Verkamaðurinn - 03.02.1950, Side 4
Bandaríkin ógna friðinum með
auknum vígbunaði
En alþýðan mun koma í veg fyrir áform
stríðsfurstanna
VERKAMADURINN
- Kosningaúrslitin
(Framhald af 1. síðu).
Útvarpshlustendur hafa vafa-
laust veitt athygli frétt, sem mjög
hefur verið hampað undanfarna
daga um nýja gerð sprengna,
margfallt öflugri kjarnorkusprengj-
unni, sem Truman Bandaríkjafor-
seti hefur sagt að lögð verði mikil
áherzla á að framleiða til þess —
og takið vel eftir því — að tryggja
friðinn í heiminum!
Það hlýtur að vera meira en lít-
ið undarlega innréttaður maður,
sem trúir því í alvöru, að friður
verði tryggður með vopnum, með
sem öflugustum morðtólum og
sterkustum vígvélum. Og hvers
konar friður yrði það, sem hefði
slíkt að bakhjarli? Vissulega
byggðist hann á ótta, stöðugum,
lamandi og kveljandi ótta.
Er nú þetta það, sem mannkyn-
ið, friðsöm alþýða allra landa,
þráir? Trúi þeir sem vilja að svo
sé, óefað eru þeir ekki margir.
En þessi boðskapur æðsta
manns öflugasta stórveldis auð-
valdsins sýnir greinilega, hversu
gersamlega auðvaldið, kapítalism-
inn, er varnarlaus gegn sókn sósí-
alismans. Hans eina vörn er víg-
• Kosningarnar
á Akureyri
(Framhald af 1. síðu).
in í blekkingamoldviðri um
„kommúnismann". Þeir þurfa hins
vegar ekki að láta sig dreyma um
baranlegan sigur, hann er með öllu
óhugsandi. Osigur auðstéttarinnar
er á næsta leiti, það sanna m. a.
baráttuaðferðir hennar, eins og
lauslega er vikið að á öðrum stað
hér í blaðinu í dag.
Verkalýðurinn í þessum bæ á
það nú enn meir undir högg að
sækja, hversu bærinn rækir þá
skyldu sína, að sjá honum fyrir
nægri atvinnu, þegar einkafram-
takið bregst, en vel skulu verka-
menn hér á Akureyri leggja sér á
minni loforð Helga Pálssonar, sem
hann gaf við útvarpsumræðurnar,
að verkamenn hér í bæ skyldi ekki
skorta vinnu. Færi betur að þetta
yrði annað og meira heldur en orð-
in tóm.
Gera má fastlega ráð fyrir því,
að vinnumarkaður hér í bæ, sem
annars staðar á landinu, dragist
heldúr saman, jafnvel stórlega, og
vissulega hafa hinar nýafstöðnu
bæjarstjórnarkosningar orkað
nokkru í þá átt. Má vera, að þegar
það fer fram að koma, minnist ein-
hver orða okkar sósíalista fyrir
kosningarnar og þyki þau rætast
nokkuð áþreifanlega.
Sósíalistaflokkurinn mun hér
eftir sem hingað til halda uppi
stöðugri vörn fyrir alþýðuna gegn
árásum atvinnurekendavaldsins og
auðvaldsins í þessu landi. Hann
mun gera allt það, sem í hans valdi
stendur til þess að hindra og draga
úr þeim svívirðilegu árásum, sem
nú eru fyrirhugaðar á lífskjör al-
mennings og hann heitir á alla al-
þýðu til stuðnings f þeirri baráttu.
búnaður, stöðugt meiri og æðis-
gengnari vígbúnaður. Svo gersam-
lega hefur kapítalisminn gefið all-
ar sigurvonir upp á bátinn, að hans
eina vörn er hótun um morð heilla
þjóða, eyðingu mannvirkja og
menningar.
Mannkynið hefur á þeim helm-
ingi, sem brátt er liðinn af 20. öld-
inni, lifað tvær styrjaldir, sem eru
þó barnaleikur einn hjá þeim
ósköpum, sem yfir dyndu, ef hin-
um hálfbrjáluðu stríðsfurstum tæk-
ist enn að koma styrjöld af stað.
Svo vel munu þó hörmungar síð-
asta stríðs enn vera í minni Ev-
rópuþjóðanna, að þær munu ekki
óska eftir endurtekningu þeirra.
Hitt er jafnvíst, að það er ekki að
þakka Truman og hans líkum, ef
tekst að hinda að stríð brjótist út
að nýju, heldur verður alþýða allra
landa að vera þar að verki, og hún
mun í krafti samtaka sinna koma í
veg fyrir að hótanir stríðsfurst-
anna verði að veruleika.
