Verkamaðurinn - 25.11.1955, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 25. nóv. 1955
Stjórnmálaályktun Sósíalistafl
(Framhald af 2. síðu).
byggingu atvinnulífsins í þeim
landsfjórðungum, er eyðingin vofir
nú yfir og stefnir að því að setja
vinnu handa og heila í öndvegi í
þjóðfélaginu.
Ohugnanlegustu fyrirbærin í
þjóðlífinu eiga rætur sínar að
rekja til hnignunar og rotnunar
auðvaldsskipulagsins sjálfs. Þess
vegna verður Sósíalistaflokkurinn
jafnan að vera minnugur þess, að
takmarkið er afnám auðvaldss-
skipuulagsins, enda þótt ráðstafan-
ir vinstri ríkisstjórnar myndu á
núverandi stigi stórauka einka-
reksturinn á ýmsum sviðum.
Verkefni ríkisstjórnar, sem styður
sig við alþýðusamtökin, er eins og
nú standa sakir, að hnekkja valdi
einokunarauðvaldsins og hinna er-
lendu bandamanna þess í íslenzku
efnahagslífi, tryggja stjórnmála-
legt og efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar og tryggja afkomu og
efnahagslegt öryggi alþýðunnar til
sjávar og sveita.
En skilyrðið til þess, að allt
þetta gerist og leiði til velfarnaðar
almennings, er að ríkisvaldið sjálft
sé hrifið úr höndum hermangara
og einokunarauðvaldsins og kom-
ist í æ ríkara mæli undir áhrif al-
þýðunnar sjálfrar og samtaka
hennar. Með því vinnst það tvennt
í senn, að verndað yrði og varið
það lýðræði og þau lýðréttindi, er
alþýðan nú nýtur og komið í veg
fyrir, að braskarastéttin taki sér
stjórnmálalegt alræði, — og hitt
að alþýðan geti hafið sókn fram til
þjóðfélags samvinnu og sameignar,
þjóðfélags sósíalismans.
IV.
Flokksþingið álítur það veiga-
mesta hlutverk íslenzkrar verka-
lýðshreyfingar, við hlið hagsmuna-
baráttunnar, og stjórnmálabarátt-
unnar, að beita sér fyrir alhliða
nýsköpun íslenzks þjóðlífs í anda
alþýðunnar til þess að forða þjóð-
inni frá þeirri spillingarhættu, er
því nú stafar af rotnun auðvalds-
skipulagsins á hnignunarstigi þess.
Verkalýðshreyfingin verður að
ganga með reisn að þessu verk-
efni, í fullri vitund þess, að það
hefur verið hlutverk íslenzkrar al-
þýðu á undanförnum öldum að
varðveita hið dýrasta úr þjóðlífi
íslendinga og að það verður hlut-
verk sósíalistískrar alþýðu Islands
að vemda og endurreisa allt það
bezta úr fornri þjóðmenningu
vorri og reisa á þeim trausta, þjóð-
lega grun|ni þá alþýðumenningu
framtíðarinnar, sm um leið geri
hið bezta í menningu nútímans að
sameign fjöldans.
Það þarf nú þegar að gera sam-
eiginlegt átak verkalýðsfélaga,
samvinnufélaga og hverskyns
menningarfélaga um að endurreisa
og fegra skemmtana- og félagslíf
þjóðarinnar, hnekkja áhrifum
amerískrar ómenningar og kapí-
talískrar gróðahyggju og spilling-
ar. Það þarf að skapa samstarf
slíkra félaga um að reisa félags-
heimili fyrir alþýðuna, gefa út
heilbrigð og góð skemmtirit handa
henni og vinna í hvívetna að efl-
ingu alþýðumenningar á öllum
sviðum þjóðlífsins.
Flokkurinn þarf að efla stórum
starf sitt að þvi að ala alþýðuna
upþ í hugsunarhætti félagshyggju
og sósíalisma, bæði með því að
vinna sjálfstætt úr verkefnum
þeim, sem bíða á ýmsum sviðum
þjóðlífsins og með því að útbreiða
betur þekkinguna bæði á maxism-
anum almennt og því, sem unnið
er á Islandi í anda sósialismans.
Flokkurinn, róttækir mennta-
menn og verkalýðssamtökin, þurfa
að taka höndum saman til þess að
vinna gegn siðspillingaráhrifum
ameriska auðvaldsins og aðdáenda
þess, gegn vaxandi auðhyggju,
valdsdýrkun og undirlægjuhætti,
— en leggjast á eitt um að skapa
það hugarfar hjá þjóðinni, er setur
vinnuna, andlega og líkamlega, í
öndvegi, metur manngildi ofar öllu
öðru og breytir þjóðfélaginu í
samræmi við það.
