Vísir - 29.05.1962, Page 10
Þriðjudagur 29. maí 1962.
10
VISIR
Minning:
ÞórunnJóhannsson
10. ágúst 1882 — 4. marz 1962
„Lífdagar þverra ört sem
fjúki fis,
fölnar og brestur heimsins
lán og glys,
hverfullt er allt og valt í
veröld hér,
ver þú, sem aldrei breytist,
Guð hjá mér“.
Þórunn var fædd 10. ágúst 1882
í Rangárvallasýslu á íslandi. For-
eldrar hennar voru hjónin Jón Ein
arsson og Arnbjörg Andrésdóttir.
Ólst hún upp á heimili þeirra í
mannvænlegum systkinahópi fram
að fermingaraldri, fór þá á hið
merka prestsheimili á Breiðabóls-
stað í Fljótshlíð — heimili séra
Eggerts Pálssonar og konu hans
Guðrúnar Hermannsdóttur, er var
systir hins alkunna fræðimanns
Halldórs Hermannssonar. Á því
heimili dvaldi hún í nokkur ár, er
voru henni ógleymanleg. Þar þrosk
aðist hið góða veganesti, er hún
hafði hlotið í foreldrahúsum og
ávallt varð henni til blessunar.
Þaðan fór hún til Reykjavíkur og
hlaut menntun á hússtjórnarskóla.
Svo lá leið hennar til Noregs, þar
sem hún dvaldi í nokkurn tíma,
hvarf svo aftur til íslands og vann
um nokkurt skeið á saumastofu í
Reykjavík.
Hún fluttist til Ameríku árið
1910, dvaldi um tíma á heimili
frænda síns, Sigurðar Anderson og
konu hans Guðrúnar í Winnipeg.
Þann 12. apríl 1912 giftist hún
Gesti Jóhannssyni, stofnuðu þau
heimili í Piney og dvöldu þar unz
þau fluttu til Selkirk árið 1924.
Þar áttu þau heimili þaðan af að
undanteknum tveimur . árum, er
þau dvöldu í Winnipeg. Dauða
Þórunnar bar að höndum 4. marz
1962 á hinu Almenna sjúkrahúsi
í Selkirk.
Þórunn var frábærlega vel verki
farin, listræn og prýðilega að sér
í allri handavinnu. Á sínum yngri
árum hafði hún mikið þrek og
dugnað. Æskuvina hennar á ls-
landi hefir lýst henni þannig, að
hún hafi verið „góð og sterk
persóna, miklum kostum búin“.
hanna og Skúli á íslandi. Nöfn
barnanna eru sem hér segir.
Harold og Bjarni í Selkirk, Gunnar
í Flin Flon, Jóhann í Vancouver,
Inga í Winnipeg. Son sinn Oscar
misstu þau hjón 1936 af slysförum,
var fráfall hans þeim æviharmur.
Jarðarför Þórunnar fór fram 7.
marz frú lútersku kirkjunni í
Selkirk. Var hún lögð til hvíldar í
grafreit Selkirksafnaðar. Sóknar-
presturinn, W. Bergman, jarðsöng.
„Þér fylgir vor blessun, þér
fylgja vor tár á friðarins engil-
vegi'.
Ingibjörg J. Ólafsson.
Að utan —
Framh. af bls. 8.
skemmri tíma í Alsír og hafa
því ekki getað varizt því að
hafa nokkra samúð með hinum
evrópsku Iandnemum og ótta
þeirra við serkneska stjórn £
Iandinu. Þetta viðhorf hefur
styrkzt við það vandamál sem
nú hefur komið upp, þar sem
evrópsku landnemarnir eru nú
farnir að flýja Alsír £ þúsunda-
tali af ótta við valdatöku
Serkja. Þannig hefur aftur vakn
að tilfinning dómaranna fyrir
þeim þjóðlega harmleik, sem
hér fer fram og þeir hafa þess-
vegna tekið vægara á brotum
OAS-hreyfingarinnar.
Svíar fá
Framh. af 4. síðu.
+ Hvað kennirðu við skól-
ann? spyr ég hann loks.
— Látbragðsleik og skylm-
ingar.
— Til hvers er verið að
kenna skylmingar £ leikskóla?
