Alþýðublaðið - 02.06.1965, Síða 11
Wr
t= Ritsf ióFrÖrn Eidsson
d)
Fram vann Akranes
í haráttuleik 3:2
FRAMARAR tryggðu sér bæði
stigin í 1. deildinni, er þeir og
Akurnesingar áttust við uppi á
Skaga í fyrrakvöld. Sigraði Fram
með 3 gegn 2 eftir allf.iörugan og
frekar jafnan leik. Völlurinn var
blautur, háll og þungur. Áhorf-
endur voru margir.
Það var Helgi Númason, sem
skoraði fyrsta mark Fram 5 mín.
eftir að leikurinn hófst. Rétt áður
var Akranes-markið í grófri
liættu, er annar bakvörðurinn, —
Pétur Jóh., sendi boltann á mark
vörðinn, sem mistókst að ná híon-
um, en markstöngin „hljóp í
Skarðið" og bjargaði. En það skipti
svo sem ekki miklu máli, því Helgi
bætti úr þessu. eins og fyrr seg-
ir, með því að leika á vörnina —
og skora.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
Iiálfleiknum. sem lauk með 1 gegn
engu fyrir Fram.
Framarar léku oft skemmtilega
með snöggu og stuttu spili, en Ak-
urnesingar hins vegar meira með
langspyrnum, sem gáfu ekki góða
raun. Þó áttu Akurnesingar nokkr
ar góðar sóknarlotur.
★ Síffari hálfleikur.
í síðari hálfleiknum, svo að
segja í upphafi, á 3. mín. bættu
Framarar öðru marki við. Hreinn
miðherji nýtti sérlega vel háa send
ingu frá Baldri Seheving fyrirliða.
Bogi miðframvörður hugðist
skalia, en tókst það ekki nægilega
vel, markvörðurinn hljóp fram og
hugðist koma til aðstoðar. en allt
kom fyrir ekki. Boltinn hafnaði ó-
hjákvæmilega í markinu. Var nú
staðan orðin 2 gegn 0 Skagamönn-
um í óhag. En svo var þó ekki
lengi úr þessu, því að nú hófust
Skagamenn handa fyrir alvöru. —
Færðust þeir nú allir í aukana,
og herða róðurinn allt hvað þeir
máttu. Fengu stuttu síðar tvær
17. júní mótið í
frjálsum íþróttum
FRJÁLSÍÞRÓTTAKEPPNi; 17.
júní-mótsins fer fram 15. og
17. júní n k- Keppt verður í þess
um greinum:
110 grindahl. — 100 m. hl. — 100
m hl. kvenna — 100 m. hl. sveina
— 200 m. — 400 m- — 800 m-
—■ 1500 m. — 300 m. hlaup —
4x100 m. boðhlaup — 1000 m.
boðhlaup — kringlukast — sleggju
kast — spjótkast — kúiuvarp —
stangarstökk — langstökk —
langstök kvenna — hástökk — þrí
stökk.
Þátttaka er opin öllum félög
um innan ÍSÍ og skal þátttöku til-
kynna til Í.B.R. fyrir 13. júní
u.k.
aukaspyrnur, sú fyrri gaf enga
raun, en sú síðari þeim mun betri
raun. Ríkharður skoraði úr henni
glæsilega. Lyfti fimlega yfir varn-
arvegginn, markverðinum daprað-
ist vörnin og boltinn hafnaði í
netinu. Stuttu síðar jafnaði svo
Skúli Hákonarson, sem var einn
bezti maður heimaliðsins, metin,
með góðu skoti, eftir gróf mistök
varnarinnar. Markvörðurinn hafði
hlaupið fram, en heldur betur á
sig, og Skúli sendi boltann í mann
laust markið.
Leit nú helzt út fyrir að gestir
og heimamenn myndu skipta með
sér stigunum, sem ekki hefði ver-
ið ósanngjarnt, eftir atvikum. En
svo fór þó ekki. Hreinn, miðherji
Fram, átti enn nokkuð ótalað við
þá Skipaskagapilta, ,,fá orð í
fullri meiningu,” er hann á 44.
mín. tryggði félagi sínu bæði stig-
in, með snöggum aðgerðum og
skoti úr „fyrirgjöf” frá Baldri
fyrirliða. Með þessu skoti brast
sigurinn úr hendi Skagamanna
öðru sinni í mótinu. (Þeir hafa
leikið tvo leiki).
Lið Fram átti þama skemmti-
legan leik, yfirleitt léttan og fjör-
mikinn, á mælikvarða íslenzkrar
knattspyrnu. Baráttuhugurinn var
óbugaður fram á síðustu mínútu.
Liðið lék yfirleitt með stuttum og
allsæmilega nákvæmum sending-
um.
Akranesliðið barðist hins vegar
mest með langspyrnum, sem
framlínan réði yfirleitt ekki við.
