Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 11

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 11
11 sem hefur dvalið í Noregi og sjeð eða heyrt alt það, sem er norskt í kvæðinu — en það sjá allir þegar í stað, hve hæpin og óvisindaleg þesskonnr hugmynd er; enn þá hæpnari og furðulegri verður hún þó, þegar á hana fellur bjarminn frá þeirri vissu, að e k k e r t sjerstaklega í s 1 e n s k t kem- ur nokkurstaðar fram; hvernig er það t. d. skiljan- legt, að refurinn — þetta eina rándýr og skaðræð- isdýr á Islandi — skuli hvergi koma fram, beinlínis nje óbeinlínis?. Það vill nú svo vel til, að það er beinlínis hægt að sanna, hve þesskonar skýríngar- tilraunir eru hæpnar og mögulegleika-vegirnir glæfra- legir. I einu Eddukvæðinu eru sagðir ýmsir draum- ar, er konur dreymdi; eina dreymir, að »björn er inn kominn, bryti upp stokka, hristi svá hramma, at vér hrædd yrðim« osfrv.; þessi draumur er ráð- inn svo, að björninn — sem er hvítabjörn (»hvítabjörn hugðir») — merki »hregg austan«; þótt ekkert væri annað að styðjast við en þetta, mundi jeg samkvæmt aðferð minni ekki g e t a ráðið ann- að, en þetta kvæði væri ort á Grænlandi; hvergi nema þar gat hugmyndin um hvítabjörnu verið svo Ijós og hræðslan við þá svo hjartanleg, að hvortveggja gæti vakið drauma hjá mönnum. Enn greinilegri vottur um upprunann er orðið aunt- an; k o m a hvitabjarnarins er þýdd móti komu a u s t a n-vinds; þar sem draumurinn og kvæðið varð til, komu þá þessir birnir »að austan«. Þá sjaldan að hvítabirnir hafa hrakist á ísum til íslands hafa allir vitað, að þeir komu norðan og norðvestan eða úr þveröfugri átt við þá, sem kvæðið getur um. Að eins á Grænlandi, þar sem íslendingar höfðu sest að (helst Eystri byggð), er þetta orðatiltæki rjett og eðlilegt. Það tekur því öll tvimæli af. Auk

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.