem kom mér að ómetan- legu gagni, þegar ég byrjaði að fást við „Hart í bak.” — Og það var hvenær? — Ég hef sennilega byrjað að skrifa það svona í apríl 1961 og síðan í skorpum, en ófáar breytingar urðu á leikritinu frá því að æfingar hófust vor- ið 1962 og fram að frumsýn- ingu, — síðast var einu orði vikið við tveim stundum fyrir frumsýningu og þar við situr. — Heldurðu að þú snúir þér einvörðungu að leikritagerð á næstunni? — Eg hef eiginlega aldrel haft eins mikinn áhuga á að skrifa skáldsögur og leikrit, enda held ég, að þær beri því vitni, að það liggi ekki hein- linis vel fjrir mér. — Og hvað ertu þá með í deiglunni núna? — Það er ekkert tilbúið enn þá, en maður veit aldrei úr hverju verður barn og hverju ekki. MHWWWWWMVIWMWWIWWMMWM MVtMMWWMWWWWMMWMWMWW Á þriðja hundrað í íslenzka sendiráðið FORSETI íslands heimsótti í 45rær British Museum, og gekk þar VUH bókasafnið með forstjóra feess. t safni þessu eru milli 6-7 anilljónir bóka, og bókahilluin- ar eru 135 km. langar, saman- lagt. Þá heimsótti liann Tate Gal- lerj- og snæðdi hádegisverð í Gheshire Cheese. Síðan lieim- sótti hann Middle Templc í City. ' Síðar um daginn var móttaka I íslenzka sendiráðinu, og var þangað boðið á þriðja hundrað snanns Voru það íslendingar bú- fiettir i London og íslenzkt skóla-' fólk, sem þar er við nám. Meðal gesta voru Þórunn Jóhannsdótt- ir Askenazy, Þórarinn Olgeirsson, Björn Björnsson og Karl Strand, læknir. í gærkvöldi átti forsetinn að heimsækja Old Vic National The- atre í boði Butlers, en þar var leikritið Hamlet sýnt. Á þriðjudagskvöld var aðal- veizlan til heiðurs forsetanum í Guildhall. Yfirborgarstjórinn í London, Clement James Harmann hélt þetta samkvæmi og voru þar 4-500 manns. MMMMMMmUMMHMMHIHMMHMMMMMMMMMMMMM ísafirði, 20. nóv. BS-ÁG. Skipver jinn af belgíska togaranum John frá Ost- cnde, sem fluttur var hingað til ísafjarðar alvarlega slas- aður, andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í morgun. Slys- ið varð með þeim liætti, að togvír slitnaði og slóst í manninn, sem skaddaðist mikið í kviðar- og brjóst- lioli. Meiðslin voru svo mik- il og maðurinn svo langt leiddur, er komið var með hanit á sjúkrahúsið, að að- gerð var óframkvæmanleg. Þetta var ungur nxaður, 22 ára. ^WWWWWWWWWWWWWWWIIIIIWWWIW Veizlan var mjög viðliafnarmik- il og stemmning vinsamleg. Yfir- borgarstjórinn leiddi forsetafrúna til sætis, en forsetinn borgarstjóra ; frúna. Borgarstjórinn og forsetinn fluttu langar ræður og birtist ræða forsetans á öðrum stað í blaðinu. Meðal viðstaddra voru ráðherr- ! ar og fylgdarlið forsetans. Einnig voru þar nokkrir aðrir íslending ar, sendiherrar erlendra ríkja, þingmenn, fulltrúar frá liernum, borgarstjórnarmeðlimir, lista- menn, fjármálamenn, mennta- menn og ýmsir einstaklingar. Fimra-réttað var í veizlunni og snætt við kertaljós. Á matseðl- inum voru myndir frá íslandL — Borðbæn var bæði á undan og á eftir matnum. Drukkin voru minni drottningar, forsetans og y f irborgarstj órans. Yfirborgarstjórinn færði forset- anum bókagjöf og áletraðan silf- urbakka. Forsetinn sæmdi hann FálkaorðunnL (HKStO) 44. árg. — Fimmtudagur 21. nóvember 1963 — 248. tbl. NÝR LANDSLJÐS- MAÐUR 1 SKÁK Reykjavík, 20. nóv. GO. Nýr maður hreppti landsliðs- sæti í nýafstöðnu Haustmóti Tafl- félags