— Þær þykja stæla skrokk-
inn og þjálfa hreyfingar og
koma £ stað leikfimi, sem tíðk-
ast annars f flestum skólum.
— Og hvað hefurðu svo
næst á prjónunum?
— Við erum fjögur að búa
okkur £ leikferðalag út á land
eftir mánuð með leikritið
„Rekkjuna", sem hér var sýnt
fyrir mörgum árum við mikla
hrifningu. Gunnar Eyjólfsson og
Herdis Þorvaldsdóttir leika
hlutverkin tvö, Guðni Bjarnason
sér um leiktjöld og sviðið allt
og ég hef leikstjórn á hendi. En
£ haust tekur svo við nýja leik-
ritið eftir Thorbjörn Egner,
sem samdi Kardimommubæinn.
Það heitir Klifurmús og hin
dýrin f Hálsaskógi, og er af-
burða snjallt eins og allt eftir
þennan fjölhæfa mann, sem
semur allt sem þarf til leiksins.
Það verður sýnt hér £ Þjóðleik-
húsinu £ haust, og vonandi á
það eftii að skemmta unga
fólkinu ekki sfður en Kardi-
mommubærinn, en hann var
sýndur 75 sinnum.
— En verður Skuggi ekki
sýndur oftar?
— Það var nú ekki meining-
in. Ætli Svfar sýni hann ekki
næst. Þeir hafa sýnt áhuga að
fá leikritið til þýðingar.
Þórunn Jóhannsson.
Börnum sfnum reyndist hún hin
bezta móðir og eiginmanni sfnum
var hún samhent og ástrfk. Á dval-
arárum þeirra f Piney voru kring-
umstæður erfiðar. Heimilisréttar-
landið lélegt og um enga atvinnu
að gera utan heimilisins. Þar fædd
ust þeim sjö börn. Kom sér þá
vel hagsýni og sparsemi Þórunnar
og kunnátta hennar að sauma allan:
klæðnað á hinn stóra barnahóp. |
Þórunn var sjálfstæð £ skoðun-
um og fann það aldrei skyldu sfna
að fylgjast með fjöldanum, ef sam-
vizka hennar visaði henni á annan
| veg. Fastheldni og trygglyndi ein-
kenndi hana. Ef til vill var hún
vinafá, hún var vönd að vinum, en
byggði vináttu sina á traustum
grundvelli. Ekki mun öllum, er til
hennar þekktu, hafa verið það Ijöst
hve mikill höfðingi hún var f lund,
því eitt skilyrði fylgdi gjöfum henn
ar ávallt, að enginn mætti um þær
vita.
Aðalstarfsvið Þórunnar var heim
ilið, þótt hún tilheyrði og unni hin-
um lútherska söfnuði í Selkirk og
kvenfélagi hans. Hún var mikill
Islendingur og elskaði móðurmál
sitt og ísland, var hún meðlimur
þjóðræknisdeildarinnar „Brúin".
Hin síðustu ár átti hún við heilsu-
leysi að strfða. Voru börnin þá öll
gift og komin að heiman. Með frá-
bærum skilningi og nærgætni bar
eiginmaður hennar þann kross með
henni til hins síðasta. Hjónaband
þeirra , er entist í fjörutíu og átta j
ár, var farsælt og kærleiksríkt
1 Eftirlifandi ástvinir eru- eigin-
maður hennar Gestur Jóhannsson,
fjórir synir og tvær dætur. 17
barnabörn og eitt barna-barnabarn;
þrjár systur og einn bróðir, Arn-
! dfs Ólafsson í Seattle, Solveig, Jó-
n i
rúmar 147 millj.
ÚTFLUTNINGURINN í apríl nam
í apríl nam 274.6 millj. kr., en inn-1
flutningur 318,8 millj. og óhagstæð
ur viðskiptajöfnuður því 44,2 millj., _
en var f sama mánuði f fyrra óhag-
stæður um 54,2 millj.
Frá áramótum sl. til aprílloka
nam útflutningurinn einum millj-
arði og 127,8 millj., en innflutt var
fyrir 980,2 millj. Er því hagstæður
vöruskiptajörfnuður f apríllok 147,
6 millj. kr. Verðmæti innflutnings
og útflutnings 1961 var fært til
samræmis við það gengi, sem tók
gildi 4. ágúst 1961. Birt samkvæmt
bráðabirgðaskýrslu Hagstofunnar.)
