Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Blaðsíða 18

Eimreiðin - 01.10.1919, Blaðsíða 18
210 KITLUR [EIMREIÐIW eins og þetla kæmi henni ekki við. Mér fundust skelfi- legir atburðir steðja að, og eg sagði hægt, eins og upp á von og óvon: »Ef þú ferð nú ekki til hans, þá sker hann sig með ljánum«. — Eg var sjálfur öldungis viss um þetta. Lína hrökk við. Hún hörfaði fram að dyrunum, og þá leit hún á mig. Þegar eg var lítill drengur, var eg einu sinni að smala. Hesturinn minn steig ofan á hálffleygan rjúpuunga, sem kúrt hafði í grasinu. Eg tók hann upp, allan sundur kraminn, og hann leit á mig, eins og hann vildi samt fá að lifa. Og eg horfði á hann deyja með þessa bæn í augunum. — Lína hvarf fram í göngin, og eg sá hana hlaupa yflr hlaðið út í skemmuna. Eg hafði ekkert ráðrúm fengið til umhugsunar, en líkamleg óbeit herti skap mitt, og einhver röggsemi greip mig, að láta til skarar skríða og komast hjá hneyksli og óláni. — Nú sat eg eftir, og yíir mig kom skyndileg skelfing og viðbjóður. Eg hafði gert út um örlög þessa fáráða barns. Hvað átti eg með að misþyrma henni og hrinda henni, þótt hún reikaði inn á nýjar leiðir? Hvers vegna mátti hún ekki vera sjálfráð? Ábyrgðin lagðist á mig, lamandi og kremjandi eins og glæpur. En eg hugsaði um Línu eina og sjálfráða, ílöktandi eins og viltan' smáfugl. Hjá Tómasi gæti hún kanski vaxið, þótt iitið yrði um leik eða yndi. Færi hún nú á flæking, yrði hún eins og visnað strá fyrir straumi. Eitthvert hug- boð kom að mér um það, að þetta mundi gerbreyta öllu samlífi þeirra, að hann mundi kanski æfinlega minnast þess, að hann var nærri búinn að missa hana og að hún átti hann samt. Og hún mundi kanski finna til þess, að hún ætlaði að bregðast honum, og bæta honum það með ástúð og nærgætni. Hún mundi kanski líta svo á alla æfi, að hún hefði verið að gera skelfilega glópsku, að hún hefði orðið fyrir maklegum viðtökum, og að maðurinn sinn hefði reynst sér vel og verið sér góður og tryggur. Kanski voru þau bæði betur komin en áður. — —
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.