Vísir - 29.05.1962, Page 1
ISISH
* ... .T*'*"#
il*L-
' ?$%&
: :
:
■
VISIR
Þriðiudagur 29. maí 1962. — 121. tb.
Þýðingarlaust að
kæra vafaatkvæði
Winter, skipstjóri, í brúnni. ^
í kurteisisheimsókn
Franska herskipið Command
ant Bordais er nú í kurteisis-
heimsókn í Reykjavík og mun
dvelja hér til morguns. Skipið
er byggt í fyrra, hefur tvær
aflvélar, 16.000 hestöfl að
sfiærð og gengur 25 mflur. Á
skipinu eru 14 yfirmenn og 155
aðrir. Skipið er 2500 tonn DPL,
100 metrar að lengd og 11.5 m
að breidd.
Vísir átti í morgun tal við
Winter, skipstjóra skipsins,
sem er 45 ára að aldri og hefur
verið í flotanum í nærri 20 ár.
— Hvaðan komið þið hing-
að?
— Við komum frá Holsteins
borg á Grænlandi. Áður höfum
við verið við Nýfundnaland og
Canada. Við aðstoðum á þess-
um svæðum frönsk fiskiskip.
— Hverskonar fiskiskip
senda frakkar þarna vestur?
— Þar er aðallega um að
ræða stóra togara, allt upp
í 3Ö0Ö tonn. Hér við fsland’
höfum við þó enga togara. Við
erum hér eingöngu í kurteisis-
heimsókn og til að taka olíu og
vatn.
— Eru mörg slík eftirlitsskip
í notkun?
— Skip eins og þetta eru
níu. Þau eru aðallega byggð
til allskyns eftirlits- og fylgd-
arstarfa. Þau eru sérstaklega
byggð með það fyrir augum að
geta verið úti um langan tíma,
í hvers kyns veðurfari á úthöf-
um. Þau eru einnig útbúin fuil
komnum tækjum til leitar að:
kafbátum ,auk arinarra hern-
aðartækja.
— Hvert farið þið héðan?
— Við förum fyrst til Nor-
egs. Síðan höldum við norður.
til norður odda Noregs óg til
Barentshafs.
— Hvar er heimahöfn skips-,
ins?
— Hún er í Lorient á Bret)
agrieskaga. i L " v' i . ., í, k
Dauðadómur
Frétt í morgun hermir, að hæsti-
réttur Israels hafi staðfest lífláts-
dóminn yfir Eichmann.
Hvort llflátsdóminum verður
fullnægt er svo annað mál, því að
forsetanáðun gæti komið til
greina, þannig að dóminum yrði
breytt í ævilangt fangelsi.
í bæjarstjórnarkosningunum í að þessi atkvæði hafi tilheyrt I-
tveimur kaupstöðum stóðu úrslit. lista þeirra. Benda þeir á það að
svo glöggt milli lista, að vafaat- í kosningahandbók, sem gefin var
kvæði gátu skipt máli og eru nokkr j út í Reykjavík, hafi orðið prent-
ar líkur fyrir því, að þeir aðiljar, villa og listi þeirra verið kallaður
sem óánægðir eru með niðurstöð- A-listi. Eru þeir nú að tala um að
urnar kæri úrskurði um þau. Þó | kæra þetta og heimta að A-at-
verður að geta þess að í báðum ; kvæðin verði talin I-atkvæði. Slík
tilfellum eru ákaflega litlar líkur kæra er þó allsendis vonlaus enda
til að kæra komi að nokkru gagni, væri slíkt brot á öllum kosninga-
því að málin liggja beint fyrir. reglum. Hinir einu, sem þeir gætu
kært, væru útgefendur kosninga-
handbókarinnar í Reykjavík.
Tveir flokkar jafnir.
Á Seyðisfirði voru tvö atkvæði j
talin vafaatkvæði. Stafaði það af:
ógreinilegum merkingum á lista Al-1
þýðuflokks og Framsóknar. Báðir
listarnir höfðu sömu atkvæðatölu!
og síðan kom hvort vafaatkvæðið
á hvorn þeirra. Bæði þessi vafa-
atkvæði voru úrskurðuð gild og
þar fylgt gamalli venju. Alþýðu-
flokkurinn gerði fyrirvara um mál-
ið, en svo fór að hann vann hlut-
kesti móti Framsóknarflokknum.