Fyrirlestrar og lelðbeiningar
um útflutningsverzlun
Stálu skónum
Á sunnudag var kært til lög-
reglunnar yfir næsta undarlegum
þjófnaði í heimahúsi.
Þannig er mál með vexti að kl.
um þrjú eftir miðnætti aðfaranótt
laugardags hitti maður annan
mann á förnum vegi á einni götu
borgarinnar og bauð honum heim
til sfn. Báðir voru vel við skál,
einkum þó gesturinn, enda hafði
hann ekki lengi setið að veiting-
um húsráðenda þegar sækja tók
á hann svefnhöfgi, svo hann gerði
sér lítið fyrir, fór úr skónum, hall
aði sér upp i bekk og var stein-
sofnaður á sömu stundu.
Þetta fannst húsráðenda vera
leiðinlegur og ómerkilegur gestur,
sem ekki gæti vakað með sér eina
næturstund. Leiddist honum ein-
veran ákaflega, svo hann fór út f
bæ aftur til að leita sér að nýjum
félögum. Hitti hann von bráðar
þrjá unga menn, sem hann þekkti
að vfsu ekki, en sýndist þó vera á
svipuðu stigi og hann og ekki ólfk-
legir til nokkurs gleðskapar. Hann
bauð þeim heim og þeir þáðu boð-
ið. Sátu þeir fbúð hans þar til
sólin teygði sig upp yfir sjóndeild-
arhringinn, þá þökkuðu þeir góðan
viðurgjörning og kvöddu. Segir
ekki af þeim meir, en nokkrum
klukkustundum seinna vaknar sá
gesturinn sem fyrst kom, og þegar
hann ætlaði að fara f skóna sína,
voru þeir horfnir. Einhver þre-
menninganria hafði stolið þeim.
Upphófust þarna talsverð vand-
ræði, því að skór sem húsráðandi
ætlaði að lána gesti sfnum til að
komast heim, pössuðu ekki, skó-
verzlanir eru lokaðar á sunnudög-
um og það varð þvf að leita á
náðir lögreglunnar að flytja hinn
skólausa ges' heim. Nú leitar lög-
reglan að gestunum þrem.
Félagið Sölutækni gengst fyrir
fyrirlestri og leiðbeiningarstarf-
semi fyrir útflytjendur og aðra,
sem áhuga hafa á útflutningsmál-
um, dagana 4. —16. júní n. k.
Eftirtaldir menn skipa nefnd,
sem sér um undirbúning:
Gunnar J. Friðriksson, forstjóri,
Jón Arnþórsson, fulltrúi,
Leifur Guðmundsson, skrifst.stj.,
Már Elísson, hagfræðingur
Sveinn Björnsson, verkfr.
Fyrir milligöngu Iðnaðarmála-
stofnunar íslands hefur tekizt að
fá hingað með stuðningi OECD í
París, Sigvard Hjelmvik, sænskan
hagfræðing, með sérþekkingu á
útflutningsmálum.
Sigvard Hjelmvik hefur hlotið
menntun í heimalandi sínu og
Bandaríkjunum. Hann hefur unnið
að útflutningsmálum hjá ýmsum
þekktum fyrirtækjum í Svíþjóð,
Finnlandi og Bandaríkjunum. Um
nokkurra ára skeið var hann
framkvæmdastjóri Sambands
sænskra útflytjenda, og hefur
hann m. a. ritað bók um útflutn-
ingsverzlun og kennt þessi fræði
við Verzlunarháskólann f Gauta-
borg. Sigvald Hjelmvik er nú að-
stoðarsölustjóri hjá A/B Volvo.
Fyrirkomulagið mun f aðalatrið-
um verða þannig, að í upphafi
mun gerð grein fyrira útflutnings-
viðskiptum almennt, og skýrt frá
reynslu nágrannalanda okkar í
þeim efnum. Sérstaklega verður
lögð áherzla á að gefa sem gleggst-
ar upplýsingar um hlutverk ríkis-
valdsins og samtaka útflytjenda í
þessum málum á hinum Norður-
löndunum.