Beykjavíkur. Tvítugur mað- ur, sem er við nám í Háskóla ís- lands varð í fyrsta sæti í meistara- flokld, hann heitir Trausti Björns- son og er sonur Björns heitins Guðfinnssonar málfræðings. Trausti hefur aðeins einu sinni áður tekið þátt í keppni í meist- araflokki. Það var á Ágústsmótinu í sumar, en þá varð hann í öðru sæti á eftir Bimi Þorsteinssyni. Björn varð að láta sér nægja annað sætið nú. Alls tefldu á mótinu í' þrem styrkleikaflokkum, 52 menn. 22 hófu keppni í meistaraflokki og af þeim komust 10 í úrslit. Úr- slitakeppninni lauk svo á sunnu daginn með sigri Trausta eins og fjrr segir. Úrslit í meistaraflokki voru f héild þessi: 1. Trausti Bjömsson, 6% vinn. 2. Björn Þorst. 5V2 vinn, 3. -5. Jóhann Öm Sigurjónssori, ’. Sigurður Jónsson og Bjami Magnúss., m. 5 vinn. 6. Guðm. Ágústss. \Vz vinn. 7. Björgvin Vígl. , 4 vinn, 8. Bragi Bjömssoh;' ZV2 Vinn.' 9. -10. Gunnar Gunnarsson og Pétur Eiríksson m. 2V2 vinn. og eina skák óteflda sín á milli um neðsta sætið. •Þess má geta, að þeir Guðm. Ágústsson og Gunar Gunnarsson. tefldu sem gestir á þessu móti. KVEÐJUR FRÁ FORSEIA SAM- BANDS BREZKRA TOGARAEIGENDA A. W. Suddaby, forseti Sam- bands brezkra togaraeigenda, rit- aði stórblaðinu The Times bréf, sem birtist í blaðinu í gær, þar sem kveður við nokkuð annan tón en oft áður heyrðist frá togara- eigendum, a.m.k. á meðan Mr. Weich var formælandi þeirra. Þyk ir okkur því rétt að birta hér út- drátt úr bréfinu: „Á bak við tjöldin, jafnvel þeg- ar nýafstaðnar deilur um fiskveiði- takmörk vom að ná hámarki, hef-' ur alltaf verið og er enn ríkj- andi mikil velvild (milli fiskiðn- aðar okkar og íslenzkra stjóm- valda). Hún kemur stöðugt í ljós í vilja íslenzku Landhelgisgæzl- unnar til að koma til lijálpar nauð- stöddum togurum okkar og hafa samvinnu á margan, minna áber- andi, en allt um það nauð- synlegan hátt. Áratugum saman höfum við Slæmf veður á Norbursjá ■ -TFtV-- Cuxhaven, 20. nóv. NTB-DPA. YFIR 90 lítil skip leituðu vars I Cuxhaven í dag vegna óveðurs á Norðursjó. Um hádegi í dag hafði vatnsborð ið á strönd Norðursjávar haekkað næstum því um einn metra meira en eðlilegt er. Veðurfræðingar telja, að sljákka muni í veðrinu í nótt. fiskað við íslandsstrendur og floti okkar flytur enn heim ákaf- lega veigamikið hlutfall af heild- arveiðinni, sem landað er bér í landi. Það er einlæg von okkar, að vel- vilji og gagnkvæmur skilningur, er skapast af heimsókn íorseta og utanríkisráðherra íslands til Bret- lands, muni verða báðum ríkjun- um til mikilla hagsbóta í fram- tíðinni." ; WWWWWWWIWIIIWI Spilakvöld Næstkomandi föstudag, 22. nóvember, verður spilakvöld á vegum Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur í Iðnó. Það er þriðja spilakvöldið í fjög- urra kvölda keppninni. Spil- að verður um ágæt kvöld- verðlaun að venju, en auk þess um glæsileg heildar- verðlaun (tvenn 12 manna kaffistell'). Röð keppendanna má sjá á töflu, sem komið verður upp. Spilakvöldið hefst kl. 8,30 að venju. Gunnlaugur Þórð- aTsbn stáórnar. Björgvin Guð mundsson viðskiptafræðing- ur, flytur Jivarp. Að vistinni lokinni verður dansað til kl. 1 é. m. Hljómsvcit Einare Jónssonar leikur fyrh- dans- inura. Fjölmennið á góða og vinsæla skemmtun! MmMMMMHIIMMIIIMMIMi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.