Enda má segja, að hún væri yfir-
leitt í daufara lagi. Á Eyleifi bar
sama sem ekkert. Björn Lárusson
! var næstum því alltaf of seinn
I í sínum aðgerðum. En þessir 2
hafa verið taldir meðal efnileg-
ustu yngri framherja Akurnes-
Framhald á 15. síffu
JÓN INGI,
markvörffur ÍA, varffi vel í
fyrrakvöld.
Reynir Jónson og bakvörffur ÍBA berjast um boltann í leik Vals og ÍBA.
Jafntefli KR ÍBK 1:1
Á ANNAÐ ÞÚSUND manns sáu
Keflavík og KR í jafnteflisleik á
Njarffvíkurvellinum í gærkvöldi.
Veffur var óhagstætt, kalsi og rign
ing.
Keflvíkingar léku mjög vel í
fyrri hálfleik, og áttu mun fleiri
tækifæri, en affeins e*inu sinni
tókst aff nýta þau til fulls. Markið
kom eftir ágætt upphlaup Kefl-
víkinga, sem lauk meff ágætu
skoti Karls Hermannssonar, sem
skoraði glæsilega og óvei*jandi fyr
ir Heimi. Þetta gerffist á 25 mín.
leiksins.
í siðari hálfleik voru KR-ingar
betri, cn þaff var ekki fyrr en ca.
7 mítyútum fyrir leikslok, aff KR
jafnaði, en markið skoraffi Ellert
meff skalla úr horni.
Þetta var mikill baráttuleikur
og eftir tækifærum má segja, aff
úrslitin hafi veriff nokkuð sann-
gjörn.
Dómari var Hannes Þ. Sigurffs*
son.
L U J T M St.
ÍBK .. 2 1 1 0 3-2 3
Valur . . .. 1 1 0 0 4-2 2
Fram . . 2 1 0 1 4-4 2
ÍBA .... . . 2 1 0 1 4-5 2
KR .... . . 1 0 1 0 1-1 1
ÍA .... . . 2 0 0 2 3-5 0
Næsti leikur í I. deild verffur
7. júní á Akureyri milli Akureyr-
inga og Akurnesinga. Daginn eft-
ir leika KR og Fram á I.augardals
vellinum.
Iveir leikir í 2.
deild í kvöld
í KVÖLD heldur keppnin áfram
í 2- deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Á Melavellinum leika Vík
ingur og Umf. Breiðablik í Kópa
vogi. Á vellinum í Hafnarfirði eig
ast við Haukar og Þróttur.
Báðir leikirnir geta orðið hinir
skemmtilegustu.
Barna og unglinga-
námskeið oð hefjast
i MORGUN, fimmtudag, hefj ]
ast á fjórum íþróttasvæðum í
Reykjavík námsskeið í íþróttum
og leikjum á vegum Æskulýðsráðs,
Leikvallanefndar, íþóttabandalags
ins og íþróttavallanna. Verða nám
skeið þessi fyrir börn og unglinga
á aldrinum 5 — 13 ára.
Á þriðjudögum, fimmtudögum
og laugardögum verður kennt á
þessum stöðum:
Ármannssvæði, Þróttarsvæði
(Skipasund), Golfvelli, og Álf-
heimabletti.
Á mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum verður kennt á
þessum svæðum:
K.R- svæði, Vals svæði, Fram
velli og Víkingsvelli-
Á hverjum stað verður nám-
skeiðunum tvískipt, fyrir hádegi
kl. 9,30 — 11.30 verður tekið við
börnum 5—9 ára en eftir hádegi
við eldri börnum, 9—13 ára, og
þá kl. 14—16. Á hverjum stað
verða 2 íþróttakennarar, sem. leið
beina börnunum.
Innheimt verður vægt þátttöku
gjald fyrir tímabilið, sem verður
4 vikur, gjaldið er kr. 25.00- Allar
upplýsingar eru veittar í símum
15937 (Æskulýðsráð) kl. 2—4 og
35850 (Í-B.R.) kl. 4—6 daglega.
ÍKjartan vann Valbjörnj;
í 110 m. grind ji
Á EÓP-mótinu í gærkvöldi ! I
sigraffi Kjartan Guffjónsson, <;
ÍR, Vftlbjörn Þorláksson, KR, JI
í 110 m. grindahlaupi, tím- !;
arnir voru 15,7 og 16,2 sek, ; |
Guffmundur Hermannsson, I j
KR, varpaffi kúlu 16,28 m. j ;
og Halldór Guffbjörnsson,;!
KR, sigraffi Kristleif bróffur j
sinn í 1500 m. hlaupi, tím- :
arnir voru 4.05,6 og 4.07,2. j
Nánar um mótiff á morgun. ;
iMMWWMWWtmUMMWMW
ALÞ'ÍÐUBLAÐIÐ - 2. júní 1965