Verkamaðurinn - 25.11.1955, Síða 1
VERKRDMinn
XXXVIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 25. nóviember 1955
36. tbl.
VERKAMENN!
Munið fundinn í Verka-
m.fél. Akureyrarkaup-
staðar á sunnudaginn kl.
8.30 í Verkalýðsh úsinu.
Ályktun Málfundafélags jafnaðarmanna:
Öll vinstri öfl sameinist um mynd-
un ríkisstjórnar
Kominn tími til að sleppa öllum fordómum og er j-
um um aukaatriði, þar sem þjóðarheill er í veði
14. þ. m. — sama kvöldið og
flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks-
ins lauk — var haldinn aðalfundur
Málfundafélags jafnaðarmanna í
Rvík og var þar eftirfarandi álykt-
un samþykkt með öllum atkvæð-
um fundarmanna:
„Það hefur nú berlega komið í
ljós, sm raunar mátti vænta, að
núverandi stjórnarstefna hefur
leitt til algers öngþveitis í atvinnu-
og efnahagsmálum þjóðarinnar og
stofnað sjálfstæði landsins í
hættu, jafnt fjárhagslega sem
menningarlega.
Fyrir því ályktar aðalfundur
Málfundafélags jafnaðarmanna,
haldinn 14. nóvember 1955, að
brýna nauðsyn beri til að breyta
nú þegar um stjórnarfar í landinu
og koma á stjórn er bjargi því, sem
bjargað verður og vinni með hags-
muni alþýðunnar fyrir augum.
Þess vegna skorar fundurinn á
ÖLL VINSTRI ÖFL í landinu að
vinna að myndun slíkrar stjórnar.
Telur fundurinn að nú sé kominn
tími til þess að sleppa öllum for-
dómum og erjum um aukaatriði,
þar sem þjóðaheill er í veði.
Alþýða landsins á allt sitt undir
því að slík samvinna takizt og
leiðtogar hennar í röðum vinstri
flokkanna skilji þá ábyrgð, sem á
jeim hvílir í þessu efni.“
Öll stjórnin var endurkosin, en
hana skipa Alfreð Gíslason, form.,
og meðstjórnendur þeir Arngrímur
Kristjánsson, Friðfinnur Olafsson,
dr. Gunnlaugur Þórðarson, Krist-
ján Gíslason, Magnús Bjarnason
og Sigurður Sigmundsson.
Þingmaiinanefnd til
Sovétríkjanna
I byrjun fundar sameinaðs þings
í fyrradag skýrði forseti, Jörundur
Brynjólfsson, frá því, að forsetum
þingsins hefði borizt bréf frá
Æðsta ráði Ráðstjórnarríkjanna
þess efnis, að það býður Alþingi
að senda þingmannasendinefnd á
næsta vori til Ráðstjómarríkjanna
á þeim tíma, sem Alþingi hentaði
bezt.
Sagði forseti, að þessu boði
hefði þegar verið tekið og myndu
forsetar þingsins hafa um þetta
samráð við þingflokkana.
Þingflokkunum yrði nú sent
bréf um málið og þetta yrði svo
allt ákvðið nánar mjög fljótlega.
Það væri alveg lagt á vald Al-
þingis hve fjölmenn nefndin væri
og eins hvenær ferðin yrði farin.
I fyrra barst Alþingi erindi frá
Æðsta ráðinu, þar sem spurzt var
fyrir um afstöðu Alþingis til þing-
mannaskipta og meiri kynna milli
þingmanna, hvort Alþingi áliti
það ekki æskilegt og að það
myndi stuðla að varðveitingu frið-
ar. Var því svarað svo, að Alþingi
áliti það æskilegt og gagnlegt.
Leikfélag Akureyrar
frumsýndi í gærkvöldi leikritið
„Þrír eiginmenn", enskan gaman-
leik í þýðingu Helga Hálfdánar-
sonar. Leikstjóri er Jónas Jónsas-
son, — Umsögn um leikinn verður
að bíða næsta blaðs.
Norsk bók um Laxness
Einn af fremstu bókmennta-
fræðingum Noregs í íslenzkum
bókmenntum, Ivar Eskeland, hef-
ur nýlega lokið við að skrifa bók
um Nobelsverðlaunaskáldið, Hall-
dór Kiljan Laxness, og kemur
bókin út hjá „Fonna Forlag“.
Bókin nefnist „Menneske og
motiv“, og gefur skýringar á verk-
um Laxness. Bókin mun koma
bókabúðir á öllum Norðurlöndun-
um samtímis þann 10. desember,
einmitt sama daginn og Laxness
veitir viðtöku Nobelsverðlaunun-
n í Stokkhólmi.