V.
Það er hlutverk verkalýðsins,
vegna gildis hans og áhrifavalds í
atvinnulífinu, í krafti forystuað-
stöðu hans í stjórnmálalífinu og
reisnar hinnar sósíalistísku hreyf-
ingar hans í menningarlífinu, að
leiða íslendinga fram til þjóðfrels-
is og sósíalisma á næstu árum og
áratugum.
Sigursæl framkvæmd sósíalism-
ans í þriðja hluta heims, vaxandi
þjóðfrelsishreyfing undirokaðra
nýlenduþjóða, efling verkalýðs-
hreyfingarinanr í öllum auðvalds-
heiminum og hinn mikli vöxtur
friðarhreyfingarinnar í gervallri
veröld — allt er þetta íslenzkri al-
þýðu hin mesta lyftistöng í bar-
áttu hennar.
En frelsun íslenzkrar alþýðu
undan oki erlends valds og inn-
lends auðvalds getur aðeins verið
verk alþýðunnar sjálfrar. Og hún
hefur í höndum sínum öll ytri skil-
yrði til þess að vinna það mikla
verk. Allt er því komið undir ein-
ingu hennar og stefnufestu.
Á það vill 10. flokksþing Sam-
einingarflokks alþýðu — Sósía-
listaflokksins minna alla íslenzka
alþýðu.
|| Nýkomnar II
vörur:
i; Delicius EPLI
i Jonathan EPLI ;;
VÍNBER
i| APRIKÓSUR ||
1; í dósum.
KIRSUBER
í dósum.
JARÐARBER
í dósum.
Konfektrúsínur
í pökkum kr. 7.50
GRÁFÍKJUR
í pökkum kr. 3.25
Nýlenduvörudeild ;;
;; Og útibú.
1
V erkamannakaup
hækkar um 71 eyri
á klst. frá 1. des.
!; Kauplagsnefnd hefur reiknað ;!
I; út vísitölu framfærzlukostnaðar '!
;; fyrir nóvember og reyndist hún I;
;; 173 stig. Kaupgjaldsvísitalan!;
; reyndist hins vegar 161 stig og;;
; I verður því kaup greitt eftir vísi;;
; I töluni 171, samkvæmt samn-;;
íingum verkalýðsfélaganna.
I; Samkvæmt þessu hækkar; \
;;tímakaup verkamanna um 71 <|
í; eyri á klst. frá 1. des. n.k. í;
;; Hinn nýji kauptaxti verka-i;
^verður birtur í næstu blaði. i;
Fulltrúaráð verkalýðs-
félaganna hyggst efna
til námskeiðs í fram-
sögn og leiklist
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
á Akureyri hefur í hyggju að efna
til námskeiðs í framsögn og byrj-
unaratriðum leiklistar nú eftir ára-
mótin, ef næg þátttaka fæst. Eru
líkur til að kostur verði á að fá
mjög færan kennara til þess að
annast kennslu á námskeiðinu, ef
úr verður.
Þátttökugjaldi verður svo í hóf
stillt sem frekast er kostur. Þeir,
sem hafa hug á að taka þátt í
þessu námskeiði, eru beðnir að
hafa, sem fyrst, tal af Jóni Ingi-
marssyni, Kolbeini Helgasyni,
Guðrúnu Guðvarðardóttur eða
skrifstofu verkalýðsfélaganna. —
Veita þau allar nánari upplýs.
Þórshamar h.f. fyrir-
hugar bætta þjónustu
fyrir bifreiðaeigendur
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar
h.f. hefur í hyggju að reisa ný-
tízku smurstöð, bxlaþvottaplan og
benzínsölu á Gleráreyrum. Hefur
félagið nú fengið fjárfestingarleyfi
til þessara framkvæmda og hefur
sótt um lóð fyrir þessa starfsemi
vestan við Glerárgötu sunnan
Glerárbrúar.
Með byggingu þessarar stöðvar
verður mjög bætt úr brýnni þörf
á betri þjónustu fyrir bifreiðaeig-
endur, en þeir hingað til hafa átt
kost á.
Leiðrétting. í upptalningu á
íbúum „Gamla hótelsins" í síðasta
blaði féllu niður tvö nöfn, þeirra
Þorláks Einarssonar og Bjarna
Hóseassonar. Þeir misstu báðir
alla búshluti sína og fatnað.
