Alþýðublaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 21.11.1963, Blaðsíða 11
Landsliðsþjálfari í hand knattleik segir af sér! SVIAR SIGRUÐU NORÐ- MENN í HANDKNATTLEIK NORÐMENN og Svíar léku tvo landsleiki í handknattleik í Njárd hallen í Oslo um helgina. Svíar sigruðu í báðum leikjunum, þeim sigruðu með 18 mörkum gegn 13. Stjórnandi sænska landsliðsins, Curt Wadmark segir, í viðtali við „Arbeiderbledet” að Norðmönn- ORSÖK: ÁHUGALEYSI LEIKMANNA ÞAÐ blæs ekki byrlega fyrir handknattleiksmönnum okkar í augnablikinu. Eins og- nýlega var skýrt frá hér á Íþróttasíðunni eru mörg og stór verkefni fram- undan hjá handknattleiksmönnum okkar og veitir því ekki af góS- GUNNLAUGUR við verðum að n;óta sömu hlunn- inda og aðrar íþróttagreinar. um undirbúningi og einingu fyr- ir átökin. Nýjustu fréttir benda þó ekki til að svo sé, þvi að lands liðsþjálfari HSÍ, Karl Benedikts- son sagði af sér störfum í fyrra- dag og orsökin er áhugaleysi væntanlegra landsliðsmanna við æfingar. ★ AHUGALEYSI. Íþróttasíðan hringdi í Karl og spurðist fyrir um mál þetta. Karl sagði það rétt vera, að hann hefði tilkynnt stjórn HSÍ um þessa ákvörðun sína. Hann sagðist telja ástæðulaust að halda þessu áfram, ef leikmennirnir mættu ekki bet- ur til æfinga. Aðeins örfáir mæta á æfingarnar, leikmennirnir láta æfingar félaganna sitja fyrir eða nenna hreinlega ekki að mæta. — Karl bætti því við, að formaður landsliðsnefndar, Frímann Gunn- laugsson hefði rétt í þessu verið að tala við sig og beðið sig að fresta þessari ákvörðun og sjá til, hvort ekki yrði breyting á til batnaðar. Hann hefði fallizt á að reyna, en ákvörðun þessari yrði ekki breytt til frambúðar, nema leikmenn æfðu betur en undanfarið. ★ VIÐ MEGUM EKKI SLAKA Á. Við hringdum í Ingólf Óskars- son, einn af landsliðsmönnum okkar og spurðum hann um á- standið. Ingólfur kvaðst ekki hafa æft neitt í tvær vikur vegna veik- inda, en hann var á þeirri skoðun að margir væntanlegir landsliðs- menn hefðu sýnt full- mikið tómlæti við æfingar, ekki myndi af veita, þar sem lið þau, er íslendingar mæta í HIVI eru mjög sterk. íslendingar hefðu unnið sér mikið álit í síðustu Framh. á 10. síðu DÓMARAFÉLAG STOFNAÐ i KÖRFUKNATTLEIK Evrópubikar- keppni ífrjáls- um íþróttum Á ráðstefnu alþjóða-frjáls- íþróttasambandsins í Sofiu um síðustu lielgi var ákveðið að efna til Evrópubikarkeppni í frjálsíþróttum karla og kvenna. Löndunum verður skipt í riðla og undankeppni fer fram snemma sumars, en úrslitin verða um haustið. — Keppt verður í öllum venju- legrum landsliðsgreinum og einn maður í grein. Á þinginu voru staðfest eft- irtalin Evrópumet: 2 enskar mílur: Michcl Jazy, Frakkland, 8.29,6 mín., 1500 m. hlaup: Miohel Jazy, Frakklandi, 3.- 37,8 mín., 100 m. hlaup kvenna Dorothy Ilyman, Englandi, 11.- 3 sek., 200 m. hlaup kvenna: Dorothy Hyman, Engl. 23,2 sek. DOMARAMALIN hafa oft verið í ólestri í körfuknattleik. — Nú virðist vera að rætast úr þeim málum, þar sem gengið hefur ver- ið frá stofnun dómarafélags og er Einar Bollason formaður þess. Fyrsta verkefni félagsins er nið- urröðun Reykjavíkurmeistara- móta. Um mál þetta segir svo í árs- skýrslu KKÍ : „Mikill hörgull hefur verið á körfuknattleiksdómurum á undan- förnum árum. Til þess að reyna að bæta úr þessu ástandi, gekkst Dómaranefnd KKÍ fyrir nám- skeiði í janúar sl. Þátttakendur á námskeiðinu voru 15, en kenn- ari var Guðjón Magnússon. Hin- ir nýútskrifuðu dómarar fengu prófleiki á íslandsmótinu og fyrstu dómaraskírteini KKÍ voru afhent síðar á þessu ári. Stofnun félags körfuknattleiks- dómara er í undirbúningi, þegar þessi skýrsla er rituð. Væntanlega munu mörg vandamál leysast eftir að slíkt félag hefur tekið til starfa. Góðir dómarar eru ein af imdir- stöðunum fyrir góðum körfuknatt- leik, og þjálfun og menntun dóm- i ara er bezt tryggð með kraftmiklu ' og vel starfandi dómarafélagi.” fyrri með 14:10 og í þefm siðari með 18:13. í fyrri leiknum, sem háður var á laugardag tóku Norðmenn for- ystu í fyrri hálfleik, skoruðu 8 mörk gegn 7. í síðari hálfleik bættu Norðmenn strax við 9. mark inu og það leit út fyrir norskan sigur. En Svíar sýndu meira ör- yggi og það sem eftir var leiks- ins skoruðu Svíar 7 mörk gégn 1. Hinn þekkti handknattleiks- maður Svía, KjeU Jonson lék sinn 100. landsleik, en átti ekki góðan leik. Beztur í liði Svía var Gösta Carlsson, en markmennirnir Lenn- art Ring og Donald Lindholm áttu einnig góðan leik. Hjá Norð- mönnum voru Svestad og Klepp- erSs beztir. Síðari leikurinn var háður á sunhudag. Svíar skoruðu fimm fyrstu mörkin, en úr því hélzt jafnvægi í leiknum, þ. e. Svíar Allt er tilbúið fyrir Vetr- arleikana, sem hefjast í Innsbruck, Austurríki, 29. janúar nk. Það mun ekki væsa um keppendur okkar og á myndinni sjáið þið 2 byggringanna af 5, sem kepp endur eiga að búa í. íslend- ingar munu dvelja í einni byggingunni ásamt Svíum, Norðmönnum og Ástralíu- mönnum. Prag, 20. nóv. (NTB-Reuter. Dukla, Prag, sigraði Gornik -4 1 í Evrópubikarkeppninni í dag. Dukla heldur því áfram keppni á betra markahlutfalli, en Gor- nik sigraði í fyrri leiknum með 2-0. Ankara, 20. nóv. NTB-AFP. Ítalía og Tyrkland gerðu jafn- tefli 2-2 í undankeppni fyrir OI- ympíuleikana I Tokyo. Þetta var hald þeirra sé fyrri leikur landanna. Leikurinn sænska liðsins, Kjell Jönsson — 100. landsleikir., um hafi farið mikið fram og út- eins gott og en þá vanti fór fram í Ankara. I reynslu og betri langskyttur. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. nóv. 1963 l|j

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.