Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 2

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 2
2 efnin og helst í bróðerni, en með fullri alvöru og svo, að maður haldi til fulls við hvern sem er; svo vildi jeg helst hafa orðað það. Aldrei hefur mjer dottið í hug, að mínar skoðanir væru algildar og ó- mótmælanlegar, einkum þegar um það mál er að gera, sem hjer um ræðir; og jeg þekki altof vel þær mörgu og mismunandi skoðanir, sem bæði fyr og síðar og alt fram á þenna dag hafa verið í ljós látnar, til þess að jeg geti ætlað, að jeg hafi kljáð út um málið, að um það sje ekkert framar að segja. Það verður líklega svo, — og vildi jeg þó helst geta spáð öðru og betra —, að gras verði laungu gróið yfir höfuðsvörðum okkar BMO, áður en það mál, sem við báðir erum nú að ræða og reyna að skýra hvor fyrir öðrum og fyrir öllum þeim, sem á okk- ur vilja hlusta og vorum orðum gaum gefa, verði með öllu á enda kljáð. Eftir því sem ummálsefnið er vaxið, má það vera okkur ærin ánægja, ef orð okkar stuðla að því að skýra það, hvort sem leiks- lokin verða mjer eða mótsöðumanni mínum í vil. I öðru lagi þakka jeg BMO fyrir það, hve laus ritgjörð hans er við persónulega áreitni og hógvær- lega og vísindamannslega rituð. Enda var slikur ritháttur lika eina skilyrðið fyrir því, að jeg leiddi ekki hest minn frá því að eiga umræðu við hann eða hvern annan, sem vera skyldi; þegar um vis- indaleg málefni er að ræða, eiga andlegar barsmíð- ar og brígslyrði og alt þar fram eftir götunum sjer eingan stað; í stað þess að gagna gerir slíkt ekki annað en spilla fyrir; ef slíkri aðferð er beitt við mig, fer jeg mina leið i burt. Öll ritgjörð BMÓ sýnir, að honum er mest um málið að gera, og hann hefði þess vegna eiugan veginn þurft að taka það sjerstaklcga fram (á bls. 3), að hann vilji

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.