Vísir - 29.05.1962, Page 16
VISIR
1 ■■■■■■
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
íkviknanir
Þriðjudagur 29. maí 1962.
Rétt fyrir klukkan ellefu í morg-
un var slökkviliðið kallað að Ár-
bæjarbletti 40. Hafði kviknað þar
í miðstöðvarklefa, sennilega út frá
olíukyndingu, sem þar er.
Allmiklar skemmdir urðu á klef-;
anum. Brann hurðin á honum og
gat kom á hurð á svefnherbergi,
sem er í kjallaranum, auk þess
sem nokkrar skemmdir urðu af
vatni. Steinplata er yfir kjallaran-
um og komst eldurinn því ekki upp
á hæðina, en skilrúm í kjallaran-
um eru úr tré.
Klukkan 11.25 var slökkviliðið
kallað að togaranum Þorsteini Ing-
ólfssyni, sem liggur við Faxagarð.
Hafði bilað þar slanga á logsuðu-
tækjum og kviknað í gasinu. Engar
teljandi skemmdir urðu.
Sir Francis
Shepherd
lótinn
Sir Francis Shepherd sem áður
var ræðismaður Breta á Islandi er
nýlega látinn í Englandi, 69 ára
að aldri. Hann var ræðismaður
Breta í Danzig, þegar heimsstyrj-
öldin skall á en var sendur til
Reykjavikur skömmu áður en Bret
ar hemámu landið, og kynntist
hann mörgum íslendingum í
tveggja ára dvöl sinni hér. Hann
varð svo síðar sendiherra Breta í
Persíu og Póllandi.
Hinn nýi borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins, aðalfulltrúar flokksins og varafulltrúar. — Fremri röð, taiið frá vinstri:
Þór Sandholt skólastjóri, Birgir Isl. Gunnarsson hdl., Gísli Haildórsson arkitekt, Auður Auðuns forseti borgarstjómar, Geir Hall-
grímsson borgarstjóri, Gróa Pétursdóttir húsfrú, Úlfar Þórðarson iæknir, Guðjón Sigurðsson iðnverkamaður og Þórir Kr. Þórðar-
son prófessor. — Aftari röð talið frá vinstri: Kristján Aðalsteinsson skipstjóri, Þór Vilhjálmsson borgardómari, Kristján J. Gunn-
arsson skólastjóri, Friðleifur í. Friðleifsson bifreiðarstjóri, Guðrún Erlendsdóttir hdl., Sveinn Helgason stórkaupmaður, Baldvin
Tryggvason framkvæmdastjóri, Þorbjöm Jóhannesson kaupmaður og Sigurður Magnússon kaupmaður.
Kjarnorku-
tilraunir
Allir ánægðir með
kosningaárslitin
t gær komu forustumenn stjórn-
málaflokkanna fram í fréttaauka
^ Ríkisútvarpsins og sögðu álit sitt
Tilraunir með kjarnorkuvopn á úrslitum bæjarsljórnarkosning-
hefjast á Johnston-ey á Kyrrahafi | anna. Áður hefur verið sagt hér í
í þessari viku. * blaðinu frá áliti forustumanna
M. a. verða sprengdar hátt í lofti
„megatonnsprengjur“ og er gert
ráð fyrir, að bjarminn muni sjást
1 yfir 3200 km. fjarlægð. .
Sprengimagn þessara sprengna
svarar til a. m. k. 1000 lesta af
TNT-sprengiefni.
Sjálfstæðisflokksins, sem fögnuðu
þvi að Sjálfstæðisflokkurinn hélt
að miklu leyti sigri þeim, sem
hann vann í bæjarstjórnarkosning-
unum 1958.
En forustumenn vinstri flokk-
anna, sem fram komu í útvarpinu
í gær, voru líka ánægðir með úr-
slitin. Þar töluðu þeir Hannibal
Valdimarsson fyrir kommúnista,
Emil Jónsson fyrir Alþýðuflokkinn
og próf. Ólafur Jóhannesson fyrir
Framsókn. Þeir kváðust allir mega
vel við úrslitin una og virðast allir
þannig vera ánægðir.
UNA VEL VIÐ.
Hannibal sagði að Alþýðubanda-
lagið mætti vel við una. Það hafi
haldið velli á Faxaflóasvæðinu og
hafi unnið á á Norðurlandi og
Austurlandi. Hann kvaðst telja að
Framsókn væri sigurvegarinn á
Faxaflóasvæðinu og taldi að úr-
slitin væru stjórnarflokkunum á-
minning, sérstaklega fyrir Alþýðu-
flokkinn. Kvaðst hann álíta að úr-
slitin hafi verið stjórnarflokkunum
óhagstæð og niuni valda ókyrrð
innan þeirra.
SVIPAÐ OG SÍÐAST.
Emii Jónsson félagsmálaráðherra
sagði að atkvæðaútkoman fyrir Al-
þýðuflokkinn og fulltrúatalan hafi
verið svipuð og síðast. Sagði hann
að ef atkvæðatölur nú og 1958
Framb á bls. 5
907 nýir áskrifendur
•••:• :•:..............
Skríðuhlaup í
Laaaardakfialli
Síðastliðið laugardagskvöld féll
skriða mikil úr fjallinu fyrir ofan
Laugarvatn og alla leið niður á
jafnsléttu. Mátti engu muna að
hún félli á íbúðarhús, sem standa
austast í húsaþyrpingunni, en þau
sluppu þó öll við skemmdir sem
betur fór
Aftur á móti eyðilagði skriðan
! skógræktargirðingu ofanvert við
Laugardalsveginn, auk þess sem
hún fór yfir veginn á þrem stöðum
og teppti hann um nær sólarhrings
bil. En ýta ruddi skriðunni af veg-
inum daginn eftir skriðufallið.
Mesta og átakanlegasta tjór.ið af
skriðuhlaupinu varð á skógar-
gróðri í fjallinu. Bæði var þar gam
all sjálggróinn birkiskógur og auk
þess hefur verið plantað miklu af
barrplöntum hin síðari árin. Með-
Framh á bls. 5
Áskrifendasöfnun Vísis hefir gengið mjög vel og hafa bætzt
við 907 nýir áskrifendur frá mánaðamótum. Nú stendur
áskrifendasöfnun yfir í Laugarneshverfi.
Þann 10. júnt verður í fyrsta sinn dregið í hinu mánaðarlega
áskrifendahappdrætti blaðsins og er vinningurinn að þessu
sinni sófasett eftir eigin vali í SKEIFUNNI í Kjörgarði.
Verðmæti þess er 12.000 krónur. Aliir skuldlausir áskrifend-
ur taka þátt í happdrættinu án nokkurs aukagjalds. Giida
mánaðarkvittanirnar sem happdrættismiði.
Gerist áskrifendur að Vísi strax í dag. Blaðið kostar aðeins
45 krónur á mánuði. Áskrifendasíminn er 1-16-60.