• Ullarþvottastöð
Gefjunar
(Framhald af 2. síðu).
fjórða 'karinu fer ullin enn milli
valsa áður en hún fer í þurrkarann,
sem skilar henni fullþurri. Þurrk-
arinn er hitaður upp með gufu.
Ullarþvottavélin, sem er raf-
knúin, er 56 m. löng og talin ein
fullkomnasta sinnar tegundar. Hún
er smiðuð hjá C. G. Sargent’s Sons
Corporation, Granitville, Mass.,
Bandarikjunum. Uppsetningu vél-
arinnar annaðist Mr. Charles Oli-
ver, vélfræðingur frá seljendum
vélarinnar.
Afköst vélarinnar eru miðuð við
að hægt verði að þvo alla ullar-
framleiðslu landsins, þó að hún
aukizt allverulega frá því sem nú
er.
Sambandið hefur allt frá 1930
starfrækt Ullarverksmiðjuna Gefj-
uni og stöðugt aukið hana og end-
urbætt. Nú er verið að endur-
byggja alla verksmiðjuna og má
hiklaust telja það eitt stærsta og
þýðingarmesta spor, sem stigið
hefur verið í iðnaði landsins fram
að þessu. Þegar lokið er við endur-
byggingu Gefjunar á hún að geta
unnið úr íslenzku ullinni um tvö
hundruð þús. metra af alls konar
dúkum í kven- og karlmannafatn-
að og auk þess mikið magn af garni
og lopa til heimilisiðnaðar.
Það ætti að vera mikil uppörv-
un íslenzkum bændum til að auka
og bæta ullarframleiðsluna, að nú
verður hægt að nýta alla ullina í
landinu sjálfu og henni verður
breytt í hentugan og skjólgóðan
fatnað bæði ofinn og prjónaðan.
Á þann hátt er öruggur markaður
fenginn fyrir alla íslenzku ullina,
sem hefur þá sérstæðu eiginleika,
aðg vera bæði hlý og hrinda vel
frá sér bleytu, sem ekki er heldur
vanþörf á, í okkar köldu og um-
hleypingasömu veðráttu.
Mikið atvinnuleysi
á Siglufirði
Mikið atvinnuleysi er nú á
Siglufirði. Fjöldi verkafólks hefur
farið úr bænum í atvinnuleit —-
um eða yfir 200 manns. — Nokkr-
ír tugir hafa verið í vinnu hjá Síld-
arverksmiðjunum og við Tunnu-
verksmiðjuna, en nú eru horfur á,
að Tunnuverksmiðjan stöðvist
vegna skorts á gjarðajárni, senni-
lega í rnargar vikur, ef til vill
mánuði, en þar vinna nú um 20
manns.
Nokkrar trillur og litlir vélbátar
hafa stundað sjó, en gæftir hafa
verið mjög stopular til þessa. —
Stóru bátarnir fara sennilega á
togveiðar snemma í vetur.
• Halda þeir . . .
(Framhald af 1. síðu).
Það kann vel að vera, að rit-
stjórar borgarablaðanna trúi því,
að nú s.éu í vændum straumhvörf í
flokkaskiptingu á landi hér. En sé
svo, sýnir það þekkingarleysi
þeirra á þeim lögmálum, sem þjóð-
félagið er háð, lögmálum, sem ekki
breytast, hversu miklu af pappír,
bleki og prentsvertu, sem þeir eyða
til þess að telja fólki trú um, að
hvítt sé svart og svart sé hvítt. Og
samkvæmt þeim lögmálum, sem
þegar hafa hlotið staðfestingu
reynslunnar, er auðvaldsskipulagið
dauðadæmt vegna innri mótsetn-
inga og getuleysis til að leysa að-
kallandi vandamál, en sósíalism-
inn, hinn skipulagði þjóðarbúskap-
ur hlýtur að taka við. Allt annað er
óhugsandi, hvað sem auðvalds-
blöðin segja þar um.
Þeg ar Alþýðuflokkur-
vegsamaði nasismann
Eftirfarandi klausa er tekin úr
„Neista“, blaði Alþýðuflokksins á
Siglufirði, 7. tbl. 1941, einmitt á
þeim árum, þegar Alþýðublaðið
talaði hvað mest um hið „menn-
ingarsögulega hlutverk nazismans".
„Þýzka hernum er stillt upp á
ný og áður.en nokkurn varir, demb-
ir þýzki herinn sér með öllum
þunga ytir hinn nötrandi lýð. ...
áður en varir munu hinir sigursælu
hermenn Adolís Hitlers sölsa undir
sig hin auðugu lönd. . . . og frjáls
Evrópa mun rísa aftur með frið-
sömum og starfsglöðum þjóðum.“
Svigmót K. A.
