Verkamaðurinn - 27.05.1944, Síða 4
4
VEUAMA&UBmm
Yflrlýsing.
Að gefnu tilefni vill Lýð-
veldiskosninganefnd Akureyr-
ar lýsa yfir því, að orðrómur
um, að Sigurður Guðmunds-
son skólameistari og Snorri
Sigfússon skólastjóri hafi neit-
að tilmælum nefndarinnar
um að draga fána að hún á
skólum þeim, er þeir veita
forstöðu, laugardaginn 20.
þ. m., hefir ekki við rök að
styðjast. Sigurður Guðmunds-
son lét draga fána að húrt þeg-
ar er hann fékk tilmæli um
það, en til Snorra Sigfússonar
náðist ekki fyrr en flaggað
hafði verið á skóla hans, að til-
hlutun nefndarinnar, og féllst
hann þá þegar á þá ráðstöfun.
Akureyri 22. maí.
Akureyramefnd
* lýðveldiskósninganna.
Tilkynning frá viðskiptaráðuneytina
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið beina því til verzlana í þeim
hluta landsins, þar sem samgöngur geta teppzt af völdum haf-
íss, að gera í sumar ráðstafanir til þess að hafa undir veturinn
nægar birgðir skömmtunarvara og annarra nauðsynjavara, sem
sæmilegur forði er af í landinu.
Jafnframt vill ráðuneytið minna á, að hreppsnefndum í þeim
hreppum, sem í erfiðleikum eiga um aððdrætti, hefir undanfar-
ið, ef ósk hefir borizt um það, verið leyft að úthluta skömmtun-
arvörum að haustinu til 6 eða 8 mánaða, eftir því sem á stendur.
Þessi heimild helzt að sjálfsögðu framvegis og er rétt, að þær
sveitastjórnir, sem óska að nota hana næsta haust, snúi sér sem
fyrst, og eigi síðar en 1. september næstk. til skömmtunarskrif-
stofu ríkisins varðandi þetta atriði.
Viðskiptamálaráðuneytið, 23. maí 1944.
AÐALFUNDUR
FLUGFÉLAGS ÍSLANDS H.F.,
verður haldinn í Oddfellowhúsinu í Reykja-
vík miðvikudaginn 31. maí næstk., kl. 2 e. h.
D A G S K R Á:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
KAUP VERKAMANNA í JÚNÍ.
Dagv. Eftirv. N & Hdv.
Almenn vinna .............................. 6.05 9.07 12.10
Skipavinna................................. 6.64 9.96 13.28
Kola-, salt-, sements- og grjótvinna....... 7.29 10.94 14.58
Stúfun á síld.............................. 8.10 12.15 16.20
Kaup díxilmanna og hampþéttara ............ 6.89 10.34 13.77
Lmpun á kolum í skipi og katlavinna...... 11.85 17.79 23.70
Kaup drengja 14—16 ára .................... 3.94 5.91 7.88
Mánaðarkaup í júní 1291.95.
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar.
Frá SjómannadegiDom
| Ákveðið er að keppni í eftirtöldum íþróttum fari |
| fram á Sjómannadaginn, 4. júní 1944.
I 1. Kappróður: Þátttaka heimil stéttarfélögum sjó- §
manna, einstökum skipshöfnum og ,,nótabrúk- |
g unum“.
| 2. Stakkasund: Þátttaka heimilöllumsjómönnum. |
5 3. Reipdráttur: Þátttaka heimil stéttarfélögum |
| sjómanna. |
| 4. Knattspyrna: Þátttaka heimil stéttarfélögum I
sjómanna. |
Þess er fastlega vænzt að félög og einstaklingar |
Í tilkynni þátttöku sína hið allra fyrsta.
1 SJÓMANNADAGSRÁÐ AKUREYRAR. I
WKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHW
Dráttarverksmiðjumar
miklu í Stalingrad taka til
starfa í næsta mánuði.
Fregnir herma, að dráttarvéla-
verksmiðjurnar miklu í Stalingrad
muni taka til starfa um miðjan
næsta mánuð, en síðan nazistaher-
imir voru hraktir þaðan hefir ver-
ið unnið að því í 18 mánuði að
byggja verksmiðjumar á ný og
þessu risaverki er nú senn lokið.
KARLAKÓRARNIR
(Framhald af 1. síðu).
söngstjóri Þorst. Jónsson, Karla-
kór Reykdæla, söngstjóri Páll H.
Jónsson, „Þrymur“, Húsavík, söng-
stjóri sr. Friðrik A. Friðriksson,
Karlakór Reykhverfinga, söngstj.
Sigurjón Pétursson, „Geysir“,
söngstjóri Ingimundur Árnason og
Karlakór Akureyrar, söngstjóri
Áskell Jónsson. — Halda kórarnir
5 samsöngva á 2. hvítasunnudag
og verður sungið í Nýja-Bíó og
Samkomuhúsi bæjarins. Síðasti
samsöngurinn verður í kirkjunni
kl. 6 síðdegis.
Vart þarf að efa að bæjarbúar
kunni ekki að meta menningar-
starf kóranna, m. a. með því að
fjölmenna á samsöngvana svo af
beri.
V ek jaraklukkur.
Pöntunarfélagið.
ATHUGIÐ!
Júnímánuð verð ég til
viðtals alla virka daga,
nema laugardaga, kl. 13
—14. — Sími 497.
Rœktunarráðunautur
Akureyrarbæjar.
Tekið upp næstu daga:
Heflar, margar teg.,
Sagir, margar teg.,
Klaufhamrar, margar teg.,
Sporjám,
Rafmagnssmergelskífur,
Hverfisteinar,
Borsveifar,
Brjóstborir,
Skiftilyklar,
Tengur, margar teg.,
Jámborir með kónus o. fl.
Versl. K. S. Kristjánssonar,
Skipagötu 8. Sími 280.
Auglýsið í
,,Vei»kam.“
NÆR OG FJÆR
(Framhald af 3. síðu).
kemur hún oss því ekki sérstaklega á
óvart, svo vér tölum nú ekki um Finna-
galdurinn.
En væri það óskammfeilið af oss að
fara þess á leit við „Dag“, að hann gerði
nánari grein fyrir því, hvernig guðspjall-
ið um Sovétríkin í „Degi“ 26. þ. m. getur
samrýmst guðspjallinu í sama ágæta
blaði 17. þ. m.
Nazistar handtaka háttsetta
Dani.
Þjóðverjar handtóku snemma í
gærmorgun marga háttsetta Dani
á Jótlandi, m. a. yfirmann land-
varnarliðsins, sem snerist til varn-
ar og feldi einn þýskan hermann
áður en hann var handtekinn. —
Meðal hinna handteknu eru
Thomsen amtmaður og sonur H.
P. Hansen, hins kunna foringja
Suður-Jóta.