Jafnframt mun þátttakendum
gefast tækifæri til að ræða og fá
ábendingar um atriði, er snerta
einstakar greinar útflutnings, svo
sem iðnaðarvara, sjávarafurða og
landbúnaðarvara.
Að lokum mun þátttakendum
gefinn kostur á að leita ráða og
leiðbeininga Hjelmviks um sér-
vandamál sín varðandi útflutnings-
verzlun.
Sölutækni gerir ,sér vonir um
að starf þetta til leiðbeiningar og
kynningar falli í góðan jarðveg
hér, þar sem áhugi er mjög mikill
á flutningsmálum.
Það sem takmarka verður fjölda
þátttakenda, er nauðsynlegt að
þeir, sem hyggjast taka þátt, til-
kynni það eigi síðar en 2. júní.
i Frekari upplýsingar um tíma, þátt-
tökugjald o. s. frv. má fá á skrif-
stofu Sölutækni, sími 14098, kl.
9 — 5 daglega.
Á syðri ey Nýja Sjálands varð
um helgina vart mesta landskjálfta,
sem þar hefir mælzt sfðan 1929,
en tjón varð lítið á mannvirkjum.
» Brúður ein í smáþorpi í Mexikó
skaðbrenndist nýlega, er keppinaut
ur hennar kveikti í brúðarkjól henn
ar, meða. á hjónavígslunni stóð.
^ Söngkonan Dinah Shore hefur
skilið við mann sinn, leikarann
George Montgomery. Þau höfðu
verið gift f 19 ár og áttu tvö börn.
Skipstjórinn fullur
— og skipið strandað
Á sunnudagsmorgun var þilbáti
siglt út úr Reykjavfkurhöfn. og
stefnan sfðan tekin inn sundin.
Skipseigandi var sjálfur við stjórn,
en áhöfn var auk hans karlmað-
ur og kvenmaður, sem hvorugt
kunni mikið til sjómennsku og
höfðu varla á sjó komið áður. ÖIl
voru þau nokkuð undir áhrifum
áfengis.
Ekki segir af ferðum leiðang-
ursins fyrr en loftskeytastöðinni í
Reykjavík barst hjálparbeiðni frá
bátnum. Var hann þá strandaður
einhvers staðar milli Gufuness og
Viðeyjar — og karl-hásetinn, sem
Vaataði 116 atkv.
Það urðu Alþýðufiokks-
mönnum í Reykjavík nokkur
vonbrigði að þeir komu ekki að
tveimur borgarfulltrúum i
Reykjavík þrátt fyrir aukið at-
kvæðafylgi, segir aukablað Al-
þýðublaðsins f gær. Alþýðu-
flokkinn vantaði aðeins 116 at-
kvæði til þess að fella þriðja
mann kommúnista. Þriðji mað-
ur kommúnista hafði _„38 atkv.
en annar maður Alþýðuflokks-
ir 1980 atkv.
taldi sig vera kominn í allnokkurn
lífsháska, beið ekki boðanna, held-
ur fór í talstöðina og bað um
hjálp.
Gerðar voru strax ráðstafanir
til að hjálpa bátnum og var hafn-
sögubáturinn sendur og með hon-
um lögreglumenn, auk hafnsög-i-
manna. Á miðri leið mættu þeir
hinu strandaða skipi ,sem þá hafði
losnað af sjálfsdáðum og snúið til
hafnar aftur.
Þegar lagzt hafði verið að
bryggju kröfðu lögreglumennirnir
skipstjórann sagna um ferðir hans,
en hann vildi engar gefa og var
þögull sem gröfin. Var tekið af
honum blóðsýnishorn og á eftir
settur f gæzluvarðhald á meðan
mál hans var f rannsókn og eign-
arheimild á bátnum sönnuð. Aftur
á móti skýrði hin áhöfn bátsins
frá því, að þau þekktu skipstjór-
ann næsta lítið, vissu þó aðeins
nafn á honum, en þau hefðu hitt
hann á förnum vegi, sfðari hluta
nætur, eða árla morguns, og þá
hafi hann boðið þeim í skipsferð,
hverja þau þáðu.