Sunnudaginn 29. fyrra mánaðar
fór fram fyrsta skíðamótið á þess-
um vetri hér í bæ. — Úrslit urðu
þess:
Karlar: A, B og C ílokkur:
1. Magnús Brynjólfsson A., 59.5 ■
Baldvin Haraldsson A., 63.4 1
Sigtryggur Sigtryggss. C., 64.3
Haukur Jakobsson C., 65.3 ;
Höskuldur Karlsson C., 72.8 |
Konur:
Ásdís Karlsdóttir 55.2
María Guðmundsdóttir 75.7
Unnur Berg Árnadóttir 79.0
Drengir:
Skjöldur Tómasson 42.6
Hilmar Jóhannsson 44.1
Þráinn Karlsson 53.6
KEFLAVÍK.
Sós 73 — 0 (87 —X)), A 414 —
3 (323 — 3), F 152 — 1 (112 —
1), S 418 — 3 (323 — 3).
HREPPSNEFNDARKOSNING-
AR í KAUPTÚNUM.
Seltjarnarneshreppur: Oháðir 121
— 3, S 133 — 3.
Kópavogshreppur: Framfarafélag
289 — 3, A 120 — 1, S 111 — 1.
Hveragerði: Sós 80 — 2, A og F
93 — 2, S 74 — 1.
Borgarnes: Sós 72 —■ 1, A 45 —
1, F 98 — 2, S 170 — 3.
Ólafsvík: A og F 113 — 3, S
108 — 2.
Stykkishólmur: A og F 172 — 3,
S 223 — 4.
Bíldudalur: F 69 — 2, Sós 37 —
1, S 90 — 2.
Suðureyri: A 92 — 3, F 38 — 1,
S 54 — 1.
Flateyri: Kjósendalisti 121 —
4, S 47 — 1.
Bolungavík: A 97 — 2, F 72 —
1, S 168 — 4.
Hvammstangi: A 26 — 1, F 74
3, S 20 — 1.
Blönduós: S 115 — 2, Óháðir
131 — 3.
Dalvík: A og óháðir verkamenn
164 — 2, F og óháðir 148 — 2, S
76 — 1.
Fáskrúðsfjörður: A og F 101 — 5,
Sós 42—2
Svart „selskabs“-veski
tapaðist sl. sunnudagsnótt á
leiðinni frá Hótel Norður-
land að Oddagötu 1. Finn-
andi vinsamlega beðinn að
gera aðvart á skrifst. verk-
lýðsfélaganna, Strandgötu 1.
F.innig er sú, sem fékk of
litlar skóhlífar að Hótel
Norðurland sömu nótt, beð-
in að gera aðvart á sama
stað.
Eskifjörður: Sós 86 — 3, A 57 —
1, F50—1, S70 —2.
Stokkseyri: Verkalýðsf. 121 — 3,
F64 — 1, S 114 — 3.
Eyrarbakki: Sós 16 — 0, A 174 —
5, F 44 — 1, S 66 — 1.
Höfn í Hornafirði: Óháðir 137 —
4, S 43 — 1.
Sandgerði: A 135 — 3, Sós 36 —
0, S 96 — 2.
Njarðvík: Sós 37 — 1, Óháðir
48 — 1, S 167 — 3.
Selfoss: Sós 82 — 1, A 131 — 2,
F 59 — 1, S 167 — 3.
r
Utflutningur s. 1. árs
nam aðeins 289 millj.
króna
Heildarverðmæti útflutnings
þjóðarinnar á sl. ári nam aðeins
289,2 millj. króna, segir í skýrsl-
um hagstofunnar, en innflutn-
ingsins 423,9 millj. kr. Viðskipta-
jöfnuðurinn varð því óhagstæður
um 134,7 millj. kr. Þess ber að
gæta, að á árinu voru flutt inn
skip fyrir um 40 millj.
j Laugardag 4. febr. kl. 5 og 7: j
Þrjár röskar
dætur
i Metro Goldwyn Mayer- \
j söngvamynd í eðlilegum 1
litum. i
j Aðallilutverk:
Jeanette Mac Donald \
\ Jose Iturbi
Jane Powell.
1 SÓSÍALISTAFÉLÖGIN Á AKUREYRI
liafa
Kvöldskemmtun
í Verkalýðshúsinu næstkomandi sunnudag, 5. þ. m.,
kl. 8.30 e. h.
Til skemmtunar: Kaffidrykkja — Rceða — Ýmis
skemmtiatriði — Dans.
. v*
Starfsfólki á kjördag sérstaklega boðið.
Stjórnir félaganna.
AÐALFUNDUR
Akureyrardeildar K. E. A.
verður haldinn í Samkomuhúsi bæjarins mánudag-
inn 6. febrúar næstkomandi, og hefst kl. 8.30 e. h.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Deildarstjórnin.
****** * *****.*.*.*.*-