Skólablaðið - 01.02.1911, Blaðsíða 13
SKÓLABLAÐIÐ
29
Það lítur svo út, sem að þjóðin hafi öðru að sinna um
þessar mundir en að hugsa um kristindóminn, hann er settur til
síðu. Prestunum er það ljóst, en þeir geta lítið að gert. Allir hugs-
andi menn munu taka eftir því, en láta sig margir það litlu
skifta. Og eg hygg að allir kennarar hafi orðið þess varir, en
þeir mega ekki ganga fratnhjá því máli.
Vér þurfum að veita anda hans inn í skólana og kenslu-
stofurnar, það mun verða meginstyrkur vor, eftir því fara mjög
ávextirnir af starfi voru.
A það virðist mér reynsla mín benda og eg held að það
muni verða megiri þátturinn í samvinnu milli heimila og skóla
— svo mikið lifir af trú á kristindóminn meðal foreldra hér á
landi. Þeir þora alls ekki að skiija börnin sín eftir á öræfum
vantrúarinnar, eg er sannfærður um það.
Það var happ fyrir okkur að fá séra Magnús Helgason fyrir
Kennaraskólann. Eg treysti á það, að það verði okkur til blessunar.
Eg hefi átt hér fund með foreldrum barnanna sem eru hér
skólanum, og talað um þetta mál við þá. Þá komum við
okkur saman um að koma saman 3. hvern sunnudag ásamt börn-
unum aðeins til þess að tala um kristindóminn. Við kotnum
fyrst saman til þess síðastl. sunnudag.
Það var ánægjuleg stund. En reynslan er engin. Eg vona
að eg hafi tækifæritil þess að skrifa yður um það síðar.-----------
ííýársbikar G-rettis
vann Stefán Ólafsson i annað sinrt síðastliðinn nýársdag; synti
50 stikurnar á 42 sekúndum. Þrír aðrir þreyttu sundið: Jón
Tómasson synti sömu vegalengd á 48 sek., og Sigurjón Sigarðs-
son á 48 sek. og Sigurjón Pétursson, glímukonungurinn á 54sek.
Þriggja stiga frost var í lofti, þegar sundið var þreytt, og
aðeins 2 stiga hiti (C.) í sjónum.
Sund er góð íþrótt og þörf íslendngum, svo mikið sem
þeir eiga við sjó og vötn. Og hryggilega mörg slys hafa orðið
af bví, að fáir kunna þá list. Það er því gleðiefni. að sund-