Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Page 130
mannahöfn 1884—85; skipaður aukalæknir á Skipa-
skaga með 4 syðstu hreppum Borgarfjarðarsýslu
17. apríl 1885; fjekk veitingu fyrir 16. læknishjeraði
13. apríl 1886.
Kona hans er Jóhanna Andrea Knudsen, dóttir
bókhaldara í Reykjavík Lúðvfgs Knudsens og Onnu
Waage; Jóhanna var ekkja eptir sjera Björn Stef-
ánsson á Sandfelli í Oræfum.
Hann býr á Borg í Austur-Skaptafellssýslu.
58. þorvaldur Jónsson, fæddur í Kirkjubæjar-
klaustri í Vestur-Skaptafellssýslu 3. september 1837,
sonur Jóns Guðmundssonar, síðast ritstjóra |>jóðólfs,
og Hólmfríðar J>orvaldsdóttur Böðvarssonar; útskrif-
aður úr Reykjavlkurskóla 1857 með 1. einkunn;
stundaði læknisfræði í Kaupmannahöfn 1857—59>
tók próf í læknisfræði í Reykjavík 1863 með 1.
einkunn. Hann var sá fyrsti, sem Hjaltalín prófaði,
eptir að læknakennsla komst hjer aptur á. Hann
var settur hjeraðslæknir í ísafjarðarsýslu 6. október
1863 og fjekk veitingu fyrir því embætti 6. febrúar
1865. Hann þjónaði í vesturhluta Barðastrandar-
sýslu frá 5. nóvember 1878.
Kona hans er þórunn Jónsdóttir Hjörtssonar,
systir Hjartar læknis.
Hann býr á ísafirði.
5g. þorvarður Andreasarson Kjerúlf, fæddur á
Melumí Fljótsdal i.apríl 1848, sonur Andreasar bónda
Kjerúlfs og Margrjetar Jónsdóttur; útskrifaður úr
Rvíkurskóla 1871 með 2. einkunn; tók próf 1 læknis-
fræði (Reykjavík 1874 með 1. einkunn; var á spítölum
í Kaupmannahöfn 1874—75. Hann var settur lækn-
ir í Húnavatnssýslu 3. september 1875; honum var
veitt hjeraðslæknisembættið f 14. læknishjeraði 14.
ágúst 1876. Hann hefur setið á alþingi sem þjóð-
kjörinn fyrir Norðurmúlasýslu síðan 1881.