Þrjú erlend tilboð
í byggingu dráttar-
brautar
Stjórnmálaályktun 10. þings Sósíalistaflokksins:
Myndun vinstri stjórnar þýðingarmesta
hagsmunamál verkalýðsins
Brýnasta verkefni þjóðarinnar er að
mynda ríkisstjórn, sem hnekkir yfir^
ráðum hermangara og einokunarauð-
valdsins og hefur að nýju uppbygg-
ingu atvinnulífsins í þeim landsfjórð-
ungum, er eyðingin vofir nú yfir
r
I stjórnmálaályktun þingsins, sem hér fer á eftir
eru dregnir lærdómar af þróun síðustu ára og
færð rök fyrir nauðsyn vinstri samvinnu
Blaðið hefur góðar heimildir
fyrir því að þrjú erlend tilboð
liggi nú fyrir hjá hefnarnefnd
um efni og jafnvel lán til bygg-
ingar nýrrar dráttarbrautar til
þess að taka upp togara. Er eitt |
tilboðanna frá Bretlandi, annað
frá V.-Þýzkalandi og hið þriðja
frá Þýzka alþýðulýðveldinu.
Svo undarlegt sem það kann
að virðast hefur hafnarnefnd
enn engan formlegan fund
haldið um þetta þýðingarmikla
mál og leynir bæjarstjórn enn
sem komið er þessum tilboð-
um, sem munu hafa borizt á sl.
vetri eða vori.
Eru þessi einstæðu vinnu-
brögð íhaldsmeirihlutans í hafn
arnefnd þeim mun furðulgri,
sem vitað er að Akuryrartog-
ararnir hafa orðið fyrir stór-
felldu rekstrartjóni, er þeir
hafa orðið að bíða allt upp í 2
vikur eftir slippplássum í Rvík
en eins dags bið með fullmönn-
uðu skipi er lágt metin á 20
þús. krónur, og er þá ótalið það
milljónatjón, sem þegar er orð-
ið að því fyrir iðnaðar- og
verkamenn bæjarins og ýmis
;' atvinnufyrirtæki, að dráttar-
braut fyrir togara hefur ekki
þegar verið byggð.
Breytingar fyrirhugaðar á lögum
um almannatryggingar
Stjórnarfrumvarp felur í sér margskonar
skerðingar á núgildandi réttindum
Lagt hefur verið fram stjórnar-
frumvarp á Alþingi til nýrra al-
mannatryggingarlaga. Felur frum-
varp þetta í sér veigamiklar rétt-
indaskerðingar og markar í heild
spor aftur á bak í tryggingamálun-
um, þótt þar sé einnig um að ræða
nokkur atriði, er til bóta mega telj-
ast.
Helztu breytingar skv. frumvarp-
inu eru þessar: Heilsugæzlukafli nú-
gildandi laga er með öllu fellur nið-
ur. Réttur einstæðra mæðra til að
fá barnsmeðlög greidd af Trygginga
stofnuninni er felldur niður. Sama
máli gegnir um 3 mánaða styrk, er
barnsmóðir hefur haft rétt til. Nú
verða þessar mæður að sækja rétt
sinn sjálfar f hendur barnsfeðra
eða sveitarstjórna. Fjölskyldubætur
skv. frumv. verða nú fyrst greiddar
með 3. barni í stað 2. eins og nú er.
Þá er ákveðið, að á 1. verðlags-
svæði skuli menn greiða 5 kr. fyrir
hverja læknisvitjun og 10 kr. á 2.
verðlagssvæði.
Helztu breytingar til bóta eru
þær, að mæðralaun hækka nokkuð
og ellilífeyrír hækkar um 5%.
Þá eru að lokum ákvæði um ið-
gjaldagreiðslur, og fela þau f sér
hækkun gjalda, en ekki verður full-
séð hve mikla.
I.
Þýðingarmesta staðreynd í þró-
un stjórnmála á síðustu tveim ár-
um er að pólitík hins kalda stríðs
erlendis og á íslandi hefur beðið
algert skipbrot og að hinir raunsæ-
ari stjórnmálamenn borgaralegu
ríkjanna gera sér þetta meir og
meir ljóst.
Um leið og íslenzka þjóðin gerir
sér grein fyrir skipbroti þeirrar
stjórnmálastefnu, sem einkennt
hefur síðustu 8 árin, er nauðsyn-
legt, að hún átti sig á því, hvað
þessi stjórnmálastefna hefur kost-
að þjóðina.