Fimmtugur varð 22. þ. m. GísJi
Eylert, rakarameistari, Hafnar-
stræti 88.
Amerískar
Barnahúfur
væntanlegar
um helgina.
VERZL, B. LAXDAL
I Góður fundur í Sósíal-
istafélagi Akureyrar sl.
þriðjudag - 6 nýir
félagsmenn
Sósíalistafélag Aureyrar hélt fé-
lagsfund sl. þriðjudag. Þeir Rós-
berg G. Snædal og Björn Jónsson
sögðu fréttir frá floksþinginu, en
síðan urðu fjörugar umræður um
störf þingsins og stjórnmálavið-
horfið.
Á fundinum gengu 6 manns í fé-
lagið. Bætast því nú nýjir liðs-
menn á hverjum fundi. Á næst
síðasta fundi gengu 17 manns í fé-
lagið. Er þetta glöggt tímanna
tákn um vaxandi styrk flokksins.
Frá Skákfélagi Ak.
Undanfarið hefur staðið yfir
skákkeppni hjá félaginu, og eru
keppendur sextán. Keppninni er
þannig hagað, að keppndur hafa
klukkutíma til umhugsunar, og
eru tefldar þrjár umferðir á
kvöldi. (Mánudögum og fimmtu-
dögum). Níu umferðir eru þegar
búnar, og er röðin þessi:
1. Haraldur Bogason 8. v. — 2.
Jón Ingimarsson 8 v. — 3. Róbert
Þórðarson 7 v. — 4. Haraldur Ól-
afsson 7 v. — 5. Júlíus Bogason 6
v. (ein biðsk.). — 6. Halldór
Helgason 6. v. — 7. Randver
Karlesson 6. v.
Síðastl. mánudag tefldi Júlíus
Bogason samtímaskák við félags-
menn á fjórtán borðum. Vann
hann ellefu skákir, gerði tvö jafn-
tefli og tapaði einni. Sá er vann
hann var Friðgeir Sigurbjömsson.
MÍR MÍR
Sveitarlæknirinn
áhrifamikil rússnesk kvik-
rnynd verður sýnd í kvöld, 25.
nóvember kl. 8.30 e. h.
I myndinni leikur aðal-
Iilutverk T. Makarova, hin
fræga leikkona, sem lék aðal-
hlutverk í hinni ógleyman-
legu mynd „Steinblóminu“.
Sýningin er fyrir félaga og
gesti.
Innkaupsverð
Karlmannafrakkar
Karlmannaföt
Skyrtur
Hálsbindí
Sokkar
Hanzkar
Allar þessar vörur verða
seldar með innkaups-
verði til jóla.
VERZL. B. LAXDAL
Verkamannafél. Akureyrarkaupst.
heldur félagsfund í Verkalýðshúsinu n. k. sunnudag,
27. nóvember kl. 3.30 síðdegis.
FUNDAREFNI:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Stefnuyfirlýsing A. S. í. urn atvinnumál og
önnur þjóðmál.
3. Félagsmál.
4. Skemmtiatriði.
Fjölmennið stundvíslega.
STJÓRNIN.
TILKYNNING
Þann 31. október 1955 framkvæmdi notarius publicus
í Akureyrarkaupstað útdrátt á skuldabréfum láns Al-
þýðuhúss Akureyrar.
Þessi númer komu upp i 50 pús. kr. láni:
1 _ ] 1 _ 17 _ 22 - 24 - 35 - 43 _ 51 - 52 -
53 - 57 - 60 - 74 - 76 _ 78 - 79 - 80 - 82 -
87 - 89.
Af 100 pús. kr. láni komu pessi númer upp:
Lítra A: 5-8- 10- 32 - 52 - 57.
Lítra B: 93 - 107 - 108 - 115 - 134 - 146 - 154 -
156 - 159 - 162 - 164 - 180 - 182 - 188
- 201 - 202 - 204 - 210 - 224 - 228.
Lítra C: 298 - 301 - 349 - 352 - 353 - 359 - 361
- 371 - 383 - 384 - 411 - 430 - 436 -
442 - 452 - 463 - 468 - 477 - 489 - 499
- 506 - 508 - 520 - 521 - 526 - 5.32 -
535 - 536 - 538 - 560.
Útdregin skuldabréf og vextir af bréfum verða greidd
eftir 1. janúar 1956 hjá gjaldkera Alþýðuhússins, Stef-
áni K. Snæbjörnssyni.
STJÓRN ALÞÝÐUHÚSSINS.