A-atkvæði á Sauðárkrók.
Á Sauðárkróki komu fram tvö
utankjörstaðaratkvæði merkt A-
listi, en enginn A-listi var í kjöri
þar, svo að kjörstjórn úrskurðaði
þau tafarlaust ógild. Krafðist eng-
inn þess að þau væru tekin gild,
enda væri það þvert á móti öllum
reglum. Nú vildi þó svo til, að það
gat munað þessum atkvæðum hvort
Sjálfstæðisflokkurinn héldi meiri-
hluta sínum og því hafa vinstri
menn síðan farið að halda því fram
Þ|ófar eltir
I gærkveldi, um klukkan 11 fyr-
ir miðnætti var brotizt inn 1 sum-
arbústað við Helluvatn, en það er
hluti af Eiliðavatni, Rauðhólameg-
in.
Þjófarnir höfðu á brott með sér
bát sem þeir tóku úr bátaskýli
sumarbústaðarins og fóru á bátn-
um út á vatn. Eigandinn kom
skömmu síðar á staðinn, sá þrjá
stráka á btnum, á að gizka 15 —
16 ára, og veitti þeim eftirför eftir
að í land var komið, en náði þeim
ekki. Missti hann af þeim bak við
Trippanef hjá Rauðhólavegi. Sagði
hann að einn strákanna hafi verið
nokkru stærri en hinir tveir.
Rannsóknarlögreglan biður þá
sem hefðu orðið varir við peyja
þessa, t d. tekið þá upp , bfl, eða
á annan hátt gætu gefið upplýsing-
ar um ferðir þeirrá, að láta hána
vita hið skjótasta.
Þríðji futtdur um
••• •
Sfldveiðik/or/n
Sáttasemjari heldur nýjan fund
í dag með fulltrúum Landssamb.
íslenzkra útvegsmanna og fulltrú-
um sjómannasamtakanna innan Al-
þýðusambands fslands, um kjör sjó
manna á sfldveiðibátunum í sumar.
Fyrsti fundur samninganefnd-
anna var haldinn 17. maí. Er tveir
fundir höfðu verið haldnir þótti
sýnt, að þyrfti aðstoðar sáttasemj-
ara, og var deilunni vísað til hans
iaugardaginn 19. maí.
Síðan hafa verið haldnir tveir
fundir hjá sáttasemjara og er það
því hinn þriðji, sem haldinn verður
i dag. Undirnefndir hafa starfað
milli funda.
Á þessu stigi er ekki unnt að
segja frekara frá samkomulagsum-
leitunum.
Síldveiðar byrja vanalega um
miðbik júnímánaðar svo að aug-
ljóst er mikilvægi þess, að sam-
komulag náist hið fyrsta.
SÍLDARVERÐIÐ.
Verðlagsráð sjávarútvegsins fjail-
ar um þessar mundir um síldar-
verðið í sumar, bæði bræðslusíld-
ar- og saltsíldarverðið.
Sfldarverksmiðjan á Seyðis-
firði tilbúin á réttum tíma
Smíði hinnar nýju síldarverk-
smiðju á Seyðisfirði hefur gengið
betur en á horfðist, þegar járn-
smiðaverkfallið skail á og hinir
reykvísku járnsmiðir sem austur-
frá voru lögðu niður vinnu. Járn-
smiðirnir á Seyðisfirði hafa þá
ekki legið á liði sínu og er nú
talið víst, ef engin óhöpp koma
t'yrir að verksmið,an verði tilbúin
um mánaðamótin júní-júlí.
Nú er búið að reisa stálgrindurn-
ar, sem síldarverksmiðjan er reist
úr og verið að klæða þær. Jafn-
framt hefur vélum verið komið fyr
ir og enn unnið að því að bæta
við vélum. 40 til 50 manns vinna
við smíði verksmijunnar.
Þannig er allt útlit fyrir að
síldarverksmiðjan á Seyðisfirði geti
farið að taka við sfld til bræðslu
strax og síldarvertíð hefst. Hefur
verkið þá gengið furðu vel og mun
tíminn sem fer til að ljúka bygg-
ingunni vera um tveir mánuðir.