I 8 ára köldu stríði ameríska og
íslenzka auðvaldsins gegn alþýðu
landsins, hefur amerísk yfirdvottn-
un stöðugt færzt í aukana. Þjóðin
hefur verið gerð að leiksoppi arð-
ráns- og spillingarafla einokunar-
auðvaldsins, og þjóðarbúskapurinn
að tilraunasvæði amerískra hag-
fræðikenninga, sem ósamrýman-
legar eru íslenzkum þjóðháttum.
Afleiðingarnar blasa nú við á
öllum sviðum þjóðlífsins.
Launakjör verkalýðsins eru lé-
legri en 1947 (des.), kaupmáttur
tímakaupsins minni. Verkamenn
suovestanlands verða að vinna
mikla eftirvinnu til þess að lífsaf-
koman verði sæmileg, en verka-
menn í öðrum fjórðungum eiga við
atvinnuleysi að stríða. Fjögur stór-
verkföll síðan 1947 hafa ekki
megnað að halda í horfinu, þótt
hvert sinn hafi náðst nokkuð af
því sem auðvaldið hefur rænt af
verkalýðnum með tilstyrk ríkis-
valdsins.
Þjóðarbúí kapurinn er í öng-
þveiti eftir 8 ára vaxandi óstjórn,
I 7 ár hefur enginn nýr togari ver-
ið keyptur til landsins og báta
smíðar innanlands og bygging fisk
iðjuvera að mestu stöðvaðar. í
mótsetningu við þá stórvirjcu
stefnu nýsköpunarstjórnarinnar
1944—1947 að efla hina inn-
lendu atvinnuvegi, er væri grund-
völlur sjálfstæðs efnahagslífs, hafa
stjórnir hins kalda stríðs valdið
stöðnun í sjávarútveginum, en gert
betl og hermang að einkenni efna'
hagsstefnu sinnar. En slíkt hefur
verið fyrirhyggjuleysi og óstjórn
þessi ár hins kalda stríðs, að þrátt
fyrir Marshall-gjafir og aukatekj-
ur af hernámi alls um 1100 millj.
króna, — þá eru áburðarverk-
smiðjan og Sogs- og Laxárvirkjun-
in einu stóru framkvæmdir þess-
ara 8 ára og kosta samanlagt um
300 milljónir króna (ef tollar og
vextir til ríkisins eru dregnir frá
stofnkostnaði þeirra). En erlendar
fasfaskuldir eru í árslok 1954
orðnar 294 milljónir króna, en
1947 voru fastaskuldir ríkisins ein-
göngu 5 milljónir króna. Taumlaus
eyðsla yfirstéttarinnar og algert
ábyrgðarleysi valdhafanna um
ijóðarhag einkennir stjómina á
jjóðarbúskapnum. — Enn byggir
íjóðin því afkomu sína fyrst og
fremst á þeim ráðstöfunum, sem
nýsköpunarstjórnin gerði fyrir 10
árum um öflun togara, vélbáta og
byggingu fiskiðjuvera og efling
annars innlends iðnaðar.
Þrátt fyrir hjartnæmar yfirlýs-
ingar um verzlunarfrelsi, hefur út-
flutningsverzlunin verið einokuð.
En í innfiutningsmálum hefur ver-
ið veittur taumlaus innflutningur
á ákveðnum vörum, að svo miklu
leyti sem það er í þágu amerískra
og brezkra stóriðjuhölda og ís-
lenzkra umboðsmanna þeirra, með
þeim afleiðignum, að 1953 og
1954 er verzlunarjöfnuður Islands
við Bandaríkin óhagstæður um
271 milljcn króna og við Bretland
um 104 milljónir króna.
Afskipti valdhafanna af húsnæð-
ismálum almennings er eitt bezta
dæmi þess, til hvaða ófarnaðar
efnahagspólitík þeirra leiðir. Byrj-
að var með því að afnema frelsi
manna til að byggja íbúðarhús og
að hindra bæjarfélög í útrýmingu
bragganna og annarra heilsuspill-
andi íbúða. Með þeirri bygginga-
takmörkun tókst hvort tveggja i
senn: að koma tölu árlega byggðra
íbúða í Reykjavík úr 634 (1946)
niður í 282 (1951) og skapa á ár-
unum 1951—1952 tilfinnanlegt at-
vinnuleysi. Jafnframt banninu við
nýjum íbúðabyggingum, nema með
leyfi stjórnarvalda, var svo húseig-
‘ (Framhald á 2. síðu).