Tölvumál - 01.05.1986, Blaðsíða 15
Aðalatriðið er að hann sé ekki ot langur eða flðkinn,
þannig að notandi guggni ekki á að lesa hann allan.
Aftur á mðti má láta hjálpartexta visa á ákveðinn
kafla eða grein í handbðkinni.
Endanlegt markmið notendahandbðkar - ásamt
hjálpartextum í forriti, er sem sagt að koma vel til
skila, á einfaldan og gagnorðan hátt, hvernig notandi
á að vinna með forritinu sinu. Grundvallaratriðið
þegar skrifuð er notendahandbðk er því fyrst og
fremst að leióa notanda I gegn um kerfið frá byrjun.
En er Islensk handbðkagerð I molum? Nei, ekki viljum
við viðurkenna það, sérstaklega ef miðað er við
erlend kerfi fyrir svipaðan markað. En betur má ef
duga skal, því gðð handbðk getur sparað mörg símtöl
og hlaup - bæði fyrir kaupanda og seljarída forrits.
Sigrön G. Fenger
HUGBÚNAÐI HF.
NORDDATA 86
Skýrslutæknifélagið
minnir á ráðstefnuna
NordDATA 86,
sem haldin
verður I Stokkhðlmi
16 - 19 júnl.
Eins og þeir sjá, sem þegar hafa fengið dagskránna,
hefur mjög svo verið vandað til þessarar ráðstefnu.
Hægt er að velja ör 220 fyrirlestrum. Gert er ráð
fyrir allt að 2.500 þátttakendendum.
Ferðaskrifstofan Örval sér um hðpferð á ráðstefnuna.
Brottför er 15. juní, en hægt er að dvelja öti allt
upp I einn mánuð.
Dagskrá ráðstefnunnar liggur frammi á skrifstofu
Örvals, sem gefur allar nánari upplýsingar I slma
26900 og eins á skrifstofu SI I slma 82500. -kþ.
15