Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1901, Page 56

Eimreiðin - 01.05.1901, Page 56
136 framfaramál Vesur-íslendinga. Einstaka mótstöðumenn eru lagðir í ein- elti, t. a. m. séra Páll þorláksson (»Tjaldbúðin« V. bls. 44—45). í Almanaki þessu (1901) er meðal annars ritgjörð um »landnám íslendinga í Argylebygð« eftir Björn bónda Jónsson. Björn Jónsson er ákafasti fylgismaður »Lögbergs« í Argylenýlendunni. Og þess vegna er hann fenginn til að semja ritgjörð þessa. Stækasta flokksfylgi kemur og fram í ritgjörðinni. Flokksfylgið lýsir sér í því, að mótstöðumenn »Lögbergs« í pólitík eru eigi nefndir á nafn, þótt sumir þeirra haíi unnið mikið að framfaramálum nýlendunnar. Hér skulu nefnd tvö dæmi: Guð- mundur Símonarson var fyrsti maður í Argyle-nýlendu, er keypti þreskivél. Hann náði þannig þreskingaratvinnu nýlendunnar úr höndum þarlendra manna í hendur íslenzkra manna. í safninu eru oft raktar ættir Vestur- íslendinga til heldri manna á íslandi eða í Danmörku. í*að er gjört Vestur-íslendingum til sóma. Það er auðvitað í alla staði rétt. Guðmundur Símonarson er hálfbróðir dr. Valtýs í Khöfn. Samt sem áður er Guð- mundur eigi nefndur á nafn í ritinu, af því hann er mótstöðumaður »Lögbergs« í pólitík. í bænum Baldur í nýlendunni hefir verið íslenzkur verzlunarmaður um mörg ár, Kristján Benediktsson að nafni. Hann er öllum mönnum að góðu kunnur og mjög vinsæll maður. Ásamt þar- lendum húsbónda sínum hefir hann afarmikil viðskipti við nýlendumenn. Hann er eigi nefndur á nafn, þar sem minst er á verzlun nýlendunnar, af því að hann er mótstöðumaður »Lögbergs« í pólitík. H. P. MJÖG LÍTILL SKÁKBÆKLINGUR heitir kver eitt, sem oss hefir verið sent. Ekki sést hver höfundurinn er, en þar sem bækling- urinn er »prentaður í Flórens um aldamótin 1901«, þá hyggjum vér að fullyrða megi, að hann sé saminn af hinum góðkunna prófessor W. Fiske, sem er allra manna fróðastur um alt það, er að skáktafli lýtur. Er því góður að honum nauturinn, enda frágangurinn allur hinn prýðilegasti. Er þar fyrst skýrt frá uppruna skáktaflsins og sögu þess, og þess getið, að það hafi á 12. öld borist til Englands og þaðan til Islands og verið tíðkað þar þegar í ungdæmi Snorra Sturlusonar, en til hinna Norðurlandanna hafi það ekki borist fyr en nokkru seinna. Því næst er skýrt frá mannganginum og aðferð við leikina og að lok- um ýmsar skákreglur og kendir nokkrir sóknar- og varnarleikir. Á laus- um miða er þess getið, að bæklingurinn fáist hjá »Taflfélaginu« í Reykjavík. Þar fáist og skákritið »/ uppnámi«•, og komi út af því 4 hefti á ári.1 Hjá ritara félagsins Pétri Zófoníassyni geti menn enn fremur fengið skákborð og ýmiskonar skákmenn. V. G. Vér höfum nú fengið 1. hefti af þessu riti og er það prýðisvandað.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.