Skólablaðið - 01.11.1913, Side 10
170
SKÓLABL.AÐIÐ
Þá eru skólaeldhúsin að komast þar í móð, og afar mikið
látið yfir gagnsemi þeirra. »Engin kona sannmentuð, ef hún
kann ekki til almennra eldhúsverka.« »Engin alþýðukona fær
um að vera húsmóðir, ef hún kann ekki til eldhúsverka, og ef
hún kann ekki að sauma fötin upp á sig og börnin sín.«
»Heimilin þurfa meira á að halda iðnum höndum en miklu bók-
viti, og þó verður bókvitið aldrei metið of hátt.«
Ameríkumenn eru líklega ekki eins rígbundnir þrælar tísk-
unnar í fafasniði eins og menu eru víða annarsstaðar. Ein kenslu-
konan svarar seinni spurningunni: »Handavinna stúlkna er nauð-
synleg ti! þess, að þær geti sniðið fötin sín eftir eigin höfði;
þær hætta þá að ganga eins og apakettir til fara þegar skradd-
arinn saumar ekki fötin þeirra.«
Hugsið ykkur muninn á kjólbúna kvenfólkinu, ef hver stúlka
saumaði og sniði kjólana sína sjálf, og hefði þá eftir sínu höfði.
Ja, hvernig ætli færi?
Einn svarar: »Slík kensla (handavinna) er fyrirboði betri og
sælli framtíðar, og mun styðja að heilbrigði og hamingju bæði
á heimilunum og í þjóðfélaginu.«
Handavinna drengja er vestan hafs sumstaðar rekin á líkan
hátt og á Norðurlöndum (slöjd, eða skólaiðnaður); en meira
virðist þó bera þar á heimilisiðnaði, handavinnu til heimilisþarfa.
Ekki svo mjög hugsað um að reka vinnuna eftir reglum og
kröfum uppeldisfræðinnar, meiri áhersla lögð á að nemendurnir
verði búhagir, geti hjálpað sér sjálfir sem mest þegar út í lífið
kemur, til þess að þeir þurfi ekki að kaupa af handverksmönn-
um hvert handarvik, sem gera þarf á heimilinu.
En ekki er verkleg kensla í skólunum bundin við innan-
húss vinnuna eina. Qarðyrkjan gleymist ekki. Eldri námsveinar
eru látnir læra að búa til ýms garðyrkju- og jarðræktaráhöld,
og þeim er kent að beita þeim við vinnuna. Garðyrkjan er einn
þátturinn í náttúrusögukenslunni.
Margt af þessari verklegu kenslu, sem tíðkast í skólum vest-
an hafs og austan, er erfitt viðfangs hér; skortir enn ýmislegt
hjá oss, ekki síst kennara. í farskólunum er að svo stöddu varla
hugsandi til þess. Þar skortir meðal annars tímann, börnin eru
svo stutt að námi, og hafa þann stutta tíma ærið að vinna við